Morgunblaðið - 08.05.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983
7
„Sannlega, sannlega segi ég
yður: Hvað sem þér biðjið föð-
urinn um í mínu nafni, mun
hann veita yður. Hingað til haf-
ið þér einskis beðið í mínu
nafni. Biðjið, og þér munuð öðl-
ast, svo að fögnuður yðar verði
fullkominn." (Jóh. 16:23—33).
Bæn er ekki einskorðuð við
kristindóminn. Bænin er rauði
þráðurinn í öllum trúarbrögð-
um, enda þótt form hennar og
innihald geti verið mjög mis-
munandi. Bænin virkar oft eins
og nokkurs konar spegill fyrir
trúarbrögðin, þ.e. hún getur
látið aðalinntak, kjarna trúar-
innar, í ljós. Bænin gefur eðli
Guðs/guðanna eða máttarvald-
anna til kynna og segir einnig
til um afstöðu mannanna til
þeirra. Ýmsir sem telja sig ekki
trúaða eiga það stundum til að
ákalla æðri máttarvöld, sér-
staklega þegar þeir lenda í ein-
hverjum raunum. Orð Werge-
lands í „Gyðingnum“ virðast
vera í fullu gildi enn í dag: „1
slíku veðri, stíga bænir til þín,
Guð!“
Bæn fær þó nokkra umfjöll-
un í Biblíunni, samt gefur
Biblían enn meiri vitneskju um
hvað bænin er, með því að segja
frá því hvernig hún var notuð.
Mörg rita Biblíunnar eru í raun
og veru safn bæna, eins og t.d.
Sálmarnir. Frásögur guðspjall-
anna segja oft frá bænum Jesú.
Hin rit Nýja testamentisins
sýna líka hve stóran sess bænin
skipar, bæði í lífi safnaðar og
einstaklinga. „Bænin er andar-
dráttur kristinnar trúar", hefur
oft verið sagt með réttu. Mál-
tækið sýnir, hve nauðsynleg og
eðlileg bænin er kristnum
manni. í þessu felst einnig, að
bænir þurfa ekki nauðsynlega
að fastmótaðar, beðnar á
ákveðnum tímum og á ákveðn-
um stöðum. Bænin er miklu
frekar túlkun á afstöðunni til
Guðs, opið og einlægt samfé-
lagsform.
Ákveðin regla á bænalífi hef-
ur mikið að segja fyrir þann
sem trúir. Kirkja og söfnuður
þarfnast fastmótaðra bæna,
sem verða fastir liðir í guðs-
þjónustunni. Hins vegar hafa
bæði söfnuður og einstaklingar
þörf fyrir fastar bænir (eins og
„Faðir vor“) og bænir sem
beðnar eru frá eigin brjósti við
ýmsar aðstæður.
Heyrir Gúð bænir? Er nokk-
urt gagn af því að biðja? —
Fjöldi fólks mundi svara þessu
játandi og segja frá, hvernig
það var bænheyrt. Slíkar frá-
sagnir og vitnisburðir eru sjálf-
sagt ekki nein sönnun fyrir
þann sem trúir hvorki á Guð né
bænir. En þær geta hins vegar
styrkt trúaðan mann í trúnni.
Eins getur það valdið trúuðum
manni hugarangri ef hann virð-
ist ekki ætla að fá svar við
bænum sínum. En svarið er
undir Guði komið. Það er hann
sem er Guð — og Guð er sá eini
sem veit hvað mönnunum er
Hvad
er
bæn?
fyrir bestu. Frá sjónarhóli
kristinnar hugsunar er svarið
eiginlega ekki aðalatriðið, held-
ur sjálf bænagjörðin, samband-
ið við Guð. Jesús talaði aldrei
beinlínis um bænasvar. En
hann sagði við lærisveina sína:
„Biðjið og yður mun gefast
..." og hann kenndi þeim að
biðja. Þar með kunngerir Jesús
að Guð heyrir og svarar bæn-
um, þó svo að svarið sé ekki
alltaf í samræmi við óskir og
vonir þess sem biður.
