Morgunblaðið - 10.05.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983
29
Vatnsfalliö til hægri á myndinni sýnir
rásina sem stórvirkar jaröýtur gullleit-
armanna hafa rutt fram fyrir Skeiöará
tveimur km vestan við gamla ósinn
sem einnig sést að hluta á myndinni.
Varnargaröurinn sem lokar nú rennsli
Skeiöarár til hafs um þann ós sést vel
á myndinni en vinstra megin viö varn-
argarðinn liggur Het Wapen van
Amsterdam í sandinum aö áliti leitar-
manna. Breyta varð farvegi Skeiöarár
vegna þess aö áin rann yfir helming
flaksins samkvæmt mælingum vís-
indamanna.
Jón Jónsson jarðfræðingur
hefur unnið við segulmæl-
ingar á strandstað að undan-
förnu og hafa þær mælingar
staðfest fyrri skoðanir leitar-
manna um staðsetningu „gull-
skipsins".
Jarðýturnar sem ruddu
Skeiðará nýjan farveg til hafs
unnu nætur og daga unz leiðin
til hafs var opin, en þá liggur
næst fyrir hjá „gullleitar-
mönnum" að halda áfram við
vegagerðina niður á strand-
stað. Eitthvað mun hafa tafið
björgunarframkvæmdir og
fjárveitinganefnd Alþingis
hefur ekki afgreitt ennþá
ábyrgð þá sem alþingi sam-
þykkti að veita sl. vetur allt
að 50 millj. kr. Björgunar-
menn hafa hins vegar aðeins
farið fram á 12 millj. kr.
ábyrgð. Reiknað er með af-
greiðslu fjárveitinganefndar
á næstu dögum.
Átta menn vinna nú að
undirbúningi björgunar
„gullskipsins" á Skeiðarár-
sandi, en sl. laugardag kom 10
hollenzkir blaðamenn í heim-
sókn á strandstað og kynntu
sér starf leitarmanna. Hol-
lenzkir fjölmiðlar fylgjast vel
með gangi mála enda hefur
Amsterdam-sjóðurinn svo-
kallaði sýnt mikinn áhuga á
að kaupa skipið ef það næst
upp heillegt á skrokkinn, en
talið er víst að yfirbyggingin
sé öll ónýt.
— á.j.
Myndin sýnir hinn nýja ós Skeiöarár, en ýtan er fram viö sjó ( ósnum að opna
hann þar. Miklu magni af sandi var rótaö til eins ©g sjá má til að opna ósinn.
Hollenzkir blaöamenn og íslenzkir fylktu liði á Skeiöarársand um sl. helgi, en
myndin er tekin af þeim í hópi forsprakka gullleitarmanna. Ljósmynd Ární Johnwn.
Víðir semur við bandarískt fyrirtæki:
Stærsti samningur
íslenzks húsgagna-
fyrirtækis erlendis
TRÉSMIÐJAN Víöir geröi mjög stóran samning um sölu á húsgögnum í
barnaherbergi, sem fyrirtækiö kynnir hér á sýningunni, en kaupandinn er
stórt bandarískt fyrirtæki, sem sérhæfir sig í sölu húsgagna í barnaherbergi
og ööru tilheyrandi barnaherbergjum, að sögn Jens Péturs Hjaltested hjá
l'tflutningsmiöstöö iönaöarins, sem staddur er á alþjóðlegu húsgagnasýning-
unni í Bella Center í Kaupmannahöfn um þessar mundir.
Fyrsta sendingin fer til Banda-
ríkjanna í september nk. en í
henni verða um 140 kojur. „Samn-
ingur þess er sá stærsti sem ís-
lenzkt fyrirtæki í húsgagnaiðnaði
hefur gert hingað til. Auk þessar-
ar sölu voru 40 barnakojur seldar
til annarra fyrirtækja í Banda-
ríkjunum," sagði Jens P. Hjalte-
sted.
Sófasett frá Víði er nú sýnt í
fyrsta sinn á húsgagnasýningu
erlendis og vakti það verðskuldaða
athygli, en 8 sett seldust strax
fyrsta daginn.
Hinni árlegu húsgagnasýningu í
Bella Center lauk um helgina, en
um 11.500 innkaupendur komu
þangað að þessu sinni. Tvö íslenzk
fyrirtæki sýndu framleiðslu sína
auk Víðis, Axel Eyjólfsson hf. og
Ingvar og Gylfi.
Auk þess sem barnahúsgögn
Víðis fengu góðar viðtökur, vöktu
húsgögn Axels Eyjólfssonar hf.
verðskuldaða athygli, en þau voru
sérstaklega hönnuð fyrir sýning-
una. „Ummæli blaðamanna og
húsgagnaarkitekta voru mjög
jákvæð og vakti það athygli
þeirra, að slík húsgögn kæmu frá
Islandi. Sama má segja um
svefnherbergishúsgögnin frá
Ingvari og Gylfa, en þeir seldu á
sýningunni sett, sem sérstaklega
voru hönnuð fyrir sýninguna,
Hönnun ’82, á Kjarvalsstöðum á
sl. sumri," sagði Jens Pétur
Hjaltested.
