Morgunblaðið - 08.05.1983, Page 42

Morgunblaðið - 08.05.1983, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 + Sonur okkar og bróöir, JÓHANN MAGNÚSSON, Sólheimum 44, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 26. apríl sl. Útförin hefur fariö fram. Þökkum auösýnda samúö. Foreldrar og systkini. Í Móöir mín, tengdamóöir, amma og langamma, ÞÓRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, mánudaginn 9. maí kl. 13.30. Erla Þóröardóttir, Richard Jónsson, Guörún Richardsdóttir, Þórdfs Richardsdóttir, Ingibjörg Richardsdóttir, Kristinn Dulaney, og barnabarnabörn. Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför fóstur- móöur okkar, ELÍSABETAR KRISTJÁNSDÓTTUR. Hanna María Tómasdóttir, Unnur Jóhannsdóttir. + Alúöarþakkir færum viö öllum þeim, sem auösýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og jaröarför EINARS JÓHANNSSONAR, Hrafnistu. Ragnheiöur Oddsdóttir, Óskar Einarsson, Guórún Hjálmsdóttir, Tryggvi Einarsson, Guðríöur Einarsdóttir, Siguröur Á. Finnbogason, Hjörleifur Einarsson, Anna Dóra Haröardóttir, Guöfinna Ríkey Einarsdóttir, Magnús Gunnlaugsson, Dagný Elsa Einarsdóttir, Þóröur M. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýhug viö andlát og útför INGVARS JÓNSSONAR, Hrafnistu. Kjartan Jónsson. + Þökkum samúö og vinarhug viö andlát og útför ÓLAFARJÓNSDÓTTUR, frá Katanesi, til heimilis aó Vallholti 17, Akranesi. Aöstandendur. + Einlægar þakkir fyrir samúö og vinsemd viö andlát og útför mannsins míns og fööur okkar, STEFÁNS PÉTURSSONAR, útgeröarmanns fré Húsavfk. Katrfn Júlfusdóttir, Júlfus Stefánsson og fjölskylda, Pátur Stefánsson og fjölskylda. + Eiginkona mín og móöir okkar, GYDA EGGERTSDÓTTIR BRIEM, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 10. maí kl. 13.30. Páll Kristinn Maríusson, Katrín Héöinsdóttir, Ásthildur Guömundsdóttir. Guðmundur Bjarna- son — Minningarorð Fæddur 16. ágúst 1922 Dáinn 26. aprfl 1983 Lítt bauð mér í grun þegar ég hitti Guðmund Bjarnason fyrir skömmu í fermingarveislu dóttur hans, hressan og kátan, að þetta yrði í hinsta sinn sem ég liti þenn- an fornvin lífs. Hann hafði að sönnu átt við erfiðan sjúkdóm að stríða undanfarið, gengist undir hættulegar aðgerðir, en líkams- hreysti hans og lífsvilji virtist hafa sigrað. Hann var nýkominn til starfa á ný, var að ráðgera fyrirhugaða ferð til útlanda, skemmtiferð, fylgja konu sinni í náms- og kynningarleiðangri í austurveg, en úr þeirri ferð kom liðinn. Hann varð bráðkvaddur í svefni aðfaranótt 26. apríl sl. í Leníngrad. Þannig er vissulega gott að kveðja að loknum löngum starfs- degi, en ekki er auðvelt að sætta sig við svo ótímabært burtkall þó forlögin ráði. Guðmundur fæddist 16. ágúst 1922 í Álfadal í Önundarfirði, son- ur Bjarna ívarssonar, bónda þar, og konu hans, Jónu Guðmunds- dóttur. Var Bjarni kunnur maður fyrir ritstörf og félagsstarfsemi þar vestra og Jóna alkunn dugnað- ar- og gæðakona. Eignuðust þau 5 mannvænleg börn, Jón Ingiberg, kaupmann og ritstjóra, sem nú er nýlátinn, Guðmund, Elfsabetu, ívar, kennara og Gunnar Rósen- krans, leiktjaldamálara og lista- mann. Auk þess ólu þau hjón upp eina fósturdóttur, Huldu Guð- mundsdóttur, félagsráðgjafa. Árið 1938 brá Árni ívarsson búi vestra og fluttist suður. Bjuggu þau hjón um skeið í Elliðakoti i Mosfellssveit, en fluttust til Reykjavíkur er börn þeirra voru uppkomin og áttu þar heimili til æviloka, síðast í skjóli barna sinna. Guðmundur varð fyrir því áfalli, unglingur, að fá bakveiki, sem lagði hann á sjúkrahús í nærri 3 ár, þau ár sem unglingar vaxa til lærdóms og þroska. En meðfædd hreysti hans vann sigur á þeim sjúkdómi, svo algeran, að hann gerðist brátt eftir hinn mesti hreysti- og íþróttamaður, hávaxinn, spengilegur og afrennd- ur að afli eins og hann átti kyn til. Hann tók oft þátt í langhlaupum og skíðagöngukeppnum og var hamhleypa til vinnu. Skólagangan varð ekki löng, m.a. af fyrrgreindum ástæðum, en þó lagði