Morgunblaðið - 08.05.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 5
SunnudajísstúdíóiA kl. 20.00
Breiðholtsbardagi
og Miðjarðarför
llljóóvarp á mánudajfskvóld kl. 22.25
Er allt með felldu
í flugstjórnarmálum
og innanlandsflugi?
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.00 er
Sunnudagsstúdíóið — Útvarp unga
fólksins. Guðrún Birgisdóttir
stjórnar.
— Ég verð fyrst með viðtai við
tvo Seljabúa og tvo Fellabúa úr
bardögunum í Breiðholtinu, sagði
Guðrún, — og við fjöllum um þetta
í svona frekar léttum dúr, svo og
um hverfabardaga fyrr á árum.
Svo fjöllum við líka um öll hin
jákvæðu málin þarna uppfrá, sem
aldrei ná inn á síður blaðanna, þ.e.
um lífið almennt í Breiðholtinu og
möguleika unglina þar; einnig um
sumarvinnuna þeirra. Þetta verður
sem sagt enginn æsingapistill,
heldur friðsamlegt rabb. Og við-
mælendur mlnir eru: Ingimundur
Stefánsson og Marta Sigurfinns-
dóttir, bæði úr 9. bekk i Fellaskóla,
„ÞRJAR sögur úr heita pottinum"
nefnist nýtt útvarpsleikrit eftir
Odd Björnsson, sem frumflutt
verður í hljóðvarpi kl. 14.15 í dag.
Leikstjóri er Lárus Ýmir Óskars-
son og leikendur: Rúrik Haralds-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sig-
urður Skúlason, Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir, Helgi Skúlason og
Guðrún Gísladóttir.
Eins og nafnið bendir til er
leikurinn saman settur úr þrem-
ur sjálfstæðum þáttum, sem all-
og Sólveig Gísladóttir og Stefán
Már Kristinsson, bæði í 9. bekk í
Seljaskóla. Svo velja þau sér óska-
lag. Þá verður áframhald skóla-
kynningar og nú kynnum við Leik-
listarskóla Islands. Þar eru nem-
endur að þreyta inntökupróf um
þessar mundir og aðrir að útskrif-
ast eftir fjögurra ára nám. Ég
spjalla við tvo þeirra sem eru að
útskrifast, Eyþór Árnason og
Kristján Fanklín Magnús. Próf-
stykki útskriftarnemendanna er
leikritið Miðjarðarför eftir Sigurð
Pálsson, sem sýnt verður 1 Lind-
arbæ. Og það fjallar einmitt um
það að stíga yfir þröskuldinn til
fullorðinsáranna. Þá er bréfalest-
urinn og loks fréttatíminn, þar
sem sagðar verða nýjustu fréttir
úr heimi unga fólksins og hvað þar
er um að vera.
ir snúast á einhvern hátt um
samskipti karla og kvenna.
Höfundur gerir sér far um að
sýna efnið í gamansömu ljósi og
er hið fáránlega aldrei mjög
langt undan, fremur en í öðrum
verkum hans.
Oddur Björnsson er löngu
kominn í röð fremstu leikrita-
höfunda okkar. Þrjár sögur úr
heita pottinum er ellefta út-
varpsleikrit hans.
Nína
Tryggvadóttir
Á dagskrá kl. 20.50 er
mynd sem sjónvarpið hefur
látið gera um Nínu Tryggva-
dóttur listmálara og verk
hennar. Brugðið er upp
myndum af verkum listakon-
unnar, sem er að finna víða
um heim, og rakinn ferill
hennar. Einnig er rætt við
eiginmann og dóttur Nínu og
nokkra samferðamenn; Auði
og Halldór Laxness, Valtý
Pétursson og Steingerði Guð-
mundsdóttur. Tónlist í
myndinni: Jórunn Viðar.
Umsjónarmaður: Hrafnhild-
ur Schram. Upptöku stjórn-
aði Þrándur Thoroddsen
Á mánudagskvöld kl. 22.35 er á
dagskrá hljóðvarps þáttur í um-
sjá Önundar Björnssonar, Er
allt með felldu?
— Þetta er annar tveggja
þátta um flugmál, sagði Önund-
ur, — síðri þátturinn verður eft-
ir hálfan mánuð. í fyrri þættin-
um verður fjallað um flugstjórn-
armál og innanlandsflug. Rætt
verður við ýmsa aðila, m.a. Örn
Helgason, forstöðumann innan-
landsflugs Arnarflugs, sagt frá
þróun íslenskra flugmála og efnt
til hringborðsumræðna. Þar
verða m.a. Pétur Einarsson,
flugmálastjóri, Steingrímur
Hermannsson, samgönguráð-
herra og Einar Helgason,
forstöðumaður innanlansflugs
Flugleiða. Ætlunin er að fá
nokkra yfirsýn yfir stöðu flug-
stjórnarmála (m.a. fjárveitingar
til flugvalla) og innanlandsflugs
í þessum fyrrum þætti og milli-
landsflugs í hinum síðari. I um-
ræðum um flugmál hefur mér
oft virst sem veist væri einhliða
að flugfélögunum fyrir allt sem
miður hefur farið, en gleymst að
huga að gildi þeirrar þjónustu,
sem þessir aðilar hafa á hönd-
um.
Illjóúvarp kl. 14.15
Þrjár sögur úr
heita pottinum
— nýtt íslenskt útvarpsleikrit
Ný ævintýri og ný upplifun á hverjum degi
Við minnum á takmarkað sætaframboð
okkar í hinar sívinsælu rútuferðir um Mið-
Evrópu. ítarlegar leiðarlýsingareru í
sumarbæklingnum sem fæst á skrifstof-
unni í Reykjavík og hjá umboðsmönnum
6-landa sýn
15. júlí-5. ágúst
í þessari ferð er gjarnan sneitt framhjá
erilsömum stórborgum en stefnan í
staðinn sett á f riðsælar borgir og bæi sem
varðveitt hafa gömlu „sveita- og Alpa-
rómantíkina'.
um allt land. Farið er í fylgt þaulvanra
íslenskra fararstjóra og innifalið í verði er
flug, gisting með hálfu fæði, akstur og
ýmsar sérstakar skoðunarferðir út f rá
viðkomustöðunum.
8-landa sýn
3.-24. júní 5.-26. ágúst
Ekið er um Holland, Belgíu, Frakkland,
Luxembourg, Sviss, Ítalíu, Austurríki og
Þýskaland.
Rínarlönd
24. júní - 15. júlí
Þaulskipulögð og hnitmiðuð ferð um hin
gullfallegu héruð Rínardalsins og
nágrenni hans.
Jersey - Frakkland
26. ágúst-16. september
Fyrsta hópferð Samvinnuferða-
Landsýnartil bresku eyjunnar Jersey við
Frakklandsstrendur.
Pantið tímanlega
- nú seljum við síðustu sætin í hverja rútu!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899