Morgunblaðið - 10.05.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983
45
„Ég skora á launafólk að fylgjast nú
▼el með og bera saman vinnubrögð
verkalýðsforkólfanna síðastliðin
fimm ár, sem þeir hafa verið við
völd, við vinnubrögðin sem áður
voru viðhöfð. Ég minni á verkföll,
útflutningsbann og fleiri óraunhæfar
aðgerðir."
beita launþegum í pólitískri ref-
skák? í mínu verkalýðsfélagi hefur
oft verið rætt um kaupskerðingu
sem átt hefur sér stað hvað eftir
annað undanfarin ár. Niðurstaðan
hefur alltaf verið sú, að það hefur
enginn haft efni á að fara í verk-
fall, því að launin hafa ekki dugað
nema frá degi til dags. Þannig er
nú komið fyrir launþegum þessa
lands eftir fimm ára setu vinstri
manna í ríkisstjórn, sem hafa þó
ft við orð að þeir væru „verndar-
Eftir fimm ára stjórn-
arsetu vinstri manna
Marta Halldórsdóttir skrifar:
„Er ég hugleiði kosningaúrslitin,
kemur sú spurning upp í huga mín-
um, hvort búið sé að deyfa alla
sjálfsbjargarviðleitni fólks. Allir
eru sammála um, að efnahagsvandi
þjóðarinnar sé mikill og að þetta
geti ekki gengið svona lengur, end-
ar nái ekki saman. Ráðstöfunarfé
fólks til að byggja sína afkomu á
hefur verið skert svo, að unga fólk-
ið stendur uppi ráðalaust. Áður var
það svo, að menn og konur gátu
tryggt sér sæmilega afkomu með
auknu vinnuálagi. Nú er svo komið,
að eftir því sem maður leggur meiri
vinnu á sig, því meiri skatta verður
að greiða. Þá kem ég að því sem ég
óttast mest: Sjálfsbjargar viðleitni
fólks er kæfð í fæðingu, enda er
uppgjöf unga fólksins komin á
hættustig. Allir forustumenn í
stjórnmálum, hvar í flokki sem
þeir annars standa, eru sammála
um að vandi þjóðarbúskaparins sé
geysilegur, 100% verðbólga,
atvinnuvegirnir að hruni komnir,
atvinnuleysi á næsta leiti og er-
lendar skuldir aldrei verið meiri.
Þó kemur forsætisráðherrann fram
fyrir þjóðina í fjölmiðlum, sigri
hrósandi, og segir það sigur útaf
fyrir sig að hafa haldið þessari rík-
isstjórn saman. Þriggja flokka
stjórn, segir hann. Öllu má nú nafn
gefa. Nei, Gunnar Thoroddsen og
hans fylgisveinar hafa engan
vanda leyst.
Allir virðast vera sammála um,
að breytingar sé þörf á stjórnkerf-
inu. Enn hafa slagorð óábyrgra
manna hrætt fólkið. 1978 voru
slagorðin „Samningana i gildi,“
„Höfnum kaupránsflokknum". All-
ir vita framhaldið. Nú, 1983, koma
aftur innantóm slagorð: „Varið
ykkur á hægri öflunum".
Hvað framundan er getur enginn
spáð um. En eitt er víst, að stór
hópur fólks trúir því, að Alþýðu-
bandalagið verði að vera í ríkis-
stjórn, annars verði enginn vinnu-
friður. Það leynir sér ekki að Guð-
mundur J. er að opna augun og
hlakkar nú til að láta til sín heyra
um baráttu fyrir bættum kjörum
launafólks, ef svo vildi nú til að
Alþýðubandalagið yrði ekki í ríkis-
stjórn. Ég skora á launafólk að
fylgjast nú vel með og bera saman
vinnubrögðin sem áður voru við-
höfð. Ég minni á verkföll, útflutn-
ingsbann og fleiri óraunhæfar að-
gerðir. Nú sjá allir að flokkur, sem
ætlar sér það vald að stjórna öllum
verkalýðsfélögum á landinu sér til
framdráttar, er hættulegt afl í ís-
lensku þjóðfélagi. Launþegar vita,
að fleiri krónur eru ekki sama og
aukinn kaupmáttur. Ef hægt er að
koma verðbólgunni niður og af-
nema tekjuskatt á meðaltekjur, þá
yrði það mikil kjarabót.
Eigum við von á því í næstu
kjarasamningum verkalýðsfélag-
anna að óábyrg forysta fái enn að
ar þeirra sem minnst mega sín“.
Skiptar skoðanir manna eiga rétt
á sér. Nú hefur Geir Hallgrímssyni
verið falið að mynda ríkisstjórn.
