Morgunblaðið - 10.05.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
104. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þingkosningar í
Bretlandi 9. júní
*
Ihaldsflokknum spáö sigri, en hann
nýtur nú stuðnings 45% kjósenda
London, 9. maí. AP.
FRÚ Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, boðaði í dag til
almennra þingkosninga 9. júní nk.
Er það 11 mánuðum fyrr en núver-
andi kjörtímabil rennur út, sem ætti
að vera í maí á næsta ári. Með þessu
er bundinn endi á tveggja mánaða
bollaleggingar um, hvenær þing-
kosningar skuli fara fram, en frú
Thatcher sagði í dag, að það væri í
„þágu þjóðarinnar“ að binda enda á
þá óvissu, sem ríkt hefur.
Tilkynningin um kosningarnar
var birt eftir að frú Thatcher
hafði haldið sérstakan aukafund
með ríkisstjórn sinni og farið síð-
an á fund Elísabetar drottningar í
Buckinghamhöll, en drottningin
ein hefur sem þjóðhöfðingi lands-
ins vald til þess að rjúfa þing sam-
kvæmt formlegri beiðni forsætis-
ráðherrans.
Samtímis því sem tilkynningin
var birt, sendi frú Thatcher per-
sónulega orðsendingar til leiðtoga
stjórnarandstöðuflokkanna,
þeirra Michael Foot, leiðtoga
Verkamannaflokksins, og David
Steel, leiðtoga Bandalags frjáls-
lyndra og sósíaldemókrata, þar
sem þeim var skýrt frá ákvörðun-
inni um kosningar. Foot sagði i
dag, að thaldsflokkurinn fengi
ekki tækifæri til þess að stjórna
áfram eftir kosningarnar og bætti
við: „Ef við gefum frú Thatcher
annað tækifæri, þá verður ástand-
ið í landinu enn verra en það er
nú.“ Síðustu skoðanakannanir
benda hins vegar til þess, að
thaldsflokkurinn fái 45% atkvæða
og 8—13% fram yfir Verka-
mannaflokkinn. íhaldsflokkurinn
hefur nú 35 sæta meirihluta á
þingi, þar sem sitja 635 þingmenn.
Hefur flokkurinn 334 þingmenn,
Verkamannaflokkurinn 239 og
Bandalag frjálslyndra og sósíal-
demókrata 42.
Hin fræga veðmálastofa Willi-
ams Hill hefur þegar byrjað veð-
málastarfsemi vegna fyrirhugaðra
þingkosninga og veðjar hún fjór-
um á móti einum um, að íhalds-
flokkurinn eigi eftir að vinna sig-
ur.
Frú Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, brosir til Ijósmyndara, eftir að hún hafði gengið á fund
Elísabetar drottningar í gær og lagt til, að efnt yrði til ahnennra þingkosninga í landinu 9. júní nk.
Saman á Broadway
FRUMSÝNING á gamanleikritinu „Private Lives" eftir Noel Coward
fór fram á Broadway í New York á sunnudagskvöld með þeim Rich-
ard Burton og Elizabeth Taylor í aðalhlutverkum. Þau hafa tvisvar
verið gift og tvisvar skilið. Leikritið sjálft þykir ekki fjarlægt þeim.
Það fjallar um mann og konu, sem voru gift 1 stuttan tíma en skildu
síðan eftir stormasamt hjónaband. Fimm árum síðan, þegar þau
hvort um sig eru nýgift á nýjan leik, hittast þau á frönsku Rivierunni
á fyrsta kvöldi brúðkaupsferðarinnar. Það er ekki að því að spyrja,
að ástin heltekur þau að nýju og þau hlaupast á brott til Parísar til
þess að halda þar ástarrifrildi sínu áfram frá því áður, en nýju
makarnir elta þau. Meðfylgjandi mynd var tekin eftir sýninguna á
sunnudagskvöld og sýnir Liz Taylor taka við rósum frá Richard
Burton. Varla þarf að orðlengja það, að sýningunni var frábærlega
vel tekið og bæði þóttu þau sýna einstakan leik.
