Morgunblaðið - 14.05.1983, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
Tilgangurinn að
stuðla að hagræn-
um vinnubrögðum
við gagnavinnslu
— segir Sigurjón Pétursson, for-
maður Skýrslutæknifélagsins
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG fslands var
stoCnað árið 1968. Tilgangur þess er að
stuðla að hagrænum vinnubrögðum við
gagnavinnslu í hvers konar rekstri og
við tækni- og vísindastörf, eins og segir
í lögum félagsins. Félagar eru nú um
500, aðallega starfsmenn stofnana og
fyrirtækja, sem tengjast tölvuvinnslu
með einum eða öðrum hætti, svo og
aðrir áhugamenn um tölvumál, sagði
Sigurjón Pétursson, formaður félags-
ins í samtali við Mbl.
Félagið skipuleggur fundahöld og
ráðstefnur um ýmis málefni á þessu
sviði og gengst fyrir kynningum og
sýningum á tækninýjungum á sviði
tölvumála, auk þess að gefa út frétt-
abréfið Tölvumál 8—10 sinnum á
ári.
Síðastliðið vor gerðist Skýrslu-
tæknifélagið aðili að sambandi ann-
arra skýrsiutæknifélaga á Norður-
löndum og ber það nafnið Nordisk
Dataunion (NDU). Fulltrúi Sl í
stjórn NDU er Lilja Ólafsdóttir.
Hápunkturinn í starfi NDU ár
hvert er hin fjölmenna Norddata-
ráðstefna, sem haldin er snemma
sumars. Þar eru fluttir fjölmargir
fyrirlestrar um það nýjasta á sviði
tölvumála.
Ráðstefnur um afmörkuð svið eru
haldnar oftar. Sú næsta, sem sam-
tökin efna til verður haldin að Hótel
Loftleiðum í Reykjavík 15.—16. sept-
ember nk. Þar verður málefnið
tölvumál og skóli tekið til umfjöllun-
ar og boðið til ráðstefnunnar rúm-
lega 100 mönnum, sem með skólamál
fara á Norðurlöndum. SÍ annast
undirbúning ráðstefnunnar og er dr.
Oddur Benediktsson, prófessor við
Háskóla fslands, formaður undir-
búningsnefndar.
Á síðastliðinu ári var ákveðið að
árlega skyldu aðildarfélögin helga
eina viku á ári upplýsingastarfsemi
um tölvumál. Vikan 14.—20 nóvem-
ber var ákveðin fyrir árið 1983. Þá
viku munu skýrslutæknifélögin 1
herju landi scanda fyrir ýmis konar
framkvæmdum, svo sem sýningum,
ráðstefnum, greinaskrifum og sjón-
varps- og útvarpsdagskrám.
Sl hefur stofnað undirbúnings-
nefnd fyrir upplýsingavikuna og er
Jón Erlendsson, forstöðurmaður
Upplýsingaþjónustu rannsóknar-
ráðs, formaður nefndarinnar. Meðal
þess, sem ráðgert hefur verið er röð
af kynningarþáttum um tölvur og
notkun þeirra í sjónvarpinu, sýning
á nýjasta tölvubúnaði á skrifstofum
undir heitinu „Skrifstofa framtíðar-
innar“, ráðstefna í tengslum við
hana, ráðstefna um áhrif tölvuvæð-
ingarinnar á vinnumarkaðinn,
skipuleg greinaskrif í dagblöð um
tölvumál, gerð kynningardagskrár
fyrir skóla o.fl.
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
2. ársfjórðungur uppgjörsársins 1983:
Hagnaður Apple
nær tvöfaldaðist
EKKERT lát virðist ætla að vera á
velgengni Apple-tölvufyrirtækisins
bandaríska, en í liðinni viku kom
fram á blaðamannafundi, sem
fyrirtækið boðaði til, að hagnaður
þess nær tvöfaldaðist á 2. ársfjórð-
ungi uppgjörsársins 1983, sem end-
aði 1. april sl.
Hagnaður fyrirtækisins
janúar-marz sl. var um 23,9
milljónir Bandaríkjadollara,
sem jafngildir um 40 centum á
hvern hlut, en heildarsala fyrir-
tækisins var að upphæð um 228
milljónir Bandaríkjadollara. Til
samanburðar var sala fyrirtæk-
isins á sama tíma í fyrra að upp-
hæð um 131 milljón Bandaríkja-
dollara og hagnaður um 13,8
milljónir Bandaríkjadollara,
sem jafngilti þá um 24 centum á
hvern hlut.
