Morgunblaðið - 08.05.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983
Fæddist 3 merkur eftir
24 vikna meðgöngutíma
Er nú komin á annað árið og dafnar vel
FYRIR skömmu birtist frétt hér í
blaðinu frá San Diego í Kaliforníu
þess efnis að sett hefði verið nýtt
heimsmet í fæðingu fyrir tímann.
Ernestine nokkur Hudgins fæddist
eftir aðeins 22ja vikna meðgöngu-
tíma. Fyrra heimsmetið var talið
vera 23 vikur. Mbl. frétti af lítilli
telpu á Siglufirði, Lísu Rut Björns-
dóttur, sem í fyrra fæddist eftir 24
vikna meðgöngutíma. Hún er það
barn hér á landi sem talið er að
skemmst hafi verið gengið með og
lifað.
Lísa Rut var 710 grömm að
þyngd þegar hún fæddist en það
samsvarar því að 40 grömm vanti
upp á 3 merkur. Meðalþyngd ís-
lenskra barna við fæðingu er
Fréttin í Mbl. 6/4 um heimsmctið
hinsvegar 3.500 grömm eða 14
merkur. Lísa Rut var 36% sm að
lengd við fæðingu en meðallengd
íslenskra barna við fæðingu er 52
sm.
„Þetta var mjög erfiður tími.
Lengi vel var tvísýnt um líf henn-
ar og við vorum alltaf vöruð við
hinu versta. Læknarnir gátu ekki
gefið okkur von fyrr en eftir mán-
uð,“ sögðu foreldrar Lísu Rutar,
Jóhanna María Sveinsdóttir og
Björn Gunnar Pálsson, þegar blm.
heimsótti fjölskylduna á heimili
þeirra í Siglufirði. Lísa Rut er
þeirra fyrsta barn en þau eru bæði
Siglfirðingar. Jóhanna María
vinnur í frystihúsinu og Björn er
háseti á togaranum Sigluvík.
Lísa Rut 2ja mánaða gömul. Það skal tekið fram að snuðið sem hún er með
er ekki risasnuð, það er af venjulegri stærð, en hlutföllin leyna sér ekki og þó
hefur Lísa litla stækkað mikið frá fæðingu.
Tveir fundir Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks hittust á tveimur fund-
um í gær, laugardag, og í dag,
sunnudag, verða áframhaldandi við-
ræður við Alþýðuflokk og Fram-
sóknarflokk í þeirri stjórnarmynd-
unarlotu sem nú stendur yfir.
Þingflokkur sjálfstæðismanna
hélt fund í gærmorgun og stóð
hann fram yfir hádegi. Á fundin-
um voru rædd viðhorfin í stjórn-
armyndunarviðræðunum, en á
þingflokksfundinum voru engar
formlegar ákvarðanir teknar um
að ganga til stjórnarsamstarfs við
ákveðna flokka. Þingflokkur
sjálfstæðismanna hefur verið
boðaður til fundar á mánudag.
Auk Geirs Hallgrímssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins, tóku
þeir Friðrik Sophusson, vara-
formaður flokksins, og Matthías
Bjarnason alþingismaður þátt í
fundinum með alþýðuflokks-
mönnum.
Á meðfylgjandi mynd sem ljós-
Leiðrétting
í frétt um fermingarbörn á Sel-
fossi í blaðinu í gær misritaðist
heimilisfang eins fermingarbarns-
ins. Hildur Gunnarsdóttir á heima
á Lamhaga 34 á Selfossi.
myndari Mbl. Ólafur K. Magnús-
son tók fyrir þingflokksfund sjálf-
stæðismanna í gærmorgun, eru
þingmennirnir Friðrik Sophusson,
Ellert B. Schram og Halldór
Blöndal.
Sterling Airways
flytur Islendinga
frá Kanada í sumar
FLUGMÁLASTJÓRN hefur veitt
danska fiugfélaginu Sterling Airways
heimild til að millilenda á Keflavíkur-
flugvelli í tíu leiguferðum milli Kanada
og Danmerkur í sumar og til að flytja í
þessum ferðum um eitt hundrað Vest-
ur-íslendinga, sem ætla hingað til
lands, að sögn Péturs Einarssonar,
flugmálastjóra.
Pétur Einarsson sagði að vélarnar
þyrftu að millilenda hér á landi til
að taka eldsneyti og því hefði ekki
þótt óeðlilegt, að heimila flutning
á umræddum Vestur-Islendingum
hingað til lands, sem að öðrum kosti
hefðu þurft að fljúga fyrst frá
Winnipeg til Chicago eða New York
og síðan þaðan til Islands, þar sem
ekkert beint áætlunarflug er milli
Kanada og íslands.