Getum við haft áhrif á Guð í
bæninni, fengið hann til að
breyta áætlunum sínum? Segir
ekki í Biblfunni að Guð sé al-
máttugur og óumbreytanlegur?
— Út frá sjónarmiðum krist-
innar trúar verðum við að
svara báðum spurningunum
játandi. Skynsemin segir okkur
að það sé þverstæða, sem ekki
sé hægt að leysa með neinum
rökum. En trúin finnur lausn-
ina í bæninni: „Verði þinn vilji"
(bæn sem Jesús kenndi læri-
sveinum sínum í „Faðir vor“ og
bað sjálfur i Getsemane).
Kristin bæn er ekki galdur eða
töfrar. Menn geta ekki og eiga
ekki að þvinga Guð. Bænin og
svar við henni er ekki háð
hæfni manna eða guðhræðslu
þeirra sem biðja. Fyrir Guði
eru allir jafnir.
Það er ekki auðvelt að biðja.
Lærisveinunum var það líka vel
ljóst. Þess vegna fóru þeir til
Jesú og sögðu: „Kenn þú oss að
biðja." Þá kenndi Jesús þeim
„Faðir vor“. Um það hefur verið
sagt, að þar sé að finna krist-
indóminn í hnotskurn.
Hin Drottinlega bæn er í
tveimur útgáfum f guðspjöllun-
um. Bæði í Matt. 6 og Lúk. 11. í
meginatriðum er innihaldið hið
sama í báðum. í báðum tilfell-
um er sagt frá þessari bæn eins
og um kennslu sé að ræða. Það
gefur vísbendingu um að bænin
hafi verið notuð allt frá frum-
kristni við skírnarfræðslu og
guðsþjónustur. Þessi bæn líkist
að mörgu leyti gyðinglegum
bænum — sérstaklega að formi
til en innihaldið er einkennandi
fyrir kristna trú.
„Faðir vor“ er dæmigerð við-
miðunar-bæn. Hana má biðja
eins og hún er, og hún getur
legið til grundvallar við mótun
eigin bæna og bæna kirkjunn-
ar. Hinar sjö stuttu bænir
„Faðirvorsins" hafa að geyma
allt það sem við þurfum að
biðja um. Fyrstu þrjár bænirn-
ar fjalla um það sem Guð vill
að komi fyrst, þ.e. um Guð og
guðsríkið. Fjórar síðustu taka
svo mið af því sem á undan er
komið, þ.e. að afstaðan til
okkar sjálfra og náungans sé
skoðuð í því ljósi að Guð sé með
börnum sínum.
Lúther lagði mikið upp úr
„Faðirvorinu" enda notaði
hann það sem viðmiðun í bæna-
lífi sínu, með sama hætti og
lýst er hér að ofan.
í guðspjalli þessa sunnudags,
sem jafnframt er bænadagur
þjóðkirkjunnar, hvetur Jesús
okkur til þess að biðja, svo
fögnuður okkar geti orðið full-
kominn. Hér er Jesús að tala
um fögnuð hjartans, fögnuðinn
yfir því að vita sig í almáttugri
hendi Guðs. Þessi fögnuður
verður ekki fullkominn nema
við lifum í samfélagi við Guð og
opnum fyrir áhrif hans inn í líf
okkar. í þessu felst gildi bænar-
innar fyrir kristinn mann.
Ég hef nú drepið á nokkur
atriði er snerta bæn og bænalíf.
Það er von mín og bæn að þessi
pistill veki einhverja til um-
hugsunar um gildi hinnar
kristnu bænar og hvað það er
að biðja í Jesú nafni.
JL
Málverk Hef veriö beöinn um aö útvega málverk eftir: Ásgrím Jónsson, Jóhannes Sveinsson, Kjarval eöa Jón Stef- ánsson. Haukur Heiðar Innrömmun — málverkasala málverkaviögerðir málverkahreinsun Laufásvegi 69, sími 19992.
