Morgunblaðið - 14.05.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
13
verið eitt helsta utanaðkom-
andi vandamál EBE. Japanir
hafa í síauknum mæli lagt
undir sig markaði í Evrópu og
er miklu fjármagni og vinnu
varið til að ná meira jafnvægi
í viðskiptum við Japan. Við-
skiptahallinn við Japan var 8
milljarðar dollara árið 1977,
en 12 milljarðar 1981. EBE-
menn segja Japani erfiða við-
ureignar, þeir séu ekki „int-
ernational minded" og efna-
hagskerfi þeirra sé mjög lok-
að. Sem dæmi nefndu þeir að
um tíu þúsund japanskir
viðskiptamenn væru staðsettir
í Evrópu en aðeins eitt þúsund
til fimmtán hundruð evrópskir
í Japan. EBE sendir nú um 30
unga athafnamenn á ári í 18
mánuði til Japans. Eru þeir í
sex mánuði í tungumálanámi
og að kynnast menningunni,
en í tólf mánuði í starfi hjá
japönskum fyrirtækjum.
Rúmlega 70% af fjárlögum
EBE fara í landbúnaðarmál.
Undir þann málaflokk heyra
fiskveiðar og virtist sá mála-
flokkur ekki yfirgripsmikill,
enda stefna í fiskveiðimálum
fyrst mótuð árið 1970. Stefnan
virðist helst í því fólgin að
veiða einvörðungu innan eigin
fiskveiðimarka og þurfa ekki
að sækja á fiskimið annarra
þjóða. EBE er stærsti innflytj-
andi landbúnaðarvara í heim-
inum, kornvörur frá Banda-
ríkjunum er stærsti liðurinn.
EBE hefur lagt mikla áherslu
á styrkingu landbúnaðar í að-
ildarlöndum sínum. Ræðu-
menn gerðu mikið úr hlut
bandalagsins varðandi bætta
stöðu landbúnaðar, en þó kom
á óvart að hlutfallslega virðist
svo sem betri afkoma land-
búnaðarhéraða kalli sífellt á
aukna fjárhagslega styrki.
Hér hefur aðeins verið drep-
ið á fátt eitt sem fram kom í
fyrirlestrum, en þar fyrir utan
má nefna að EBE-menn hafa
miklar áhyggjur af vaxandi
verndar- og/eða styrkjastefnu
í heiminum. Um 10 milljónir
manna eru atvinnulausir í
löndum Efnahagsbandalags-
ins og ljóst að lausn þessa
vandamáls er ekki auðleyst
verkefni. Varðandi markaðs-
mál framtíðarinnar varð
mönnum tíðrætt um mikil-
vægi þriðja heimsins.
F.P.
Jónína Michaelsdóttir
segja að frekari aðild hentaði
okkur, heldur aðeins að leggja
áherslu á hversu mikilvæg
viðskiptin við bandalagið eru og
að við eigum að leggja metnað í
að þekkja þetta fyrirbrigði,
Efnahagsbandalag Evrópu,
þannig að við skiljum hvað
fréttir sem þaðan berast raun-
verulega þýða, þegar til lengri
tíma er litið."
Erindi um ofnæmi
á vinnustöðum
Brúðubfllinn af stað
MÁNUDAGINN 16. maí hefjast sýn-
ingar brúðubflsins. Allir krakkar í
Reykjavík þekkja brúðubflinn, en
þaö er brúðuleikhús, sem ferðast
milli gæsluvalla borgarinnar.
Þetta er sjöunda sumarið sem
leikhúsið starfar. Keyrt er á milli
allra gæsluvalla Reykjavíkurborg-
ar, en þeir eru 31 talsins. Hver
sýning tekur u.þ.b. xh klukku-
stund. Þær Helga Steffensen, sem
býr til brúðurnar og Sigríður
Hannesdóttir sjá um sýningarnar.
Handrit eru eftir þær og einnig
stjórna þær brúðunum og ljá þeim
raddir sínar, ásamt Þórhalli Sig-
urðssyni, sem er einnig leikstjóri.
Nikulás Róbertsson sér um tón-
listina.
Þessi starfsemi, sem er rekin á
vegum Reykjavíkurborgar er orð-
in fastur liður ár hvert og á mikl-
um vinsældum að fagna meðal
yngstu borgaranna.
Sýningarnar eru miðaðar við
börn á aldrinum 2—6 ára og þar er
ýmislegt til fróðleiks og skemmt-
unar. Börnin taka virkan þátt í
sýningunum.