Mezzoforte f Hollandi:
Breiðskífan komin
upp í sjöunda sætið
Hljómsveitin Mezzoforte heldur áfram aö klifra upp vinsældalistana i
Hollandi. Þegar listarnir voru birtir í hollenska sjónvarpinu á sunnu-
dagskvöld kom í Ijós, aö stóra platan „Surprise, Surprise" hafði lyft sér upp
um tvö sæti, úr 9. í 7. sæti, en sú litla var áfram í 10. sæti smáskífulistans.
Þessa dagana er verið að leggja
síðustu hönd á nýja tveggja laga
plötu Mezzoforte. Aðallag hennar
er „Rockall" og verður plötunni
dreift til fjölmiðla og plötusnúða í
þessari viku. Opinber útgáfudagur
í Englandi er 20. maí. Þá verður
platan gefin út í Hollandi sama
dag.
Fimmmenningarnir í hljóm-
sveitinni halda utan 17. þessa
mánaðar og viku síðar eru fyrstu
tónleikar Mezzoforte í Hollandi.
Þá tekur við 7 vikna tónleika-
ferðalag um Bretlandseyjar.
Eins og skýrt var frá í Mbl. fyrir
nokkru munu meðlimir hljómsv-
eitarinar, svo og Steinar Berg, for-
stjóri Steina hf., flytjast búferlum
til Englands í þessum mánuði og
er ætlunin að dvelja þar í a.m.k. 6
mánuði og lengur ef vel gengur.
Cavalleria Rusticana
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Pietro Mascagni var sérkenni-
legur tónlistarmaður. Hann naut
meiri vinsælda sem tónskáld en
dæmi eru til, en galt fyrir sam-
stöðu sína við itölsku fasistana
og lauk ævi sinni í fátækt og
vinalaus árið 1945. Mascagni
samdi Cavalleria Rusticana á
þremur mánuðum og var viss um
að verkið væri ómögulegt og
hafði reyndar ákveðið að senda
það ekki í samkeppni Zonzogno-
útgáfufyrirtækisins. Eiginkona
hans sendi handritið án hans
vitundar og var uppfærsla óper-
unnar einstæður atburður, því
höfundurinn var kallaður fram
fjörutíu sinnum.
Mascagni samdi yfir fimmtán
óperur, sem margar hverjar
voru aðeins sýndar einu sinni og
þykja þær flestar ótrúlega miklu
lakari verk en Cavalleria Rustic-
ana, sem margir telja svo vin-
sælt vegna þess að tónlistin er
nánast eins og ítölsk alþýðutón-
list. Leikurinn gerist í litlu þorpi
á Sikiley, nánar tiltekið fyrir
framan þorpskirkjuna. Sviðið er
fallega unnið af Birgi Engil-
berts, en undarlega notað af
leikstjóranum, Benedikt Árna-
syni, sérstaklega í upphafi
verksins, þar sem einstaka pers-
ónur sjást skjótast fyrir horn.
Ingveldur Hjaltested söng hlut-
verk Santuzzu og gerði margt
nokkuð vel. Raddstyrkur hennar
er slíkur að trúlega ætti Wagner
vel við söngtækni hennar. Henni
lætur og vel að túlka trega og
hamslausar tilfinningar sem er
aðalsmerki „dramatískra" söng-
kvenna. Constantin Zaharia
söng Turiddu en hann er rúm-
enskur stórsöngvari. Það er auð-
heyrt að hann er kraftmikill
söngvari, þó nokkuð mætti
merkja, að íslenska vorkvefið
truflaði hann. Samleikur Ing-
veldar og Zaharia var sannfær-
andi en Ingveldur hefði mátt
taka meira á i heitstrenging-
unni. Halldór Vilhelmsson söng
Alfio ágætlega, en náði ekki að
túlka bæði glaðværð hans og
umskipti þau er hann fyllist
heift og hefndarhug til Turiddu.
Bæði í söng og leik Halldórs er
svo margt ofgert að þegar draga
þarf fram sterkar áherslur í leik
og söngtúlkun, er búið að eyða
mesta púðrinu. Sólveig M. Björl-
ing söng Luciu mjög fallega og
Sigríður Ella Magnúsdóttir söng
Lolu, örlagavaldinn í lifi Turi-
ddu á sannfærandi máta. Þjóð-
leikhúskórinn kemur nú fram að
hluta til endurnýjaður og söng á
köflum fallega en ekki af jafn
miklu öryggi og áður. Sinfóníu-
hljómsveit Islands lék undir ör-
uggri stjórn Jean-Pierre Jacuill-
at. Eftir hlé var sýndur ballett-
inn Fröken Júlíla, sem Birgit
Cullberg samdi eftir samnefndu
leikriti Strindbergs, við tónlist
eftir Ture Rangström.
Ballettinn í heild er mjög
skemmtilegur og var frammi-
staða Ásdísar Magnúsdóttur og
Niklas Ek stórkostleg. Um ball-
ettinn verður fjallað sérstaklega
af gagnrýnanda blaðsins, Lilju
Hallgrímsdóttur.