Morgunblaðið - 14.05.1983, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
Útivist:
Fuglaskoðunarferð með Árna
Waag og gengið um gígasvæði
Kl. 13 á sunnudag verda tvær
ferdir á vegum Ferðafélagsins Úti-
vistar. Farin verður fuglaskoðunar-
ferð um Ósa og Hafnaberg í fylgd
með Árna Waag.
Hafnaberg er með aðgengi-
legustu fuglabjörgum landsins þar
sem sjá má flestar tegundir sjó-
fugla. Hin ferðin verður gönguferð
um hið fjölbreytta gígasvæði á
Reykjanestá, þar sem m.a. verður
farið um Stampa og Háleyja-
bungu. Fararstjóri verður Þorleif-
ur Guðmundsson. Vegna ófærðar
er ferð á Krísuvíkurberg frestað
um.hálfan mánuð. Brottför í ferð-
irnar er frá BSÍ, bensínsölu og
einnig verður stansað við kirkju-
garð í Hafnarfirði. Ekki þarf að
panta fyrirfram.
Ferðaféiag íslands:
Gengið á Kálfstinda
Sunnudaginn 15. maí verða tvær
gönguferðir á vegum Ferðafélagsins.
Kl. 10 verður gengið á Kálfstinda,
sem eru í norð-austur frá Þingvöll-
um. Kálfstindar eru 826 m á hæð og
þarna er gott útsýni og þægileg
gönguleið.
Kl. 13 verður gengið frá Tintron,
sem er í austur frá Gjábakka og
um Reiðarbarm og niður Kálfsgil
að Laugardalsvöllum. Þetta er létt
ganga við allra hæfi.
Miðvikudaginn 18. maí verður
kvöldganga frá Hólabúð að Voga-
stapa. Athugið ferðir Ferðafélags-
ins um Hvítasunnuna í augl. um
félagslíf blaðsins.
MorgunblaSið/Sigtr.
„Það er enginn selormur í þessum saltfiski,“ segir listamaðurinn um þessa mynd. Hún er sú stærsta á sýningunni,
2:4 metrar og heitir „Trúin á fiskinn". Sveinn segir að við eigum að trúa á fiskinn og gera hann að góðri vöru. Konan,
sem heldur á saltfiskinum á að sameina íslenzku konuna á stakkstæðunum og madonnuna á Spáni og Portúgal, sem
matbvr fiskinn.
LAPPANA
Sveinn Björnsson listmálari og lögregluforingi heimsóttur í Krísuvík
Göngudagur
fyrir fatlaða
Norræna trimmlandskeppnin fyrir
fatlaða hefur gengið vel fram að
þessu og þátttaka verið góð.
Vinsælustu greinarnar fram til
þessa eru sund, hjólastólaakstur
og ganga. Til þess að auðvelda sem
flestum þátttöku í trimmlands-
keppninni hefur fþróttasamband
fatlaðra ákveðið að efna til sér-
stakra göngudaga og verður sá
fyrsti á morgun, sunnudaginn 15.
maí. Gengið verður frá Sjálfs-
bjargarhúsinu, Hátúni 12, klukk-
an 13.30.
Síðustu Lapplanderbílamir frá Volvo verða seldir
næstu daga á sérstöku verði, aðeins 198.496.00
krónur (gengi 6/5 ’83, óyfirbyggðir). Kristján
Tryggvason, þjónustustjóri Veltis hf. verður með tvo
glæsilega Volvo Lappa í ferð sinni til umboðsmanna
víðsvegar um landið.
Kristján sýnir Lapplander Turbo með vökvastýri,
læstu drifi og innbyggðu spili. Hann kynnir líka
möguleika á stálhúsi auk blæjuhúss. Þetta er
einstakt tækifæri fyrir bændur og aðra fram-
kvæmdamenn, hjálparsveitir og fjallamenn - og alla
þá sem vilja notfæra sér þetta einstæða tækifæri.
