Morgunblaðið - 10.05.1983, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983
Bréf frá Heidemann
til Klaus Barbie birt
Bauð honum skammbyssuna sem Hitler
skaut sig með og blóðidrifinn fána nazista
Hans Booms, forstödumadur vestur-þýzka þjóðskjalasafnsins, sýnir eina af
„dagbókunum", sem Hitler á að hafa skrifað en hafa nú verið lýstar falsað-
ar.
Hamborg, 9. maí. AP.
GERD Heidemann, sem komst yfir
hinar folsuðu dagbækur Hitlers
fyrir tímaritið Stern, tilkynnti stríðs-
glæpamanninum Klaus Barbie að
hann ætti skammbyssuna, sem Hitl-
er skaut sig með, minnismiða eftir
hann, málverk og blóðidrifinn haka-
krossfána, sem var notaður í bylt-
ingartilrauninni í Miinchen 1923 að
sögn tímaritsins Bunte.
Bréfið á að hafa verið sent
Barbie 22. ágúst 1981, þegar hann
var enn í Bólivíu. Heidemann
mun hafa boðizt til að afhenda
fánann „áreiðanlegum mönnum“
til varðveizlu. Stern vill ekki stað-
festa hvort bréfið er til.
Heidemann biður Barbie að af-
saka að Stern notaði minnismiða
sína úr heimsókn til hans í Bóli-
víu áður en hann var framseldur
Frökkum. Aðalritstjóri Stern
hefði krafizt að hann afhenti
minnismiðana öðrum blaðamanni
Stern, sem skrifaði grein um
Barbie „út frá nýju sjónarhorni"
eftir handtöku hans. Bréfinu
fylgdu miðar með rithönd Hitlers.
Nazistaveiðarinn Simon Wies-
enthal sagði um helgina að hann
teldi að nazistaleiðtogar í Suður-
Ameríku hefðu skrifað dagbæk-
urnar til að Hitler yxi í áliti.
A-Þjóðverjar hefðu ekki verið við-
riðnir málið: „Þeir hafa engan
áhuga á að hvítþvo Hitler og
v-þýzkir nýnazistar eru of frum-
stæðir til að geta stundað slíka
iðju.“
Áður hafði Bild-Zeitung eftir
Wiesenthal að sömu menn og föls-
uðu brezka pundseðla í stríðinu
hefðu falsað dagbækurnar.
Kona Heidemanns gaf í skyn
um helgina að háttsettur a-þýzk-
ur embættismaður hefði útvegað
honum dagbækurnar. Hann hefði
viljað stórfé, en ekki haft áhuga á
að flýja.
Starfskona Stern sagði „einn
mann“ ábyrgan, en hló og neitaði
þegar hún var spurð hvort hún
ætti við Heidemann. Stern hyggst
segja alla sólarsöguna í næsta
tölublaði.
Stern baðst í dag afsökunar á
svindlinu með dagbækurnar og
sagði að með birtingu falsskjala
hefði tímaritið lent í þeirri að-
stöðu, sem það hefði ekki áhuga á,
að réttlæta nazismann. Sunday
Times hefur beðizt afsökunar á að
hafa tekið mikla áhættu, en neit-
ar ásökunum um ábyrgðarleysi.
Gúnther Schönfield ritstjóri
segir í yfirlýsingu að sú niður-
staða að dagbækurnar séu falsað-
ar sé alvarlegt áfall fyrir tímarit,
sem hafi notið trausts í 35 ár.
„Við skömmumst okkar fyrir að
LÆRIÐ ENSKU
í LONDON
Angloschool er tv ímælalaust einn bcsti skóli sinnar tegundar í
Englandi, búinn öllum nýjustu tækjum í sambandi við kcnnslu.
Angloschool er viðurkenndur af breska ríkinu, sem góður skóli.
Kennslutímar eru 30 á viku. Hringdu og fáðu myndalista og frek-
ari upplýsingar. Pað verða eingöngu sendir 5-10 nemendur frá Is-
landi í hvert tímabil sem sum hver eru að verða fullbókuð.
1. Tíinabil 28. maí - 25. júní 4. Tímabil 29. júlí - 26. ágúst
2. Tímabil 24. júní - 22. júlí 5. Tímabil 28. ágúst - 27. sept.
3. Tímabil 1. júlí - 29. júlí 6. Tímabil 24. sept. - 23. okt.
Allar nánari upplýsingar íyrir MAGNÚS STEINÞÓRSSON
tilvonandi nemendur gefur: Miðbraut 36
170 Seltjamamesi
Sími 23858 (á kvöldin og um helgar)
Getraun
frá Samvinnuferðum- Landsýn og ókeypis
skólagjöld hjá Angloschool í Ixmdon nú í sumar.
