Morgunblaðið - 14.05.1983, Side 13

Morgunblaðið - 14.05.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983 13 verið eitt helsta utanaðkom- andi vandamál EBE. Japanir hafa í síauknum mæli lagt undir sig markaði í Evrópu og er miklu fjármagni og vinnu varið til að ná meira jafnvægi í viðskiptum við Japan. Við- skiptahallinn við Japan var 8 milljarðar dollara árið 1977, en 12 milljarðar 1981. EBE- menn segja Japani erfiða við- ureignar, þeir séu ekki „int- ernational minded" og efna- hagskerfi þeirra sé mjög lok- að. Sem dæmi nefndu þeir að um tíu þúsund japanskir viðskiptamenn væru staðsettir í Evrópu en aðeins eitt þúsund til fimmtán hundruð evrópskir í Japan. EBE sendir nú um 30 unga athafnamenn á ári í 18 mánuði til Japans. Eru þeir í sex mánuði í tungumálanámi og að kynnast menningunni, en í tólf mánuði í starfi hjá japönskum fyrirtækjum. Rúmlega 70% af fjárlögum EBE fara í landbúnaðarmál. Undir þann málaflokk heyra fiskveiðar og virtist sá mála- flokkur ekki yfirgripsmikill, enda stefna í fiskveiðimálum fyrst mótuð árið 1970. Stefnan virðist helst í því fólgin að veiða einvörðungu innan eigin fiskveiðimarka og þurfa ekki að sækja á fiskimið annarra þjóða. EBE er stærsti innflytj- andi landbúnaðarvara í heim- inum, kornvörur frá Banda- ríkjunum er stærsti liðurinn. EBE hefur lagt mikla áherslu á styrkingu landbúnaðar í að- ildarlöndum sínum. Ræðu- menn gerðu mikið úr hlut bandalagsins varðandi bætta stöðu landbúnaðar, en þó kom á óvart að hlutfallslega virðist svo sem betri afkoma land- búnaðarhéraða kalli sífellt á aukna fjárhagslega styrki. Hér hefur aðeins verið drep- ið á fátt eitt sem fram kom í fyrirlestrum, en þar fyrir utan má nefna að EBE-menn hafa miklar áhyggjur af vaxandi verndar- og/eða styrkjastefnu í heiminum. Um 10 milljónir manna eru atvinnulausir í löndum Efnahagsbandalags- ins og ljóst að lausn þessa vandamáls er ekki auðleyst verkefni. Varðandi markaðs- mál framtíðarinnar varð mönnum tíðrætt um mikil- vægi þriðja heimsins. F.P. Jónína Michaelsdóttir segja að frekari aðild hentaði okkur, heldur aðeins að leggja áherslu á hversu mikilvæg viðskiptin við bandalagið eru og að við eigum að leggja metnað í að þekkja þetta fyrirbrigði, Efnahagsbandalag Evrópu, þannig að við skiljum hvað fréttir sem þaðan berast raun- verulega þýða, þegar til lengri tíma er litið." Erindi um ofnæmi á vinnustöðum Brúðubfllinn af stað MÁNUDAGINN 16. maí hefjast sýn- ingar brúðubflsins. Allir krakkar í Reykjavík þekkja brúðubflinn, en þaö er brúðuleikhús, sem ferðast milli gæsluvalla borgarinnar. Þetta er sjöunda sumarið sem leikhúsið starfar. Keyrt er á milli allra gæsluvalla Reykjavíkurborg- ar, en þeir eru 31 talsins. Hver sýning tekur u.þ.b. xh klukku- stund. Þær Helga Steffensen, sem býr til brúðurnar og Sigríður Hannesdóttir sjá um sýningarnar. Handrit eru eftir þær og einnig stjórna þær brúðunum og ljá þeim raddir sínar, ásamt Þórhalli Sig- urðssyni, sem er einnig leikstjóri. Nikulás Róbertsson sér um tón- listina. Þessi starfsemi, sem er rekin á vegum Reykjavíkurborgar er orð- in fastur liður ár hvert og á mikl- um vinsældum að fagna meðal yngstu borgaranna. Sýningarnar eru miðaðar við börn á aldrinum 2—6 ára og þar er