Morgunblaðið - 14.05.1983, Page 7

Morgunblaðið - 14.05.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983 7 Vélavagnar óskast Óskum aö kaupa 2ja og 3ja öxla véla- vagna, svo og sléttan vöruvagn. Upplýsingar í síma 53999. § § HAGVIRKI HF VERKTAKAR VERKHÖNNUN Ferðaleikhúsið auglýsir: Viljum ráöa fólk meö leikhæfileika til aö koma fram í sýningum LIGHT NIGHTS í sumar. Innritun fyrir hæfn- ispróf í síma 19181 frá kl. 19.00 til kl. 20.00. Islands- meistaramóí í hárgreiöslu og hárskurði fer fram í Broadway á morgun sunnudaginn 15. maí kl. 10.00 f.h. — 17.00 e.h. 5 efstu í hverri grein fá rétt til aö keppa á Norður- landamóti. Erlendir dómarar. „Gala dinner“ og verðlaunaafhending um kvöldið í Broadway. Komiö og sjáið spennandi keppni. S.H.H.M. í kvöld Nú er síðasta tækifærið til að sjá þessa stórkostlegu skemmtun með einu hress- asta stuðliði íslands allra tíma í rokkinu fyrr og síðar. Borðhald hefst kl. 19.00 stundvíslega. Fólk vill vinna sig út úr vandanum Séra Bernharður Guð- mundsson vék að því í morgunorðum í útvarpi í gærmorgun, að Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, efndi nú til kosn- inga ári áður en kjörtíma- bil hennar er úti, vegna þess hve staða hennar meðal brezku þjóðarinnar væri sterk. Hann gat þess jafnframt að skoðanakann- anir í Danmörku sýndu Ijóslega, að ríkisstjórn Poul Schliiters þar í landi væri sú vinsælasta frá stríðslok- um. Báðar þessar ríkis- stjórnir ættu það sam- merkt að hafa sýnt ákveðni, stefnufestu og þor til að takast á við þann efnahagsvanda, sem við var og er að glíma, og náð umtalsverðum árangri. Þegar sjúkdómar herja mannslíkama þykir við hæfi að grípa þegar í stað til viðeigandi læknismeð- ferðar, sem við það er mið- uð, að sjúklingurinn nái sem beztum bata á sem skemmstum tíma. Engum blandast hugur um að þjóðarbúskapurinn er meir en lítið sjúkur, enda hrjá hann margvíslegir efna- hagskvillar, sem flestir tengjast sjálfvirkri, keðju- verkandi verðlagsþróun er spunnið hefur sig upp í um 100% verðbólgu. Islend- ingar eru alls ekki blindari á þann vanda, sem stækk- ar dag frá degi og ógnar bæði atvinnuöryggi og efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar, en Bretar og Danir eru á sín vandamál. Framanritað er ekki orð- rétt eftir haft, heldur tæpt á efnisþræði, en meginat- riðið í máli sr. Bernharðs, að íslenzkur almenningur muni styðja nauðsynlegar aðgerðir, sem framkvæmd- ar yrðu af einurð og fyrir opnum tjöldum, er nær sanni. Thatcher Schliiter l*að sem á hefur skort er þor og frumkvæði stjórn- málamanna, sem trúað hefur verið fyrir skips- stjórn á þjóöarskútunni. Erum á síðasta snúningi með mótaðgerðir • Verðbólgan setur æ fleiri fyrirtækjum stólinn fyrir dyrnar um framtíðar- rekstur. Þegar er tekið að brydda á atvinnuleysi — og það þrengir æ meir að útflutningsframleiðslu og samkeppnLsiðnaði. • Verðmætasköpun í þjóðarbúskapnum minnk- ar, þjóðartekjur og lífskjör rýrna. En ríkisútgjöld og skatthcimtan vaxa sem aldrei fyrr. • Verðbólgan hefur þegar brennt upp 65 aura af þeirri nýkrónu, sem upp var tekin í ársbyrjun 1981, miðað við skráð meðal- gengi erlendrar myntar. Og hún heldur áfram að smækka dag frá degi. • Kaupmáttur hvort held- ur er ráðstöfunartekna eða launa samkvæmt taxta rýrnar stöðugt, vegna þess að verðbætur á laun fuðra upp í hraðvirkum skrúfu- gangi launa og verðlags, jafnvel áður en þær koma í launaumslögin. Allir eru umtalsvert verr settir nú en þegar svokallaðir vinstri flokkar hófu stjórnsýslu og „björgunaraðgerðir" 1978. • Innlendur sparnaður hefur hrunið saman, en er- lend skuldasöfnun vaxið yfir öll hættumörk. • Húsnæðislánakerfið hefur verið skekkt og rænt tekjustofnum með þeim af- leiðingum að byggingariðn- aðurinn hefur skroppiö saman og húsnæðiskreppa hefur sagt til sín og sprengt um íbúðaverð, bæði kaup- verð og leigu. • Allir atvinnuvegasjóðir og fjárfestingarsjóðir hafa verið þurrausnir og gjald- eyrisstaða þjóðarbúsins er verri en um langt árabil. Þjóðin vill örugglega að stjórnvöld taki á vandan- um, hafi um það frum- kvæði og forgöngu. Hún er reiðubúin að axla sinn hlut, ef byrðunum er réttlátlega dreift, og ráðamenn koma hreint og umbúöalaust til dyranna. Bráðabirgðaredd- ingar og sýndaraðgerðir duga ekki lengur. Það er ekki hægt að slá vandan- um lengur á frest. Það þarf að gera nógu mikið nógu fljótt — og miða allar mót- aðgerðir við að halda uppi sem hæstu atvinnustigi. Haftasinnar hættulegir Tíminn gerir nýlega aö umræðuefni sölusamning Trésmiðjunnar Viðis á hús- göngnum á erlendan mark- að, sem er með ánægulegri fréttum upp á síðkastið. I því sambandi segir blaðið m.a.: „Haftapostular og einangrunarsinnar halda því einatt fram, að það komi íslenzkum fram- leiðsluatvinnuvegum illa að við tökum þátt í samvinnu þjóða um frjálsa verzlun og alþjóðlegum samtökum um að brjóta niður tollmúra. Þau samtök sem skipta mestu máli í þessu sam- bandi eru EFTA, Alþjóða- tollabandalagið GATT og samningar við EBE. Það sem haftasinnar og þeir sem eru á móti bók- staflega öllum samtökum vestrænna þjóða, nema Norðurlandaráði, virðast seint geta skilið, er að samningar eru gagnkvæm- ir. Því er það að þegar kunnáttumenn f fram- lciöslu og viðskiptum ryðja íslcnzkum framleiðsluvör- um hraut á erlendum mörkuðum njóta þeir góðs af þeim tollaívilnunum sem Islendingar eiga rétt á fyrir sinn útfiutning. Þetta á auðvitað ekki eingöngu við húsgögn, heldur einnig ullar- og skinnavöru og yfirleitt allan útfiutning okkar, þó mest muni um hvaö varöar sjávarafurðir." Glæsilegt úrval af nýjum og notuðum Daihatsubflum Bílasýning og bílamarkaður í dag kl. 10—18. Viö eigum fyrirliggjandi allar geröir af nyjum DAIHATSU CHARADE, CHARMANT og TAFT í fjölbreyttu litaúrvali TIL AFGREIÐSLU STRAX 194.950 DAIHATSUUMBOÐIÐ, ÁRMÚLA 23. 85870 — 81733.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.