Morgunblaðið - 14.05.1983, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Verð á
tískufötum
Houson og Boston Celtics kljást (NBA.
N.B.A. í Sjónvarpinu:
Eina tækifærið til
að sjá besta körfu-
boltaleik í heimi
6899-1234 og 6894-5216 skrifa:
„Velvakandi.
Við viljum koma á framfæri
þakklæti okkar til Bjarna Felix-
sonar, umsjónarmanns íþrótta-
þáttar sjónvarpsins, fyrir að hafa
sýnt úrslitaleiki bandarísku at-
vinnumannadeildarinnar NBA
ásamt All-Star-leiknum sem hann
sýndi stuttu eftir að hann fór
fram, því að þetta er tvímælalaust
með besta íþróttaefni sjónvarps-
ins og munu örugglega fleiri taka
undir það en eingöngu körfubolta-
áhugamenn.
Við vonum að framhald verði á
sýningum leikja úr NBA í náinni
framtíð og vonumst við til að
Bjarni sjái sér fært að útvega leiki
frá úrslitakeppninni nú í vor og
hann sýni þá frá fleiri liðum en
þeim tveimur sem lenda í úrslit-
um, því að þau lið önnur sem kom-
ast í úrslitakeppnina leika ekki
síður frábæran körfuknattleik.
Gaman væri að vita hvort
Bjarni hefði í hyggju að sýna
meira frá úrslitakeppninni í NBA,
sem nú stendur yfir, því þetta er
eina tækifærið sem körfubolta-
unnendur hafa til að sjá þennan
körfubolta, sem talinn er sá besti í
heimi. Einnig viljum við beina
máli okkar til íþróttafréttaritara
dagblaðanna hvort þeir sjái sér
ekki fært að birta úrslit leikja
ásamt stöðunni í NBA öðru hvoru.
Bjarni Felixson sagði, að þegar
væri ákveðið að sýna úrslitaleik-
inn. Annað 'væri í athugun.
íþróttafréttamenn Morgunblaðs-
ins kváðu viss vandkvæði á að
birta úrslit einstakra leikja; hins
vegar ætti að vera mögulegt að
birta stöðuna öðru hvoru.
H.M.St. tískufrík skrifar:
„Velvakandi.
Ég er nú ein af þeim sem reyna
að tolla í tískunni, þó að það sé að
verða ómögulegt, af því að allt er
orðið svo dýrt, of dýrt. Mig langar
til að nefna smádæmi um það.
Mamma vinkonu minnar hafði
heitið henni því, að hún fengi bux-
ur fyrir prófin, sama hvað þær
kostuðu. Þessi vinkona mín labb-
aði sér inn í eina af tískuverslun-
um bæjarins og keypti þar buxur á
1.500 krónur. Buxunum er best
lýst með því, að þær líktust helst
náttbuxum af spikfeitum kalli,
sem teknar eru saman í mittið
með smásnæri. Þær eru þunnar og
næstum enginn saumaskapur á
þeim. En þrátt fyrir það eru þær
mjög frumlegar og flottar.
Mér finnst þetta of dýrt. Ef fólk
segir, að maður eigi ekki að kaupa
svona dýrt, þá er því til að svara,
að maður vill nú reyna að tolla í
tískunni.
Það væri gaman að fá að vita,
hvort ekkert verðlagseftirlit er
með tískuverslunum.
P.s. Vil fá Duran Duran á lista-
hátíð — eða David Bowie."
Þessir hringdu . . .
Hrasaði í
strætisvagni
og fótbrotnaði
Gunnar Guðjónsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Ég þyrfti að hafa upp á fólki
fyrir foreldra mína, en það
hjálpaði móður minni, þegar
hún lenti í slysi 26. janúar í vet- !
ur. Það gerðist í strætisvagni, í
leið nr. 3, sem var að fara frá
Hlemmtorgi. Eitthvað rykktist
vagninn til, þegar hann fór af
stað, þannig að móðir mín hras-
aði til og lenti á sætisbrík. Síðar
kom í ljós, að hún hafði fót-
brotnað um hné. Vagninn hélt
sína leið upp á Háaleitisbraut.
Þegar þangað kom og hún ætl-
aði út, var hún eiginlega
ósjálfbjarga. Vagnstjórinn gerði
ekkert í málinu og vekur það
vissulega til umhugsunar um,
hver sé skylda þeirra í slíkum
tilvikum. En meðal farþeganna
voru tvö ungmenni sem gáfu sig
að henni og leiddu hana út úr
vagninum. Rétt á eftir kom kon-
an mín þarna að og sá hvers
kyns var. Þetta endaði svo með
spítaialegu, sem stendur yfir
ennþá og óvíst hvenær lýkur.
Foreldra mína langar til að hafa
samband við unga fólkið, þó
ekki væri nema til þess að þakka
því fyrir aðstoðina. Ég bið það
því vinsamlegast um að tala við
Guðjón Magnússon, Háaleit-
isbraut 15, í sima 82790.
fram mjög góðir söngvarar, þó að
þeir kæmust ekki í úrslit.
En úr því ég „stakk niður
penna" til að tala um söng og
tónlist, þá vil ég koma á fram-
færi þeirri óánægju minni og
furðu, að á „kosninganóttina"
var sjónvarpað aðeins einni teg-
und tónlistar. Við eigum hér
ágæta einsöngvara, kvartetta,
kóra og fágaðar hljómsveitir, —
en ekki eitt einasta lag frá þess-
um tegundum tónlistar heyrðist,
aðeins mismunandi góðar (eða
lélegar) atvinnuhljómsveitir
komu fram. Hvernig getur þetta
gerst?
Og ef þessari einu nótt er nú
sleppt og litið yfir heildina og at-
hugað hvers konar tónlist er
ríkjandi í sjónvarpinu, þá held ég
að þar sé mest þjónað mjög
takmörkuðum en áberandi hópi,
og má þar áreiðanlega tala um
þrýstihóp. Ég tel að meirihluti
þjóðarinnar óski eftir fjölbreytt-
ari tónflutningi en fram kemur
hjá þeim, sem þessu stjórna.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Mér varð hugsað til sjálfs míns.
Rétt væri: Mér varð hugsað til sjálfs mín.
(Ath.: ég er í eignarfalli mín (ekki míns). Bendum
börnum á að rugla ekki saman í beygingu orðunum
ég og minn!
Urval af
albólstruðum
oq hálf-
bólstruðum rúmum
Opið laugardag kl. 14
og sunnudag kl. 2-5.
ÍO
SÍMI 77440
M,
PERLU-
MATT
LAKK
A BOD, ELDHUS, GANGA O.FL.
Perlumatt jökullakk er lágglansandi alkýö-
lakk til alhliða notkunar innanhúss. Lakkiö er
þurrt viökomu innan nokkurra klukkustunda
en þaö tekur nokkra daga (jafnvel vikur) aö
ná endanlegri perlumattri áferð. Lakkið hent-
ar einkar vel á böö, eldhús og ganga sakir
þess, hve auövelt er aö
þrífa þaö.
Látiö Hörpu gefa tóninn.