Morgunblaðið - 14.05.1983, Page 12

Morgunblaðið - 14.05.1983, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983 Hluti hópsins í hádegisveröarboói í höfuðstöðvum EBE í Bríissel. Ljósm. Mbl. Frída Proppé. Á ráðstefnu í húsakynnum EFTA í Genf. Efnahagsbandalag Evrópu: „Sterkasta aflið til að viðhalda lýðræði í Evrópu “ UNDIRRITUÐ átti þess kost að heimsækja aðalstöðvar EFTA í Genf og Efnahagsbandalagsins í Brussei sl. haust á vegum samtak- anna Viðskipti og verzlun. A báðum stöðunum voru haldnar ráð- stefnur fyrir hópinn þar sem starfsemin var kynnt. I‘að sem vakti hvað mesta athygli og kom a.m.k. sumum á óvart var, hversu gífurlegt veldi Efnahagsbandalagið er á heimsmarkaðinum og þá ekki síður þau víðtæku áhrif sem það virðist hafa stjórnmálalega séð í Evrópu, eða eins og einn viðmælandi minn í aðalstöðvum EBE orðaði það: Efnahagsbandalagið gegnir viðamiklu hlutverki pólitískt séð og líklega er það sterkasta aflið til að viðhalda lýðræði í Evrópu. Gagnstætt við EBE lætur EFTA sig stjórnmál engu varða. „Erum viðskiptabandalag — látum pólitfk í friði“, sagði einn ræðumanna þar. Niðurstaða ferðar þessarar var að mati kaupsýslumanna í hópn- um sú, að mikið andvaraleysi ríki hérlendis gagnvart EBE og höfðu þeir á orði að íslendingar gerðu sér enga grein fyrir áhrifamætti bandalagsins. Viðskipti og verzlun hafa í framhaldi af ferðinni, verið í sambandi við Efnahagsbanda- lagið og n.k. föstudag, 20. maí, gangast samtökin fyrir ráð- stefnu um málefni EBE þar sem þrír fulltrúar frá Efna- hagsbandalaginu flytja fyrir- lestra og svara fyrirspurnum. Ráðstefnan verður auglýst nánar síðar. Hér á eftir verður stiklað á stóru um það sem fram kom í fyrirlestrunum sem hópurinn sat í höfuðstöðvum EBE í Brussel. Móttökur bæði hjá EFTA í Genf og EBE í Brussel voru frábærar og allt gert til þess að gera dvölina þar áhugaverða. Þess má geta að þessi ferð er önnur ferðin í höfuðstöðvar EFTA og EBE sem Viðskipti og verzlun stendur fyrir. Efnahagsbandalag Evrópu er stærsta efnahagsblokk í heiminum í dag með tíu aðild- arþjóðir sem telja hátt í 300 milljónir manna, þar af eru nú um 10 milljónir atvinnulausar. Efnahagsbandalagið hefur höfuðstöðvar sínar í Brussel og af um 10 þúsund starfs- mönnum þess ganga um 7 þús- und til daglegra starfa í aðal- byggingunni í Brussel, en byggingin sjálf gefur þeim er þangað koma í fyrsta sinn strax tiifinningu fyrir veldi og umfangi bandalagsins. Tungu- málum aðildarþjóðanna er gert jafnhátt undir höfði og fer því gífurlegur tími starfs- fólksins í þýðingar og túlkun og mun einn þriðji starfshóps- ins einvörðungu vinna við þau störf. Varla verður hjá því komist að hugsa til smæðar okkar ís- lendinga, þegar setið er undir fyrirlestrum hjá Efnahags- bandalaginu um stöðu mark- aðsmála í heiminum. ísland varðar í dag líklega mest svonefnd bókun 6 sem við höf- um viljað líta á sem samning við EBE. „Þetta er bara bók- un“, svaraði einn fyrirlesarinn spurningunni um hvernig þeir litu á þennan samning og auð- heyrt var á mörgum að þeim finnst við aðeinb vera þiggj- endur en ekki veitendur. Lík- lega er það rétt og þó inn- ganga okkar í EFTA og samn- ingurinn við EBE hafi áreið- anlega veitt nokkurt aðhald í efnahagsmálastefnu innan- lands, svo sem gagnvart hug- myndum um haftastefnu, höf- um við líklega lítið meira að sækja til EBE miðað við