A.C. Markkula, annar tveggja
forstjóra fyrirtækisins, sagði á
blaðamannafundinum, að aðal-
ástæðan fyrir þessari miklu
velgengni væri sú, að salan á
Apple III tölvunni, sem kom á
markaðinn í fyrra, hefði gengið
framar öllum vonum.
Markkula benti ennfremur á,
að hagnaður Apple á 1. ársfjórð-
ungi uppgjörsársins, hefði verið
um 47,4 milljónir Bandaríkja-
dollara, sem var um 80 cent á
hvern hlut í fyrirtækinu, en
hafði verið um 27,4 milljónir
Bandaríkjadollara á sama tíma í
fyrra.
„Við gerum okkur vonir um að
sala fyrirtækisins og hagnaður
verði reyndar enn meiri, þegar
líða tekur á árið, með hliðsjón af
því, að hin nýja Apple Ile tölva,
sem kynnt var í janúar sl. hefur
fengið mjög góðar viðtökur, þar
sem hún hefur verið kynnt.
Útlit fyrir gott ár hjá Coca-Cola Co.:
Hagnaður jókst um 14%
á 1. ársfjórðungi 1983
HAGNAÐUR bandaríska risafyrir-
tækisins Coca-Cola Co. jókst um
tæplega 14% á 1. ársfjóröungi þessa
árs, en heildarvelta fyrirtækisins
jókst á þessum tíma um liðlega 19%,
samkvæmt upplýsingum fyrirtækis-
ins í sfðustu viku.
Hagnaður Coca-Cola Co. á
fyrsta ársfjórðungi var liðlega
122,1 milljón Bandaríkjadollara,
sem jafngildir um 90 centum á
hvern hlut í fyrirtækinu. Til sam-
anburðar var hagnaður fyrirtæk-
isins á sama tíma í fyrra um 107,6
milljónir Bandaríkjadollara, sem
jafngilti þá um 87 centum á hvern
hlut.
Heildarvelta fyrirtækisins jókst
úr 1,27 milljörðum Bandaríkja-
dollara á 1. ársfjórðungi sl. árs í
um 1,52 milljarða Bandaríkjadoll-
ara á 1. ársfjórðungi í ár, eða um
liðlega 19% eins og áður sagði.
Roberti C. Goizueta, aðalfor-
stjóri Coca-Cola Co. sagði þegar
framangreindar tölur voru kynnt-
ar á fundi með blaðamönnun, að
markaðshlutdeild fyrirtækisins
hefði ekki veri jafnmikil um langt
árabil og einmitt nú. „Það er því
alveg ljóst, að árið 1983 verður
gott ár fyrir Coca-Cola Co.,“ sagði
Goizueta.
Sjávarafurðadeild SÍS:
Aukning lið-
lega 15% í
frystingu ’82
Heildarvelta um 1.293,3 milljónir kr.
FRAMLEIÐSLA frystra sjávarafurða jókst um liölega 15%
hjá Sjávarafurðadeild SÍS á síðasta ári, en frysting þorskaf-
urða dróst hins vegar saman um rúmlega 10% og olli því
mikill samdráttur í þorskafla landsmanna. Þessar upplýs-
ingar koma fram í nýjasta fréttabréfi Sambands íslenzkra
samvinnufélaga.
Þar segir ennfremur, að útflutningur skreiðar hafi aðeins
numið um helmingi þess sem flutt var út árið 1981, en þrátt
fyrir það var árið 1982 þriðja mesta skreiðarárið í seinni tíma
sögu deildarinnar og hlutur hennar betri en oftast áður.
„Áframhald varð á samdrætti í
mjölútflutningi, og má rekja þá
þróun til loðnuveiðibanns og auk-
innar innanlandsnotkunar á
þorskmjöli.
Umbúða- og veiðafæradeild
Sjávarafurðadeildarinnar hafði
mikil umsvif og veitti framleið-
endum mikilsverða þjónustu á
ýmsum sviðum," segir ennfrem-
ur.
Þá segir, að heildarvelta deild-
arinnar á síðasti ári hafi numið
um 1.293,3 milljónum króna og
hafi aukist um 49,9% frá árinu á
undan. „Rekstrarafkoma deildar-
innar var góð, og greiddi hún
fiskframleiðendum innan SAFF
16,4 milljónir króna á árinu í
endurgreiddan tekjuafgang, af-
slætti og vexti af séreignarsjóð-
um,“ segir að síðustu í Sam-
bandsfréttum.