ýmislegt til fróðleiks og skemmt- unar. Börnin taka virkan þátt í sýningunum. (Frétutilkynning) SAMTÖK gegn astma og ofnæmi gangast í dag fyrir fundi um ofnæm- isvaldandi þætti á vinnustöðum og verður hann í Norðurbrún 1 klukkan 14. Þar flytur Vilhjálmur Rafnsson yfirlæknir erindi og Þorsteinn Ö. Stephensen leikari les upp. Samtök gegn astma og ofnæmi, sem er sjálfstæð deild innan SÍBS hefur nýlega byrjað sitt 10. starfs- ár. I samtökunum eru um 650 félag- ar og fer þeim fjölgandi. Helstu verkefni félagsins eru fræðslu-, fjáröflunar- og skemmtistarfsemi, ásamt útgáfu Fréttabréfs. Á sl., ári voru keypt tæki til rannsókna í ofnæmis- og ónæmisfræði fyrir ágóða af Stór-Bingói á vegum skemmtinefndar. Þrír fulltrúar sóttu norræna fundi og þing á veg- um samtakanna sem fram fóru í Noregi og Danmörku. Foreldraráð samtakanna undir forystu Stefáns ólafssonar gekkst fyrir þjálfunarnámskeiðum að Reykjalundi fyrir astma- og of- næmisveik börn, einnig var skipu- lögð og farin ferð, sl. sumar, til Benidorm, til heilsubótar. Helstu ný framtíðarverkefni samtakanna eru m.a.: — Baráttan við reykingar, sérstaklega á vinnu- stöðum og í almennum samgöngu- tækjum en samtökin hafa ný ný- lega lagst á sveif með öðrum nor- rænum astma- og ofnæmissam- tökum um að skora á öll norrænu flugfélögin að leyfa ekki reykingar í flugvélum sínum t.d. í innan- landsflugi eða í flugferðum sem vara skemur en 1,5—2 klukku- stundir. Stjórn samtakanna skipa: Har- ald S. Holsvik form., Lúðvík B. Ögmundsson varaform., Thelma Grímsdóttir gjaldk., Ingibjörg Sigmundsdóttir ritari og Björn Magnússon læknir. Varastjórn skipa Hannes B. Kolbeins og Stef- án ólafsson. Fráfarandi formaður SAO Andrés F. Sveinsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Áskriftarsíininn er 83033________ WESTON POINT , BIRMINGHAM FELIXSTOWE* LONDO höfná Vikulegar siglingar til Immingham Eimskip hefur nú hafið vikulegar siglingar til Immingham á Bretlandi, nýrrar hafnar sem í sívaxandi mæli gegnir lykilhlutverki í öllum flutningi frá Humbersvæðinu. Þannig spörum við íslenskum inn- og útflytjendum bæðitímaog kostnað, varan fer beint um borð í ekjuskip og er komin til áfangastaðar á örfáum dögum, - milliðliðalaust. Nú siglum við vikulega til Felixstowe og lmminghamogá2javiknafresti til Weston Point. Vikulegur flutningur frá þjónustuhöfnum í London, Leeds og Birmingham og að sjálfsögðu sækjum við eða sendum heim á bæjarhlað hvar sem er í Bretlandi. Felixstowe London M.G.H. Ltd. McGregor Cory Cargo Services Trelawny House Unit 2 The Dock, Felixstowe Fairview Estate Suftolk IP 118TT Gascoigne Road Sími: 0394-285651 Barking Telex: 98557 Essex, IG11 7NQ Sími: 01-594-7171 Telex: 896416 Immingham Leeds M.G.H. Ltd. Archbold Freightage Ltd. Dock Office Alberl Road Immingham Dock Morley Sími: (0469) - 72261 Nr Leeds, LS 27 8TT Telex: 527451 Sími: Morley 538716 Telex: 557555 Weston Point Birmingham C. Shaw Lovell and Sons Ltd. Guymers (Transport) Ltd. I Dockside Ten Acres Weston Point Docks Station Road I Runcorn Cheshire, WA 7 4HG Rushall Simi: 09285-75945/6/7 Staffs | Telex: 629205 Sími: 0922-24651 1 Telex: 336663 P Flutningur er okkar f ag EIMSKIP Sími 27100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.