Morgunblaðið - 14.05.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAt 1983
23
Skoðanakönnun á vegum Jyllandsposten:
Draumur flestra
Dana hnattferð
Kaupmannahöfn, 13. maí. AP.
DRAUMUR flestra Dana er aö
komast í árlegt sumarleyfi erlend-
is, fara í hnattferð og eiga a.m.k.
10.000 krónur í banka. Þetta voru
m.a. niðurstöður skoðanakönnun-
ar, sem gerð var og birt í gær.
Könnun þessi var unnin af
Observa-fyrirtækinu fyrir
dagblaðið Jyllandsposten, eitt
stærsta dagblað Danmerkur. I
skoðanakönnun þessari kom
einnig í ljós, að æ fleiri Danir fá
þessar óskir sínar uppfylltar.
Hnattferðin er þó enn aðeins á
færi fárra. Flestum er hún að-
eins fjarlæg draumsýn.
Fjórðungur allra aðspurðra
fer í sumarleyfi erlendis ár
hvert. Þegar sambærileg könnun
var gerð fyrir 14 árum fóru að-
eins 12% aðspurðra í árlegt
sumarleyfi erlendis.
Þá hafði rétt rúmur helming-
ur þátttakenda í könnuninni
komið sér upp æskilegri banka-
innistæðu og er það veruleg
breyting frá eldri könnuninni.
Þá kváðust aðeins 14% að-
spurðra eiga æskilega banka-
innistæðu.
Sjónvarpstæki eru greinilega
það, sem flestum hefur tekist að
komast yfir á óskalistanum. Nú
áttu 76% þátttakenda sjón-
varpstæki, en aðeins 1% fyrir 14
árum. Tíundi hluti þeirra, sem
var spurður, stóð fast á þeirri
skoðun, að eignast aldrei sjón-
varpstæki.
Anna Bretaprinsessa sést hér á tali við lækni í búðum afganskra flóttamanna
í Pakistan, en þar var hún á ferðalagi sem forseti sjóðs, er ber heitið „Save
the Children Fund“ og hefur aðalstöðvar sínar í London. Prinsessan ferðað-
ist þarna um í þrjá daga og kynnti sér frá fyrstu hendi allar aðstæður
flóttamanna.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Brilssel
Chicago
Dublin
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerusalem
Jóhannesarborg
Kairó
Kaupmannahötn
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
Mallorca
Mexíkóborg
Miami
Moskva
Nýja Delhí
New York
Osló
Parfs
Perth
Rio de Janeiro
Reykjavík
Rómaborg
San Francisco
Stokkhótmur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vinarborg
Þórshötn
2 rigning
17 skýjað
25 heiðskfrt
20 heiðskírt
18 skýjað
24 rigning
12 bjart
21 þokumóða
17 skýjað
19 lóttskýjað
12 skýjað
29 skýjað
28 skýjað
18 heiðskfrt
37 heiðskfrt
13 rigning
24 lóttskýjað
17 rigning
12 bjart
26 skýjað
19 rigning
24 lóttskýjað
22 lóttskýjað
31 heiðskfrt
26 skýjað
22 bjart
35 skýjað
19 lóttskýjað
12 skýjað
15 skýjað
19 heiðskfrt
34 heiðskfrt
8 skýjað
24 heiðskírt
22 skýjað
16 lóttskýjað
21 lóttskýjað
27 skýjað
24 rigning
14 skýjað
21 bjart
7 skýjað
Óveður í Hollandi á uppstigningardag:
Fjögurra er saknað — mikið
tjón á skipum og mannvirkjum
Am.sterdam, 13. maí. AP.
FJÖGURRA manna er saknað eftir
ofviðri, sem gekk yfir Holland í gær.
Vindhraðinn náði 12 vindstigum og
var svo öflugur, að tré rifnuðu víða
upp og reykháfar hrundu á mörgum
húsum. Mikill fjöldi smábáta fauk
til í óveðrinu og ýmist sökk eða
brotnaði. Þau fjögur, sem saknað er,
voru við vatnaíþróttir á bátum og
vatnaskíðum á Ijsselmeer, stærsta
stöðuvatni Hollands, er stormurinn
skall á úr suðvestri öllum á óvart,
því að engin aðvörum hafði verið
gefin út í veðurfréttum.