Umræddir farþegar koma hingað
til lands og vegum ferðaskrifstof-
unnar Samvinnuferða-Landsýnar.
Tekjuskerðing land-
verkafólks talsverð
„ÞÓ AFLI á land kominn nú sé mikl-
um mun minni en á sama tíma í fyrra
hér á Suðurnesjum, hefur það ekki
valdið landverkafólki í sjávarútvegin-
um atvinnuleysi. Þó má búast við, að
þess fari að gæta nú í vertíðarlokin og
hætt er við því, að unglingar eigi erfitt
með að fá sumarvinnu,“ sagði Helga
Enoksdóttir, formaður Yerkalýðsfé-
lags Grindavíkur, í samtali við Morg-
unblaðið.
„Það hefur hins vegar dregið
mjög úr vinnu, lengst af aðeins
unnið í 8 til 10 tíma á dag og lítið
um helgar og veldur það talsverðri
tekjuskerðingu miðað við síðasta
ár. Aðkomufólk hér hefur verið
álíka margt og undanfarnar vertíð-
ir. Þó vertíðin hafi ekki verið því
eins ábótasöm og oft áður er lítil
hreyfing á því, þar til nú þegar ver-
tíð er að ljúka. Fólk er furðu rólegt,
þrátt fyrir tekjuskerðinguna," sagði
Helga.
Fulltrúar minnihlutans
vilja úrelt stjórnkerfi
— segir Ragnar Júlíusson, formadur útgerðarráðs BÚR
„HÉR ER UM að ræða hagræðingu í rekstri, sem hefur í fór
með sér sparnað, dreifingu vaids og ábyrgðar og eykur tengsl
yfirmanna og starfsfólks. Það er fráleitt að tala um fjölgun
yfírmanna vegna þessa og auk þess mun þessi breyting leiða af
sér fækkun starfsmanna í hinum ýmsu deildum, þegar fram í
sækir. Fyrrverandi meirihluti, sem nú finnur að hagræðingu,
misnotaði vald sitt á síðasta kjörtímabili með aukningu yfír-
byggingar og ærnum kostnaði eins og áður hefur komið fram,
en nú virðist þeim gleymt,“ sagði Ragnar Júlíusson, formaður
útgerðarráðs BÚR, er Morgunblaðið innti hann eftir stjórn-
kerfísbreytingum innan fyrirtækisins, sem útgerðarráð hefur
nýlega samþykkt.
„Nauðsynlegt var að grípa til
allra hugsanlegra ráða til úrbóta
þegar ljóst var, að staða fyrirtæk-
isins var slík, að útlit er fyrir að
minnsta kosti 100 milljóna króna
tap á árunum 1982 og 1983 sam-
anlagt. Af þessum ástæðum er
hagræðing og aðhald nausynlegt í
einu og öllu. Stjórn BÚR ákvað á
fundi sínum i janúar, ágreinings-
laust, að leita til hagræðingarfyr-
irtækis, Hagvangs, eftir tillögum
um úrbætur á stjórnskipulagi
BÚR, sem nánast hafði verið
óbreytt frá stofnun 1947. Tillögur
Hagvangs voru þær, að fram-
kvæmdastjóri skyldi vera einn í
stað tveggja nú, með fjóra deildar-
stjóra sér til aðstoðar, sem séu
ábyrgir gagnvart framkvæmd-
astjóra hver á sínu sviði og starfa
í hans umboði. í tillögum Hag-
vangs kom fram, að þessi breyting
hefði í för með sér hagræðingu,
sparnað og aukin tengsl yfir-
manna og annarra starfsmanna.
Áður en úttektin hófst var
„stjórnspönn" framkvæmdastjór-
anna tveggja 16 svið, en verður
samkvæmt samþykkt útgerðar-
ráðs frá 4. mai síðastliðnum 4 svið
eins framkvæmdastjóra. Niður-
staðan er þvi einfaldara og virk-
ara stjórnkerfi, þar sem einn
framkvæmdastjóri hefur fjóra
deildarstjóra: fjármálastjóra, út-
gerðarstjóra, framleiðslustjóra og
forstöðumann tæknideildar.
Á ýmsum stigum úrvinnslunnar
fjallaði útgerðarráð um hugmynd-
ir Hagvangs og var enginn ágrein-
ingur um tillögurnar fyrr en í ljós
kom, að gert var ráð fyrir einum
framkvæmdastjóra í stað tveggja.