óbreytta stefnu þeirra, án þess að þurfa að fórna meiru en við mundum hagnast á. Stærsti viðskiptaaðili EBE eru Bandaríkin og kom fram í fyrirlestrum að áhyggjur fara vaxandi af erfiðleikum í sam- skiptum við þau. Oftast hafa verið erfiðleikar á einhverjum sviðum, en aldrei áður á þeim öllum eins og nú er. Sagði einn ræðumanna að samskiptin hefðu ekki verið eins slæm í 20 ár. Japan hefur síðustu árin Árni Árnason framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins: í frekari samningum þurfum við að láta mikilvæg réttindi Jónína Michaelsdóttir framkvæmdastjóri Viðskipta og verzlunar: Almennt áhugaleysi hérlendis varðandi þessa ríkjasamsteypu „Efnahagsbandalagið er mikið bákn og með fjölda starfsmanna sem vinnur á mörgum tungumál- um. Maður fær þá tilfinningu að það sé þungt í vöfum, en það er óneitanlega mikilvægt, ekki ein- ungis í efnahags- og viðskipta- málum heldur einnig í vaxandi mæli í utanríkismálum. Við þurf- um því að þekkja til bandalagsins og fylgjast með framvindu mála,“ sagði Arni Árnason framkvæmda- stjóri Verzlunarráðs íslands, er Mbl. spurði hann álits á EBE, en Árni er einn þeirra sem fór í EFTA- og EBE-ferðina sl. haust. Þá sagði Árni: „ísland hefur náð mjög mikilvægum fríversl- unarsamningi við bandalagið sem veitir okkur verulegt tolla- hagræði og það þurfum við að vernda. Mér virðist að við getum ekki vænst þess að ná fram hagsmunum okkar betur með aðild að Efnahagsbandalaginu eða með frekari samningum frá því sem við höfum þegar gert. í frekari samningum þurfum við að láta mikilvæg réttindi á móti. Nú eru einnig aðstæður breyttar og ég tel tvímælalaust að við hefðum ekki náð þessum samn- ingum sem við höfum, værum við nú að semja um aðild að EFTA eða um fríverslun við Efnahagsbandalagið. Fríverslunarsamningurinn við EBE veitir okkur aðhald í viðskiptamálum og setur okkur Árni Árnason þau skilyrði að við byggjum upp iðnað okkar í ljósi fríverslunar og á grundvelli raunhæfrar gengisskráningar og eðlilegra starfsskilyrða fyrir iðnaðinn. Þeirri stefnu vérða stjórnvöld að fylgja þegar í alvöru verður farið að vinna að uppbyggingu iðnaðar í landinu." „EFTIR að hafa komist í snert- ingu við Efnahagsbandalag Evr- ópu vildi ég helst senda alla sem hafa eitthvað með viðskipti, fjöl- miðlun og stjórnmál að gera í kynnisferð þangað. Manni bregð- ur þegar maður áttar sig á hvað þarna er á ferðinni og hversu al- mennt áhuga- og skilningsleysi er ríkjandi hérlendis varðandi upp- byggingu, starfsemi og langtíma- markmið þessarar ríkjasam- steypu,“ sagði Jónína Michaels- dóttir, framkvæmdastjóri Við- skipta og verzlunar, en hún var fararstjóri í ferðinni til EFTA og EBE sl. haust. Jónína sagði einnig: „Þetta er feikileg valdastofnun og þeir starfsmenn sem við hittum afar hæfir og meðvitaðir um fram- tíðarmarkmið bandalagsins, sameinaða Evrópu. Ég hef áður bent á í umfjöll- un um EBE, að þjóðir innan bandalagsins eru í vaxandi mæli að grípa til aðgerða sem binda saman og í framtíðinni verður ekki samið við hinar ein- stöku þjóðir, þá verða menn að snúa sér til Brussel. Við erum jaðarþjóð með einhæfa fram- leiðslu og eigum allt undir viðskiptum við aðrar þjóðir. Þess vegna verðum við að fylgj- ast mjög vel með því sem gerist á hverjum tíma á þessum vett- vangi. Með þessu er ég ekki að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.