Morgunblaðið - 14.05.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
27
Færeyingafélagið
fjörutíu ára
F'æreyingarélagið á íslandi verður
40 ára nú um helgina og verður hald-
ið upp á það með ýmsu móti. Afmæl-
isfagnaður verður í Víkingasal Loft-
leiða kl. 19. Verður margt þar til
gamans gert og er m.a. hingað kom-
in danshljómsveit frá Færeyjum til
að leika fyrir dansi.
Á sunnudag verður Færeyinga-
vaka í Norræna húsinu sem hefst
kl. 20.30, einnig verður sýning á
færeyskum munum í bókasafni og
anddyri. Dagskrá vökunnar er
fjölbreytt. Stefán Karlsson hand-
ritafræðingur flytur erindi um
samskipti Færeyinga og íslend-
inga í Kaupmannahöfn.
Karl Johan Jensen les ljóð og
kynnir færeysk skáld. Færeyska
hljómsveitin Blue Birds leikur og
félagar úr Færeyingafélaginu
sýna færeyskan dans.
Færeyingafélagið var stofnað
15. maí 1943, og hefur starfað síð-
an sem öflugt átthagafélag. Félag-
ar eru nú 268, formaður þess er
Sylvía Jóhannsdóttir.
Erindi um
búskap í
Reykjavík
FÉLAGIÐ Ingólfur heldur aðal-
fund sinn í dag 14. maí kl. 14 í
stofu 102 í Lögbergi, Háskóla Is-
lands. Að loknum aðalfundar-
störfum mun Þórunn Valdimars-
dóttir sagnfræðingur flytja erindi
um búskap í Reykjavík. Félags-
menn eru hvattir til að fjölmenna,
og nýir félagar jafnframt boðnir
velkomnir. (FréUatilkynning)
Helgarskákmót
á Akureyri
Skákfélag Akureyrar og KEA
standa fyrir opnu skákmóti á Akur-
eyri um hvítasunnuhelgina. Mótið
hefst fdstudaginn 20. maí kl. 20 á
Hótel KEA. Tefldar verða 7 umferð-
ir eftir Monrad-kerfi og lýkur mót-
inu mánudaginn 23. maí (annan í
hvítasunnu) kl. 18.30.
Alls verða veitt sex peninga-
verðlaun, samtals að upphæð
18.500 krónur. Fyrstu verðlaun eru
kr. 7.000,-
Nokkrir af okkar sterkustu
skákmönnum munu taka þátt í
mótinu. Má þar nefna Helga
ólafsson, Dan Hansson, Sævar
Bjarnason og Elvar Guðmunds-
son. Einnig standa vonir til að
stórmeistarar okkar geti tekið
þátt, svo og íslandsmeistarinn,
Hilmar Karlsson.
Málþing um
tölvuspil og
leiktækjasali
Á MÁNUDAGINN kemur, 16. maf kl.
15.30, mun Barnaverndarráð fslands
gangast fyrir málþingi um tölvuspil og
leiktækjasali í Félagsmiðstöðinni við
Gerðuberg í Breiðholti.
f fréttatilkynningunni frá Barna-
verndarráði segir m.a.:
„Tölvuvæðing er nú töluverð í at-
vinnulífi hér á landi og eykst bæði í
einkalífi fólks og félagslffi. Starf-
ræksla leiktækjasala er gott dæmi
um hið síðastnefnda. A hinn bóginn
er lítið vitað hvaða áhrif þessi nýja
tækni mun hafa á daglegt líf manna
í næstu framtíð.
Ætlun Barnaverndarráðs með
málþinginu er að efla skoðanaskipti
um tómstundir barna og unglinga i
ljósi þessarar tæknibyltingar. Á
málþinginu verður reynt að leita
svara við spurningum sem vakna 1
þessu sambandi, þ.á m. þeirri hvort
ástæða sé til að bregðast við tölvu-
spilum og starfrækslu leiktækjasala
með einhverjum hætti. Er hér ekki
aðeins átt við viðbrögð af hálfu
sveitarstjórna og löggjafans heldur
einnig viðbrögð barna og unglinga,
f
f
SUMARHUSASYNING
LAUGARVATNI
LAUGARDAG OG SUNNUDAG
ELD^SKÁLINN
GRENSÁSVEGUR 12, 108 REYKJAVÍK,
SÍMAR 91 39520 & 91 39270
Bilasöludeildin er opin frá kl. 1
Nýir og notaðir bílar til sýnis og sölu