Ég leyfi mér að vitna í grein í DV
þann 29. apríl ’83. Þar skrifar
Svarthöfði um stjórnarmyndunar-
tilraun Geirs Hallgrímssonar sem
nú stendur yfir: „Góðar óskir skulu
fylgja honum í þeirri tilraun, sem
fyrir dyrum stendur. Tuttugu og
þriggja kónga flokkur hans verðu
að koma með viðhlítandi skýringa
ætli hann með einhverjum hætti ai
setja fótinn fyrir formann sinn, þv
sama er hvaða hugmyndir það eru
sem menn hafa gert sér um for
manninn bæði innan flokks o)
utan, þá er það víst að enginn er i
þessari stundu jafnfær um a<
koma einhverju hripi á flot landint
til bjargar.
Um aðra flokka skal það sagt, a<
annað er að vinna kosningar á mis
jafnlega haglegum faguryrðum ei
ætla sér að standa frammi fyri
verkefnum, sem krefjast mikilla
dómgreindar og lítils kjaftæðis."
Sjálfstæðismenn, minnumst þes
að á landsfundi Sjálfstæðisflokks
ins var Geir Hallgrímsson kosin
formaður af meiri hluta þing
fulltrúa sjálfstæðisfélaga um lan
allt. Stöndum nú öll saman og gel
um formanni okkar þann styrk ser
hver formaður þarf á að halda
erfiðum tímum.“
Alltaf fengið góða og
þægilega afgreiðslu
venjulegt frárennsli, þ.e. í sjóinn,
en sá sem spurði hafði séð starfs-
mann bensínstöðvar viðhafa slíkt.
Það er skýrt tekið fram í reglu-
gerð frá 1970, að óheimilt er að
losa olíu og sjó, þannig að sé rétt
frá greint, hefur þarna verið um
ólöglega aðgerð að ræða hjá
starfsmanninum. Nú hafa olíufé-
lögin verið mjög virk í að safna
úrgangsolíu og tekið á móti henni
og þá vaknar sú spurning, hvort
viðkomandi starfsmaður hafi ver-
ið það illa upplýstur, að honum
hafi verið ókunnugt um þetta.
Þetta kemur mér dálítið spánskt
fyrir sjónir vegna þess að Sigl-
ingamálastofnun, sem haft hefur
almennt eftirlit með olíumengun
hér, hefur verið að ræða um það
við olíufélögin að setja upp geyma
við olíustöðvarnar, sem fólk gæti
sjálft losað úrgangsolíu í. Hug-
myndin að baki þessu er sú að
koma til móts við þá, sem skipta
sjálfir um olíu á bílum sínum. Slík
úrgangsolía er mjög mengandi, en
hins er að gæta, að hún er einnig
mjög verðmæt. Það er hægt að
nota hana til brennslu, og það er
gert í mjög miklum mæli.
St.N. skrifar: ,
„Velvakandi.
Nýlega var verið að finna að af-
greiðslu starfsmanna Shell við
Laugaveg hér í blaðinu.
Ég vil taka það fram að ég hefi
alveg gagnstæða reynslu af við-
skiptum mínum við starfsmenn
Shell. Ég hef fengið bensín á bíl-
inn hjá Shell við Reykjanesbraut
lengi undanfarið og alltaf fengið
mjög góða og þægilega afgreiðsli
Þeir tóku meira að segja upp á þ\
að reikna út eyðsluna hjá mér. É
gef þeim aðeins upp ekinn kílé
metrafjölda."
•
Velvakanda er ekki kunnugt ur
að fjallað hafi verið um mál þett.
hér í blaðinu.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann kom hér fyrir nokkrum árum síðan.
Betra þykir: Hann kom hér fyrir nokkrum árum.
Eða: Það eru nokkur ár síðan hann kom („síðan" í
eftir „fyrir“ þykir óþarflega dönskulegt.)
Handunnar Olíukolur
í steinleir.
VERÐ AÐEINS
GLIT KR. 148,-& 245,-
Höfðabakka 9,
Reykjavík. S. 85411
TungumáJanámskeið
og feeðslupættir
á
myndböndum
It's Your Turn to Speak
Pættir fyrir þá sem þurfa á tal
æfingum að halda. Tveggja
klukkustunda æfingar fyrir þá
sem hafa byrjendakunnáttu í
ensku. Æfingunum fylgir
kennslubók og æfingabók.
Engineering
Fjölbreyttar æfingar og útskýr-
ingar á ensku iðnaðarmáli t.d.
málvenjum í framleiðsluiðn-
aði. Æfingabók, hljóðkassetta
og myndband sem er
ómetanleg æfing og hjálp
fyrir þá sem þurfa að hressa
upp á enskuna 4 sambandi við
atvinnugreinar i iðnaði og
framleiðslu.
Travel and Tourism
Óvenju skemmtilegar og fjöl-
breyttar æfingar fyrir þá sem
þurfa á ensku máli að halda í
sambandi við ferðir og ferða-
lög. Æfingamar eru til þess
gerðar að liðka upp á talkunn-
áttuna og orðaforðann. Sér-
stök æfingabók, hljóðkass-
etta og myndband.
Sniarbjömlícmsson&fbhf
Hafnarstræti 4 og 9 símar 11936 og 14281
Akureyrarumboð: Bókval