Morgunblaðið - 10.05.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAl 1983
17
Þórshöfn Færeyjum:
Hótel
Föroyar
tekið í
notkun
Imrshöfn 6. júní.
í UPPHAFI þessarar viku var hið
nýja Hótel Föroyar tekið í notkun og
leysir það af hólmi eldra hótel með
sama nafni. 108 herbergi eru í hótel-
inu, sem er um 250 metrar að lengd.
Hótelið stendur ofarlega í útjaðri
Þórshafnar með góðu útsýni yfir bæ-
inn og Nólseyjarfjörð.
Byggingarkostnaður var um 120
milljónir króna og reiknað er með
að fjárhagserfiðleikar verði
nokkrir næstu árin.
Arge
Engin
ákvörðun um
nýtingu
Engeyjar
„ÞAÐ HEFUR ekkert verið ákveðið
með það, en þetta verður landabanki
fyrir borgina," sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri í Reykjavík í samtali við
Mbl., en hann var spurður til hvers
Engey verður nýtt, ef borgin eignast
eyna.
Eins og fram hefur komið í Mbl.
hefur ríkið gert Reykjavíkurborg
tilboð um að afhenda Engey og
landskika í Selási upp í hluta af
skuld ríkisins við borgina, en
skuldin er til komin vegna fram-
kvæmda við sjúkrastofnanir.
Davíð sagði að eyjan væri á
milli 30 og 40 hektarar að stærð og
hægt væri að nýta hana til ýmissa
hluta, en hann benti á að á sínum
tíma hefði verið uppi hugmynd um
að nýta Engey við hafnarfram-
kvæmdir. Hins vegar hefði engin
ákvörðun verið tekin, enda eyjan
ekki eign borgarinnar ennþá.
Afstaða til tilboðs ríkisins verð-
ur tekin á fundi borgarráðs í dag,
þriðjudag.
Hafnarfjöröur:
Fjáröflunar-
dagur hjá
Hraunprýði
Slysavarnadeildin Ilraunprýói í
Hafnarfiröi heldur sinn árlega fjáröfl-
unardag miðvikudaginn II. maí.
Kaffisala verður í húsi félagsins
að Hjallahrauni 9, og Snekkjunni frá
kl. 15.00 til kl. 22.00.
Konur, sem hugsa sér að gefa kök-
ur, komi þeim í húsin fyrir hádegi.
Þá er vinnuhópum bent á að panta
fyrir hádegi.
Merki deildarinnar verða seld eins
og venjulega og fer afhending þeirra
fram í Bæjarbíói frá kl. 9. Sölubörn
eru hvött til að koma og selja merki.
Hraunprýðiskonur vænta þátt-
töku bæjarbúa eins og undanfarin
ár.
(Fréttatilkynning)
Tónleikar í
Háteigskirkju
HLJÓMSVEIT Tónlistarskólans (
Reykjavfk heldur tónleika ( Háteigs-
kirkju í kvöld þriðjudaginn 10. maí kl.
20.30. Stjórnandi hljómsveitarinnar er
Guðmundur Emilsson.
Á efnisskrá er eitt verk, hin svo-
kallaða Stóra C-dúr sinfónia eftir
Schubert. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
BÍLL ÁRSINS 1983
AUDl 100, árgerö 1983 er-
fyrsta fjöldaframleidda bifreið
í heimi, þar sem tekist hefur aö
koma loftviönámi niöur í = Cd-
30 (mælieining loftviðnáms).
Algengasti Cd stuöull á fólks-
bílum er 40-50.
Þessi frábæri árangur hefur
náöst með áralöngum til-
raunum í vindgöngum, sem
leitt hafa af sér hina straumlínu-
löguöu yfirbyggingu, sem búiö
er aö sníöa af öll skörp horn, og
útstæða hluti, eins og t.d. þak-
rennur.
í reynd stuölar þetta að mun
betri eldsneytisnýtingu, minni
hávaöa, sérstaklega viö hraöan
akstur, og meiri stööugleika á
vegi.
AUDl 100 fær sérstaka með-
ferö, allt frá fyrsta framleiðslu-
stigi, til aö standast veörun, ryö
og hverskonar tæringu. T.d. eru
stálplöturnar, sem notaðar eru
í yfirbygginguna húðaðar meö
öflugu ryövarnarefni áöur en
þær eru formaðar, og er þaö
síðan endurtekið á öllum sam-
setningarstigum, allt þar til bif-
reiðin hefur veriö máluð.
Þetta eykur endingu hennar
og um leið verögildi, þegar
kemur aö endursölu.
AUDl 100 er hannaður meö
það í huga aö vel fari um far-
þega og bílstjóra, t.d. er höfuö-
rými og fótarými meira en í
öörum bílum af sambærilegri
stærö. Umgengni um bílinn er
einkar auðveld, vegna þess hve
hurðirnar opnast vel, og íburð-
ur og þægindi í sambandi viö
innréttingu er meiri en áöur,
bæöi hvaö snertir klæöningu
og bólstrun. Farangursrými er
einnig mjög mikiö, eöa = 610
lítrar.
Mælum og öllum stjórnbún-
aöi er vel fyrir komiö og með
það í huga aö bílstjórinn þreyt-
ist sem minnst á löngum leið-
um.
audi 100 er hannaður með
sérstöku tilliti til öryggis far-
þeganna, þannig að, sé um að
ræða högg framaná eöa aftaná
bílinn, láta þeir hlutar fyrst
undan, sem eru framan og
aftan viö sjálft farþegarýmið,
og taka þannig viö meginhluta
höggsins. Farþegar og bflstjóri
eru því í einskonar öryggisbúri,
sem er miklu sterkara en aðrir
hlutar yfirbygginarinnar. Miö-
stýröar hurðalæsingar auka
enn á öryggi farþeganna, og
stuöia aö þægindum, en meö
þeim búnaöi getur bflstjórinn
læst öllum huröum meö einum
hnappi.
í AUDI 100 er eftirfarandi
búnaöur sem leiöbeining og
tæki fyrir ökumann til aö nýta
eldsneytið sem best:
—Orkunýtimælir, sem sýnir
ökumanni stöðugt hvernig
vélin nýtir eldsneytið.
—Gírskiptivísir, sem bendir á
hvaöa gír er hagkvæmast að
nota hverju sinni.
—Sparnaðargír, sem ætlaður er
til notkunar í hraðakstri, viö
góöar aðstæður. Þegar öku-
maður hefur þjálfast í notkun
þessara hjálþartækja, er auð-
velt aö komast yfir 1000 km
vegalengd á einni fyllingu á
bensíngeyminn, sem er ein-
stæöur árangur hjá bíl á borö
Við AUD1100.
Hægt er aö velja um þrjár
geröir af vélum í AUDl 100.
A) 1900 cm3, 100 h.ö., 5
strokka bensínvél meö blönd-
ungi.
B) 2200 cm3,136 h.ö. 5 strokka
bensínvél meö innsþrautun.
C) 2000 cm3,70 h.ö. díeselvél.
audi 100 er framhjóladrif-
inn, sem gerir hann afar stöö-
ugan á hálku og í lausamöl. Meö
aflstýri verður stýring fislétt en
þó rásföst.