XJöföar til X X fólks í öllum starfsgreinum!
eöa 8% ?
Verötrygging veitir vöm gegn veröbólgu — en hefur þú hugleitt
hversu mikla þýöingu mismunandi raunvextir hafa fyrir arösemi
þina?
Yfirlitiö hér aö neöan veitir þér svar viö þvi.
VERÐTRYGGOUfl SPARNAÐUR - SAMAN8URÐUR A ÁVðXTUN
Verötryggirtg m v lánskjaravísitölu Nafn- vextir Raun- ávöxtun Fjöldi ára til aö tvöf. raungildi höfuðstóls Raunaukning höfuöst eftir 9 ár
Veðskuldabréf 3% 8% 9ár 100%
Sparisk ríkissj. 35% 3.7% 19ár 38.7%
Sparisjóðsreikn 1% 1% 70ár 9.4%
100%
Verðtryggð
veðskuldabréf
Dæmi um
raunaukningu
höfuðstóls eftir 9 ár.
Verðtryggð
spariskírtelnl ríkissjóðs
Verðtryggður
sparisjóðsreikningur
Veröbréfamarkaöur
veröbréfaviöskiptum og
ingu án endurgjalds.
hefur vfötæka reynslu
réögjðf og miölar þeirri þekk
GENGIVERÐBREFA
8. MAÍ1983:
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
1970 2. flokkur
1971 1. flokkur
1972 1. flokkur
1972 2. flokkur
1973 1. flokkur A
1973 2. flokkur
1974 1. flokkur
1975 1. flokkur
1975 2. flokkur
1976 1. flokkur
1976 2. flokkur
1977 1. flokkur
1977 2. flokkur
1978 1. flokkur
1978 2. flokkur
1979 1. flokkur
1979 2. ftokkur
1980 1. flokkur
1980 2. flokkur
1981 1. flokkur
1981 2. flokkur
1982 1. flokkur
1982 2. flokkur
Medalávöxtun umfram
3,7—5,5%.
VEÐSKULDABRÉF
MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU:
Sölugengi pr. kr. 100.- Sölugsngi nafn- Ávöxtun
13.400,17 m.v. vaxtir umfram
11.640,07 2 afb./ári (HLV) varötr.
10.095,44 1 ár 96,49 2% 7%
8.558,16 2 ár 94,28 2% 7%
6.095,96 3 ár 92,96 2V4V. 7%
5.615,18 A A-fp A O 4 ár 91,14 2Vi% 7%
3.876,43 3 188 63 5 ár 90,59 3% 7%
w. 1 OO.Uu 2.402,31 6 ár 88,50 3% 7V«%
2.276,17 7 ár 87,01 3% 7%%
1.815,44 8 ár 84,85 3% 7V4%
1.684,01 9 ár 83,43 3% 7%%
1.406,43 10 ár 80,40 3% 8%
1.141,83 896,66 15 ár 74,05 3% 8%
757,49
585,58
427,34
336,08
288,74
214,45
194,71
145,54
varötryggingu
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERDTRYGGÐ:
Sölugangi m.v. nafnvaxti
(MLV)
VERDTRYGGD
HAPPDRÆTTISLÁN
RÍKISSJÓDS ^ö,Ufl•no,
C — 1973
D — 1974
E — 1974
F — 1974
G — 1975
H — 1976
I — 1976
J - 1977
1. fl. — 1981
pr. kr. 100.-
3.340,09
2.872,15
2.021.38
2.021,38
1.339,92
1.224,53
971,46
867,10
186,83
12% 14% 16% 18% 20% 47%
1 ár 59 60 61 62 63 75
2 ár 47 48 50 51 52 68
3 ár 39 40 42 43 45 64
4 ár 33 35 36 38 39 61
5 ár 29 31 32 34 36 59
HLUTABRÉF:
Skeljungur hf. kauptilboð
óskast.
Eimskip hf. kauptilboö óskast.
VerobréfamarkdOur
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavik
Iðnaóarbankahú*' "> Simi 28566