Kafbátaleitin í Svíþjóð:
Rússnesk orð-
sending heyrðist
Stokkhólmi, 9. raaí. AP. ^
SÆNSKI flotinn hélt enn f dag
áfram leit að óþekktum kafbátum í
Sundsvall-flóa, eftir að fjarskipta-
orðsending á rússnesku hafði heyrst
um helgina á þessu svæði. Orðsend-
ing þessi heyrðist í flugturninum á
Midiandaflugvelli við Sundsvall inn-
an um fjarskiptaorðsendingar vegna
flugs á þessu svæði og var upptakan
strax send yfirmanni kafbátaleitar-
innar.
Þessi orðsending á rússnesku
heyrðist nokkrum klukkustundum
áður en sovézkt olíuskip átti að
leggjast að bryggju í Sundsvall.
Skipið átti að halda burt síðdegis í
gær, en brottför þess var frestað
um fjórar klukkustundir vegna
kafbátaleitarinnar. Rússnesku
orðin, sem heyrðust, höfðu ekkert
samhengi sem þykir benda til
þess, að þau hafi verið dulmáls-
orðsending til smákafbáta þeirra,
sem talið er, að séu ennþá inni á
Sundsvall-flóa.
Stern fer í mál
gegn Heidemann
Frankfurt, 9. maí. AP.
TÍMARITIÐ Stern höfðaði í dag
mál gegn blaðamanni sínum,
Gerd Heidemann, og sagði að
maðurinn, sem talið hefði verið
að hefði selt honum hinar fölsuðu
dagbækur Hitlers, væri „senni-
lega ekki til“.
Útgefandi Stern, Henri Nann-
en, sagði í yfirlýsingu að Heide-
mann hefði „bersýnilega fallið í
gildru svindlara og hugsanlega
auðgazt að lokum". Stern mun
hafa greitt 10 milljónir marka
(um 85 millj. kr.) fyrir dagbæk-
urnar, sem Heidemann sagðist
hafa haft upp á í Austur-Þýzka-
landi.
Kona Heidermanns sagði í sím-
tali að hann væri saklaus, en
ekki náðist í Heidemann sjálfan.
Hún kvaðst ekki vita hvað orðið
hefði um það fé, sem hann hefði
fengið fyrir dagbækurnar. Hún
hafði áður gefið í skyn að Heide-
mann hefði fengið dagbækurnar
frá háttsettum austur-þýzkum
embættismanni.
Nannen sagði að ritstjórar
Stern hefðu sett Heidemann úr-
slitakosti þegar í ljós hefði kom-
ið að dagbækurnar væru falsað-
ar til þess að fá hann til að
skýra frá nafni heimildarmanns
síns, þar sem reglan um nafn-
leynd gilti ekki þegar um fölsuð
gögn væri að ræða.
Talsmaður Stern sagði að ekki
væri vitað hvar peningarnir
væru niðurkomnir. „Við höfum
ekki fulla yfirsýn yfir það sem
gerðist, við skiljum það ekki
fyllilega."
Hcidemann skrifaði Klaus
Barbie: sjá bls. 18.
Ustinov hrós-
ar Andropov
Moskvu. 9. maí AP.
YURI Andropov, leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins var ( dag, f
fyrsta sinn frá því að hann kom til
valda, nefndur formaður varnarráðs
ríkisins og þykir þetta eindregið
benda til þess, að hann sé að festa sig
f sessi á kostnað helzta keppinauts
síns um völdin, Konstantins Chern-
enkos. Kemur þetta fram í grein eftir
sjálfan Dimitri Ustinov, varnarmála-
ráðherra Sovétríkjanna, er birtist f
Pravda, málgagni sovézka kommún-
istaflokksins.
í grein sinni ber Ustinov mikið lof
á Andropov fyrir frammistöðu hans
í skæruliðahreyfingunni í heims-
styrjöldinni síðari og segir, að hann
„njóti geysilegrar virðingar hjá her
og flota“. Þykir víst, að með þessari
lofgrein um Andropov nú, hafi Ust-
inov m.a. verið að taka af skarið,
með hvorum hann stendur f valda-
baráttu þeirra Andropovs og Chern-
enkos.