Rétt er að geta þess að útgerðar-
ráð hafði skömmu áður samþykkt
samhljóða að stofna tæknideild
áður en til úttektarinnar kom.
Framkvæmdastjórar BÚR lögðu
fram skriflega álitsgerð hvor um
sig um tillögurnar, en þó ekki fyrr
en á þeim fundi útgerðarráðs, þar
sem tekin var endanleg afstaða.
Undrar mig mjög, þar sem svo
mjög er rætt af þeim um góða
samstjórn, að þeir kæmu sér ekki
saman um sameiginlega greinar-
gerð. Ég átti tvo fundi með stjórn
starfsmannafélags BÚR og kynnti
henni tillögur Hagvangs, en engar
breytingatillögur komu þá frá
stjórninni. Rétt er að benda á
lokaorð í bókunum Framsóknar og
Alþýðubandalags: „Það væri því
skynsamlegra, að okkar mati, að
vinna að nauðsynlegum lagfær-
ingum á yfirstjórn fyrirtækisins á
grundvelli tvískiptingar þess og
reyna þannig að forðast auka yfir-
byggingu." Með þessu viðurkenna
þeir nauðsyn lagfæringa en vilja
samt af „óskiljanlegum" ástæðum
halda í úrelt stjórnkerfi, en fyrir-
tækjum er öllum holt að endur-
skoða stjórnkerfi sitt, ekki sízt
þegar illa gengur," sagði Ragnar.
Sjálfstæðisfélögin í Breiðholti:
Undirskriftasöfnun í
óþökk stjórnarmanna
A sameiginlegum fundi stjórnar-
manna sjálfstæðisfélaganna í Breið-
holti í gær kom fram mikil óánægja
með undirskriftasöfnun til hvatningar
landsfundarboðunar og formanns-
kosningar Sjálfstæðisflokksins, bæði
hvað varðar tilgang og framkvæmd.
Að sögn Sigfúsar Johnsen, formanns
Félags sjálfstæðismanna í Hóla- og
Fellahverfi, var á fundinum einróma
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„I frétt DV, Tímans og Þjóðvilj-
ans á laugardag, þar sem skýrt er
frá svonefndri undirskriftasöfnun
Sjálfstæðismanna og veitzt er að
formanni Sjálfstæðisflokksins og
hvatt er til landsfundarboðunar og
formannskosningar, er ranglega
sagt, að viðmælandi blaðanna, Guð-
mundur Guðmundsson, sé stjórnar-
maður í „Félagi sjálfstæðismanna í
Breiðholti". Hið rétta er, að í Breið-
holti eru þrjú sjálfstæðisfélög
starfandi og er Guðmundur annar
varamaður í stjórn Félags sjálf-
stæðismanna I Hóla- og Fella-
hverfi.
Stjórnir sjálfstæðisafélaganna
vilja að gefnu tilefni taka fram, að
Bíl stolið
á Akranesi
Lítilli fólksbifreið var stolið á
Akranesi milli klukkan 4 og 8 í gær-
morgun. Bifreiðin fannst fljótlega
lítið skemmd skammt ofan bæjar-
ins, en að sögn lögreglunnar hefur
ekki tekist að hafa uppi á þjófnum.
Talsverð ölvun var á Akranesi í
fyrrinótt og annríki hjá lögreglu
af þeim sökum, en ekki urðu nein
slys eða óhöpp.
undirskriftasöfnunin er í óþökk
stjórnarmanna, þar sem hún er ein-
göngu til skaða fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Að mati stjórnarmanna í
Breiðholti stráir hún efasemdum og
eitri inn í yfirstandandi stjórnar-
myndunarviðræður sjálfstæð-
ismanna.
Þá lýsa stjórnirnar furðu sinni á,
að upphafsmaður þessa ódrengilega
og vanhugsaða tiltækis, Asgeir
Hannes Eiríksson, skuli ekki kynna
það sjálfur í dagblöðum í stað þess
að beita öðrum fyrir vagninn. Sýnir
það bezt, hversu óheiðarleg hug-
mynd liggur hér að baki.“
Að þessari samþykkt standa
stjórnir sjálfstæðisfélaganna í
Breiðholti, þ.e. Félags sjálfstæð-
ismanna í Hóla- og Fellahverfi, Fé-
lags sjálfstæðismanna í Skóga- og
Seljahverfi og Félags sjálfstæð-
ismanna í Bakka- og Stekkjahverfi.