Morgunblaðið - 14.05.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983 19
Menntaður
búfræðingur
SUNNUDAGINN 8. maí ritaði
séra Bolli Gústafsson i Laufási at-
hyglisverða grein um gagnfræði.
Þar minnist hann m.a. á ólaf
Jónsson á Akureyri, leiðbein-
ingastörf hans í landbúnaði og rit
um náttúrufræði.
Mig langar til að bæta fáeinum
atriðum við þessa stuttu, en
merku ritgerð, þann hluta hennar,
sem fjallar um ólaf Jónsson.
Ólafur var leiðbeinandi um
landbúnaðarmál, aðallega í Eyja-
firði, í rúmlega 40 ár. Eftir hann
liggur mikið ritað um þau, auk
þeirra merku rita um náttúru-
fræði sem séra Bolli ræðir um.
Ólafur var að vísu hvorki veður-
fræðingur eða jarðfræðingur, svo
sem séra Bolli drepur á. Hann
hafði heldur ekki háskólapróf í
öðrum greinum náttúrufræðinnar
sérstaklega. Hinsvegar vil ég
minna á það, að Ólafur var vel
menntaður búfræðingur, en í allri
búfræði er þáttur náttúrufræði
mjög sterkur og mun meiri en í
flestu öðru skólanámi.
Ólafur Jónsson var útskrifaður
frá Bændaskólanum á Hvanneyri
vorið 1917 og árið 1924 var hann
búfræðikandidat frá Búnaðar-
háskóla Dana í Kaupmannahöfn.
Þetta nám hefur vissulega orðið
honum að miklu gagni við vísinda-
störf hans i náttúrufræði.
Guðmundur Jónsson
frá Hvanneyri.
Stykkishólmur:
78 nemendur við
tónlistarnám í vetur
StykkLshólmi, 9. maí 1983.
Tónlistarskólanum í Stykkishólmi
var slitió í íþróttahúsi grunnskólans,
sl. lostudagskvöld. Hefir hann starf-
að í vetur eða um 8 mánuði á tveim
stöóum í bsnum. Alls voru nemendur
við skólaslit 78 og þar af lærðu 40 á
blásturshljóðfæri, 22 á píanó og orgel
og 6 á gítar.
Skólastjóri er Daði Þór Einars-
son en auk hans voru tveir kennar-
ar, Sigrún Sigurjónsdóttir og Lárus
Pétursson. Daði er einnig stjórn-
andi Lúðrasveitar Stykkishólms.
Við skólaslit komu nemendur
fram með fjölbreytta dagskrá og er
árangur góður eftir veturinn og
hefir skólastjóri nú hug á að hafa
ennþá fjölbreyttara tónlistarstarf
næsta skólaár. Frétt»ritari.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Polaroid
auqnabh'ksmyndir
spara mér stórfél
„Kvikmyndagerð er nákvæmnisvinna, þar sem tíminn
er dýrmætur - þá kemur Polaroid að góðum notum -
þegar við völdum „Húsið" í samnefnda kvikmynd
notuðum við Polaroid..."
Björn Björnsson, leikmyndateiknari.
Polaroid augnabliksmyndir teknar til staðfestingar
og útskýringar, eru nú orðið ómissandi í atvinnulífinu,
hjá ríki og bæ, á rannsóknarstofum, hjá fjölmiðlum, í
kennslu osf.
Polaroid augnabliksmyndir tekur strax af öll tvímæli
og er sönnun þess sem fyrir auga ber, því góð mynd
segir meira en orðin tóm.
Polaroid býður ótrúlegan fjölda augnabliksmynda-
véla, filmur og aðferðir fyrir svo sem varðveislu
ánægjustunda, vísipdalegra uppgötvana, vörukynn-
ingum, tjónamyndatökum osf.
Polaroid er alltaf einföld í notkun og tryggir ávallt
bestu myndgæði.
Hugsaðu þér um hvað Polaroid getur einfaldað og sparað fyrir þig, gert lífið og starfið léttara og
ánægjulegra. Hafðu samband við okkur til skrafs og ráðagerða án skuldbindinga. Viðkomum
gjarnan til þín og sýnum þér hversu auðvelt er að taka góðar augnablikmyndir með Polaroid. -
Þú munt ekki sjá eftir því.
Polaroid
Einkaumboð: Ljósmyndaþjónustan hf., Reykjavík.
Laugavegi178 - Simi 85811 - PO Box 5211-125 Reykjavik
Má bjóða þér að reynsluaka
Við kynnum nýja og notaða
Toyota bíla á frábæru verði...
OPIÐ FRÁ KL. 10-16 í DAG.
• Sjón er sögu ríkari
• Reynsluakstur er enn betri
ve\\a
\jaoo^0\a
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI 44144