(Frétutilkynning)
SAMTÖK gegn astma og ofnæmi
gangast í dag fyrir fundi um ofnæm-
isvaldandi þætti á vinnustöðum og
verður hann í Norðurbrún 1 klukkan
14. Þar flytur Vilhjálmur Rafnsson
yfirlæknir erindi og Þorsteinn Ö.
Stephensen leikari les upp.
Samtök gegn astma og ofnæmi,
sem er sjálfstæð deild innan SÍBS
hefur nýlega byrjað sitt 10. starfs-
ár.
I samtökunum eru um 650 félag-
ar og fer þeim fjölgandi. Helstu
verkefni félagsins eru fræðslu-,
fjáröflunar- og skemmtistarfsemi,
ásamt útgáfu Fréttabréfs. Á sl.,
ári voru keypt tæki til rannsókna í
ofnæmis- og ónæmisfræði fyrir
ágóða af Stór-Bingói á vegum
skemmtinefndar. Þrír fulltrúar
sóttu norræna fundi og þing á veg-
um samtakanna sem fram fóru í
Noregi og Danmörku.
Foreldraráð samtakanna undir
forystu Stefáns ólafssonar gekkst
fyrir þjálfunarnámskeiðum að
Reykjalundi fyrir astma- og of-
næmisveik börn, einnig var skipu-
lögð og farin ferð, sl. sumar, til
Benidorm, til heilsubótar.
Helstu ný framtíðarverkefni
samtakanna eru m.a.: — Baráttan
við reykingar, sérstaklega á vinnu-
stöðum og í almennum samgöngu-
tækjum en samtökin hafa ný ný-
lega lagst á sveif með öðrum nor-
rænum astma- og ofnæmissam-
tökum um að skora á öll norrænu
flugfélögin að leyfa ekki reykingar
í flugvélum sínum t.d. í innan-
landsflugi eða í flugferðum sem
vara skemur en 1,5—2 klukku-
stundir.
Stjórn samtakanna skipa: Har-
ald S. Holsvik form., Lúðvík B.
Ögmundsson varaform., Thelma
Grímsdóttir gjaldk., Ingibjörg
Sigmundsdóttir ritari og Björn
Magnússon læknir. Varastjórn
skipa Hannes B. Kolbeins og Stef-
án ólafsson. Fráfarandi formaður
SAO Andrés F. Sveinsson gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
Áskriftarsíininn er 83033________
WESTON
POINT ,
BIRMINGHAM
FELIXSTOWE*
LONDO
höfná
Vikulegar siglingar
til Immingham
Eimskip hefur nú hafið vikulegar siglingar til Immingham
á Bretlandi, nýrrar hafnar sem í sívaxandi mæli gegnir
lykilhlutverki í öllum flutningi frá Humbersvæðinu. Þannig
spörum við íslenskum inn- og útflytjendum bæðitímaog
kostnað, varan fer beint um borð í ekjuskip og er komin til
áfangastaðar á örfáum dögum, - milliðliðalaust. Nú siglum við
vikulega til Felixstowe og lmminghamogá2javiknafresti til
Weston Point. Vikulegur flutningur frá þjónustuhöfnum í London,
Leeds og Birmingham og að sjálfsögðu sækjum við eða
sendum heim á bæjarhlað hvar sem er í Bretlandi.
Felixstowe London
M.G.H. Ltd. McGregor Cory Cargo Services
Trelawny House Unit 2
The Dock, Felixstowe Fairview Estate
Suftolk IP 118TT Gascoigne Road
Sími: 0394-285651 Barking
Telex: 98557 Essex, IG11 7NQ Sími: 01-594-7171 Telex: 896416
Immingham Leeds
M.G.H. Ltd. Archbold Freightage Ltd.
Dock Office Alberl Road
Immingham Dock Morley
Sími: (0469) - 72261 Nr Leeds, LS 27 8TT
Telex: 527451 Sími: Morley 538716 Telex: 557555
Weston Point Birmingham
C. Shaw Lovell and Sons Ltd. Guymers (Transport) Ltd. I
Dockside Ten Acres
Weston Point Docks Station Road I
Runcorn Cheshire, WA 7 4HG Rushall
Simi: 09285-75945/6/7 Staffs |
Telex: 629205 Sími: 0922-24651 1 Telex: 336663 P
Flutningur er okkar f ag
EIMSKIP
Sími 27100