Kristján sýnir Lappana:
14. maí Egilsstaðir
15. maí Vopnafjörður -
Bakkafjörður
16. maí Þórshöfn
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
SVEINN Björnsson er um þessar
mundir með stórsýningu á Kjarvals-
stöóum. Hann sýnir þar 100 myndir,
flest olíumálverk. Það þykir alltaf
viðburður þegar Sveinn sýnir, því ferill
hans sem listamanns er ólíkur því sem
menn eiga að venjast. Sem ungur mað-
ur var hann á sjó og var orðinn stýri-
maður á togurum þegar hann söðlar
um og fer í land til þess að geta sinnt
myndlistinni. Hann átti vægast sagt
erfitt uppdráttar lengi vel, fyrirsögn
hjá einum gagnrýnenda á dómi um
fyrstu sýningu Sveins var t.d. „Heimur
versnandi fer“. Og kollegar hans voru
ekki ýkja hrifnir og í mörg ár var hon-
um neitað um inngöngu í Félag ís-
lenzkra myndlistarmanna. En þessi ár
eru nú að baki, Sveinn hefur vaxið
með hverri sýningu og trúr sinni
stefnu hefur hann öðlast viðurkenn-
ingu, eins og nýlegir blaðadómar fær-
ustu gagnrýnenda bera með sér.
Undirritaður kynntist Sveini er
hann ritaði lögreglufréttir hér í
blaðið, en Sveinn hefur um árabil
stjórnað rannsóknarlögreglunni í
Hafnarfirði. Kynnin af rannsókn-
arlögregluforingjanum Sveini
Björnssyni leiddu síðan til kynna af
listmálaranum Sveini Björnssyni.
Báðir eru jafn hressir, í hópi hress-
ustu manna sem maður hittir dags
daglega. Þegar fréttist að Sveinn
ætlaði að opna sýningu var falast
eftir smáspjalli og stefnumót ákveð-
ið í vinnustofu hans í Krísuvík.
Ævintýrahús í
Krísuvík
Það er ævintýri að heimsækja
Svein í vinnustofuna í Krísuvík.
Hann hefur þar yfir að ráða tvílyftu
steinhúsi, sem átti á sínum tíma að
vera íbúðarhús ráðsmanna kúabús,
sem Hafnarfjarðarbær ætlaði að
hafa í Krísuvík. Hætt var við þær
ráðagerðir og húsið var látið grotna
niður. Þegar Sveinn fékk augastað á
því 1974 var húsið gluggalaust og
allslaust og kindur gengu þar út og
inn. Til stóð að rífa húsið en Sveinn
fékk afnot af því og hefur síðan lagt
ómælda vinnu í að gera það upp. Nú
er það orðið mjög huggulegt, eins og
sagt er á vondu máli. Vinnustofur á
neðri hæðinni og íbúð á þeirri efri.
Málverk eru um allt, jafnvel á sal-
erninu! Og þegar málarinn hefur
verið í stuði hefur hann málað fíg-
úrur á hurðir og veggi. Þegar mynd-
irnar eru skoðaðar leynir sér ekki
stíllinn hjá Sveini, hann hefur ekki
breyzt, aðeins þróast í rétta átt. Fíg-
úrurnar eru á sínum stað í mál-
verkinu en fuglinn, sem var svo
lengi ríkjandi er að mestu leyti flog-
inn burtu og fiskur kominn í stað-
inn. „Ég er orðinn jarðbundnari,"
segir Sveinn. Og hann bætir því við
að hann hafi reynt að halda sínum
stfl. „Ég er á móti stórstökkum í
listinni. Eg vil að málverkið sé mál-
verk en ekki ljósmynd.
Ég mála langmest hérna í Krísu-
vík enda uni ég mér hér bezt,“ segir
Sveinn, þegar talið berst að staðn-
um. „Hér er óskaplega fallegt og
mótívin ótæmandi. Ég festi náttúr-
una inn í hausinn og mála hana svo
inni. Ég mála mest á nóttunni og tek
þá miklar tarnir. Ég gleymi mér al-
Sveinn við sjálfsmynd, sem Valtyr Ketursson teiur meo beztu myndum
sýningarinnar á Kjarvalsstöðum. MorgunbiaAi«/RAX.
SYNINGARFERÐ
MEÐ
SÍÐUSTU
„Fólk á að segja
sannleikann, ekki
síst stjórnmálamenn“