Morgunblaðið - 14.05.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ1983
21
Póstkort og
litskyggnur
Þjóðminjasafns
NÝLEGA eru komin út fimm póst-
kort i vegum Þjóðminjasafns ís-
lands, fjögur endurútgefín og eitt
nýtt. Er nýja kortið með mynd af
glitofnu söðuliklæði fri fyrri hluta
19. aldar sem talið er ofíð af Krist-
ínu Vigfúsdóttur, systur Bjarna
Thorarensen. Á hinum fjórum eru
myndir af Þórslíkneskinu svonefnda
fri Eyrarlandi, Valþjólfsstaðarhurð-
inni, og olíumilverkum af Reykjavík
1862 eftir A.W. Fowles og kvöld-
vöku í íslenskri baðstofu eftir H.
Aug. G. Schjatt.
Þjóðminjasafn íslands hefur um
árabil gefið út póstkort af munum
og myndum í eigu þess, en Sólar-
filma annast framleiðslu þeirra
fyrir safnið. Eru kortin prentuð
hjá Grafík hf. Alls eru kort þessi
nú orðin 33 að tölu, og fást þau hjá
safninu bæði i smásölu og heild-
sölu.
Þá hefur Þjóðminjasafn íslands
einnig um alllangt skeið haft til
sölu fimm sex mynda litskyggnu-
flokka með myndum af safngrip-
um. Eru litskyggnur þessar einnig
unnar sérstaklega fyrir safnið af
Sólarfilmu.
(Frá Þjóáminjasafni fslands)
Nemendafagn-
aður MR
ÁRLEGUR stúdentafagnaður
Nemendasambands Menntaskól-
ans í Reykjavík verður haldinn að
Hótel Sögu 27. maí, daginn eftir
skólauppsögn. Nýstúdentar og
nemendur úr afmælisárgöngum
hafa forgang að þátttöku.
Nú er einstakt tækifæri
til að eignast nýjan
BMW
Við seljum síðustu bílana af BMW
árgerð 1982 á ótrúlega hagstæðu verði
BMW315
Verö nú kr. 264.500.-
Annars kr. 305.000.-
BMW 318 i
Verö nú kr. 316.500.-
Annars kr. 386.000.-
BMW316
Verö nú kr. 291.000.-
Annars kr. 353.000.-
BMW 320
Verö nú kr. 346.500.-
Annars kr. 432.000.-
BMW518
Verö nú kr. 347.000.-
Annars kr. 415.000.-
BMW 520 i
Uppseldur
Annars kr. 484.000.-
Missið ekki af þessum hagstæðu kaupum, og tryggið ykkur bíl sem fyrst.
Seljum nýja og notaða bíla laugardaga kl. 1-5.
KOIV IIÐ OG REYNSLUAKIÐ BMW 518.
KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Rafiðjan - Ignis
hefur flutt sig um set.
Opnum í dag nýja verslun í Ármúla 8
(hús Bláskóga).
Veriö velkomin aö skoöa úrval kæli- og frystitækja frá hinum
heimsþekktu Ignis-verksmiöjum
á aldeilis ótrúlegu kynningarveröi.
Rafiðjan — Ignis Ármúla 8.