Þyrlur og björgunarbátar frá
Þegar Floyd Hopkins, skrifstofu-
maður í borginni Boston í Banda-
ríkjunum, hafði lokið vinnu einn dag-
inn nú fyrir skemmstu, komst hann
að raun um, aö búið var að stela öðru
hjólinu undan reiðskjótanum hans.
Hopkins lét sér þó hvergi bregða, brá
sér á bak og komst heim á því sem
eftir var.
hollenzka flotanum björguðu 17
manns af skemmtibátum á vatn-
inu, sem krökkt var af á uppstign-
ingardag, en það er opinber frí-
dagur í Hollandi sem víða.
Talsvert var um það, að umferð
stöðvaðist um vegi, er tré rifnuðu
upp og féllu niður á þá. Flutn-
ingaskip, sem lágu við bryggju í
Rotterdam, einni stærstu höfn
heimsins, skemmdust er þau
skullu utan í bryggjuna, sem þau
voru fest við. Flutningaskip frá
Líberíu felldi þrjá kornkrana, er
það slitnaði frá bryggju og mikil
brögð voru að því, að tómir gámar
fykju í höfnina.
I Overtween, íbúðarhverfi um 15
mílur fyrir vestan Amsterdam,
fauk reykháfur af húsi og skall
síðan á bifreið, sem stóð þar nærri
og eyðilagði hann gjörsamlega.
Ökumaðurinn slapp hins vegar
ómeiddur, sem þykir mikil mildi.
Leitinni að hinum týndu átti að
halda áfram af fullum krafti í dag,
allt fram í myrkur.
Dagbækur Hitlers:
Húsleit á heimili
milligöngumannsins
Er hann sjálfur falsarinn? Spyr Stuttgarter Nachrichten
Stuttgart, 13. maí. AP.
LÖGREGLUMENN gerðu í dag
húsleit í verzlun og á heimili
Konrads Kujaus í Stuttgart, en
honum hefur verið gefið að sök að
hafa selt tímaritinu Stern hinar
fölsuðu dagbækur, er eignaðar
voni Adolf Hitler. Leitin mun ekki
hafa borið mikinn árangur, enda
þótt lögreglumennirnir hefðu á
brott með sér tvo fulla poka úr
verzlun Kujaus, sem seldi einkum
alls konar mynjar, muni og myndir
frá valdatíma nazista. A meðal
þess, sem lögreglan fann, var ein-
tak af Mein Kampf áritað af Hitler
sjálfum.
Kujau, sem notaði nafnið
Fischer í skiptum sínum við
Gerd Heidemann, blaðamann
Stern, er horfinn og hefur ekkert
frétzt til hans í tvær vikur.
Heidemann, sem keypti af hon-
um hinar fölsuðu dagbækur, seg-
ist sjálfur vera fórnarlamb svik-
anna. Hann hélt því fram á mið-
vikudag, að Kujau hefði hringt í
sig frá einhverjum stað í grennd
við Prag, höfuðborg Tékkólsló-
vakíu og hefði Kujau farið þang-
að til þess að hafa upp á svindl-
aranum, sem falsað hefði bæk-
urnar. Ferðin hefði hins vegar
engan árangur borið og kvaðst
Heidemann hafa það eftir Kuj-
au, að hann vonaðist til þess að
geta snúið heim til V-Þýzka-
lands hið bráðasta.
Blaðið Stuttgarter Nacrichten
lýsti í dag Kujau sem snjöllum
skrautritara og listamanni, og
ber blaðið fram þá spurningu,
hvort Kujau hafi ekki einungis
selt bækurnar, heldur falsað þær
líka. Segist blaðið hafa það eftir
vinum Kujaus, að hann hefði
sýnt þeim ferðatösku með mörg-
um milljónum marka í seðlum
og kunni það að hafa verið pen-
ingarnir, sem Stern greiddi fyrir
dagbækurnar fölsuðu.
0
Takið sumarið snemm
öll íjölskyldan til
MALLORKA
dTCfKVT
FERÐASKRIFSTOEA, Iðnaöarhúsinu Hallveigarslígl. Simar 28388 og