Samvinnuferðir-Landsýn og Angloschool hafa nú ákveðið að
bjóða fríar ferðir, uppihald og skólagjöld fyrir nemanda í einn
mánuð vegna þess að yfir 200 Islendingar á öllum aldri hafa farið
í Angloschool og ferðast með miðum frá Samvinnuferðum-Land-
sýn á s.l. ámm.
Allir fyrri nemendur svo og væntanlegir nemcndur nú í sumar
geta tekið þátt í getrauninni. Dregið verður 20. maí lijá Samvinnu-
ferðum-Landsýn.
getraun
1. Hvenær var Angloschool stofnaður? 2. Hvenær var Ferðaskri fstofan □ 196,3 □ 1960 □ 1957 □ 1973 □ 1978 □ 1976
Samvinnuferðir-Landsýn stofnuð?
3. Hvaðheitlrforstjóri Samvinnuferða-Landsýn?
N'afn:
Hcimili: Scndist mcrkt: GETRAUN Somvinnuferðir-Landsýn
Sími: Ansturstræti 12- 101 Rcykjavík
VINNINGUR
Frítt flugfar
með miða
Úrslit bæjar- og sveitastjórnarkosn-
inganna á Spáni:
Stórsigur
sósíalista
Madrid, 9. maf. AP.
ÞÓTT leiðtogar spænskra sósíalista
forðuöust með öllum ráðum að
tengja sigurinn í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningunum sex mánaða
valdatíð sinni var á öllu Ijóst, að
mikil gleði ríkti á meðal þeirra með
úrslitin.
Sósíalistar unnu mikinn sigur í
kosningunum í gær og renndu enn
frekari stoðum undir aldargamla
valdastöðu sína á nær öllum sviðum
stjórnunar í landinu.
Samkvæmt upplýsingum innan-
ríkisráðherra landsins í morgun
hlutu sósíalistar 43,39% allra at-
kvæða. Flokkur hægri manna, Al-
þýðubandalagið, undir forystu
Manuel Fraga, hlaut 26,24% at-
kvæða, kommúnistar hlutu um átta
af hundraði, en flokkur Adolfo Su-
arez hlaut aðeins 1,8% atkvæða.
Þegar 99% atkvæða höfðu verið
talin í landinu hafði sósíalistaflokk-
ur Felipe Gonzales, forsætisráð-
herra, náð hreinum meirihluta í
borgarstjórnum 33 af 52 borgum
landsins og ennfremur í 11 af 13
nýju héraðsþingunum. Kosið var
um 764 sæti á nýju héraðsþingun-
um. Sósíalistar fengu 391 þeirra og
flokkur Fraga 282. Þá héldu sósial-
istar meirihluta sínum í þremur
stærstu borgum landsins, Madrid,
Barcelona og Valencia. Þá náðu þeir
meirihluta í fimm borgum til við-
bótar með stuðningi annarra
flokka.
Flokkur Fraga náði hreinum
meirihluta í 7 borgum og meiri-
hluta með stuðningi annarra flokka
í þremur borgum til viðbótar. Þjóð-
ernisflokkur Baska náði meirihluta
í þremur borgum í Baskahéruðun-
um, eins og reyndar var fyrirfram
búist við og flokkur sjálfstæð-
ismanna á Kanaríeyjum náði meiri-
hluta f Santa Cruz de Tenerife, höf-
uðborg eyjanna.
ERLENT
Viðbragða Sýrlendinga
beðið með eftirvæntingu
ParÍB og Bcirút, 9. maí. AP.
SÝRLENDINGAR hafa nú tekið við
hlutverki ísraela, sem aðalviósemj-
endur Bandaríkjamanna um brott-
flutning erlendra herja frá Líbanon,
en samkvæmt heimildum frá Dam-
askus er óljóst hver viðbrögð Sýr-
lendinga verða.
ísraelar samþykktu tillögur
Bandaríkjamanna um brottflutn-
ing herliðs síns frá Líbanon í öll-
um meginatriðum á föstudag og
því er viðbragða Sýrlendinga beð-
ið með mikilli eftirvæntningu.
Schultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hélt til Damaskus
til viðræðna við Hafez El-Assad,
forseta Sýrlands, en sneri aftur án
þess að hafa náð verulegum
árangri í viðræðunum. Hann
bætti því hins vegar við, að Sýr-
lendingar hefðu ekki skellt á hann
hurðinni og á meðan ástandið
væri þannig væri ekki ástæða til
að örvænta.
Shítar efndu til verkfalla og
róstusamra mótmæla víðs vegar
um suðurhluta Líbanon í dag til
þess að minnast dauða líbansks
námsmanns, sem skotinn var til
bana af ísraelskum hermönnum í
síðustu viku.
Atburðurinn átti sér stað í bæn-
um Zifta, en hermenn ísraela réð-
ust inn í þann bæ og annan, Srifa,
til þess að binda enda á átök, sem
spruttu upp af mótmælaaðgerð-
um.