hann gjörva hönd á margt eins og þeim er títt sem hafa vilja og þrótt til sjálfsbjargar. Það voru mörg handverk sem Guðmundur kunni jafngóð skil á og útlærðir fagmenn. Hann þótti t.d. ágætur múrari og var hinn besti smiður. + Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, GUDMUNDUR I. GUÐMUNDSSON, frá Seli í Holtum, Droplaugarstööum, er andaöist 4. maí í Borgarspítalanum, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 11. maí kl. 16.30. Svavar Guðmundsson, Gunnhildur Snorradóttir, Magnús Guömundsson, Mari Olson, Karel Guðmundsson, Guörún Kristinsdóttir, Guömundur E. Guömundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auösýnda vináttu og samúö vlð andiát móöur okkar, LOVÍSU EDVARDSDÓTTUR, frá Hellissandi. Edvard Oliversson, Sigríöur Oliversdóttir, Valur Guömundsson, Stefán Árni Guömundsson. + Faöir okkar, tengdafaöir, afi, langafi og langalangafi, SUMARLIDI GUÐMUNDSSON, skósmiöur, veröur jarösunginn frá Siglufjaröarkirkju, mánudaginn 9. maí kl. 14. Kári Sumarliöason, Margrét Bogadóttir, Arthúr Sumarlíöason, Hreinn Sumarlióason, Anna Hallgrímsdóttir, Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. + Fööursystir mín, RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR, frá Rauóafelli, andaöist á Heilsuverndarstööinni þann 6. maí. Fyrir hönd aöstandenda. Aöalbjörg Skssringsdóttir. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 Eftir að Guðmundur hafði jafnað sig eftir veikindi unglingsáranna, varð hann stoð og stytta heimilis foreidra sinna og yngri systkina og fékkst við margvísleg störf, oft mörg í senn og vinnudagurinn langur. En lengst starfaði hann hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur og Skógrækt ríkisins, sem verk- stjóri, einkum við störf sem þurfti kunnáttu eða karlmennsku við. Þessu starfi kunni Guðmundur vel. Það var yndi hans að dvelja úti í náttúrunni undir berum himni og fátt er jákvæðara eða veitir lífinu meiri fylling en að hjálpa náttúrunni, iífinu sjálfu i baráttunni við eyðingaröflin. Frístundum sínum, sem ekki fóru til þess að rétta einhverjum vina hans hjálparhönd, þeir voru margir og þær stundir ótaldar, og víst sjaldnast spurt um laun, varði hann á þessum árum til útivistar, íþrótta, veiðiferða, fjallgangna og ferðalaga hérlendis og erlendis. En um fertugt urðu umskipti í lífi hans. Þá kynntist hann ungri menntakonu, Bryndísi Víglunds- dóttur, nú skólastjóra, sem varð hans heilladís og tryggur lífsföru- nautur. Þau gengu í hjónaband á Jónsmessu 1962. Bjuggu þau á ýmsum stöðum í Reykjavík og nágrenni, einnig í Bandaríkjunum, meðan Bryndís var að fullnuma sig í því starfi að létta böl þeirra barna og unglinga er brestur heyrn og mál, en komu sér jafn- hliða upp framtíðarheimili að Markarflöt 33 í Garðabæ. Reisti Guðmundur það hús að mestu leyti með eigin höndum og ber það hagleik hans glöggt vitni, en hús- búnaður vott um næman smekk húsráðenda beggja. Oft hefur verið gestkvæmt að Markarflöt 33, báðum var sú list lagin að gleðja og gleðjast með glöðum, án þeirra hluta er eftir- köstum valda. Guðmundur var margfróður um menn og málefni, minnið var trútt, víðlesinn, a.m.k. í íslenskum bókmenntum, hafði frábærlega skemmtilega frásagn- argáfu og góölátlega kímni. Þau Bryndís eignuðust 2 mannvænleg börn, Grím og Sól- björtu, sem sjá nú á bak ástkær- um föður. Þetta er í örfáum orðum hin ytri saga, en margt er það sem orð fá ei tjáð og ekki er hægt að ræða. Með vanmáttugum orðum þessar- ar kveðju skal þó reynt að tjá þakklæti fyrir ótal samverustund- ir, allt frá því að við bundum vin- áttu er við háðum unglingar okkar einkastríð, mitt í báli heimstyrj- aldar og unnum sigur í það sinn, gegn þeim sem alla sigrar að lok- um, og þakkir fyrir samveru- Legsteinar Framleiðum ótal tegundir legsteina. Allskonar stærðir og gerðir. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASONHF STEINSMHMA SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.