Morgunblaðið - 19.05.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
31
75 ára:
Þórður Guðmunds-
son verslunarmaður
f dag fimmtudaginn 19. maí er
Þórður Guðmundsson, verslunar-
maður, Sólvallagötu 7 hér í borg
75 ára.
Það er ekki hægt að trúa því, að
Þórður hjá Hvannbergsbræðrum,
eins og hann er ávallt nefndur í
daglegu tali af vinum sínum, sé
orðinn 75 ára gamall, því að hann
er teinréttur og kvikur á fæti.
En kirkjubækurnar segja að
hann sé fæddur í Reykjavík 19.
maí 1908.
Á fyrstu áratugum þessarar
aldar, var Reykjavík ekki fjöl-
menn, börn og unglingar nutu ekki
þess margbreytileika í tómstunda-
iðju eins og nú er hér í borg, en
þeim mun fundvísari voru þau á
margbreytileika náttúrunnar og
undu glöð við sitt, þrátt fyrir al-
menna fátækt. Þá var auðlegð
þeirra fólgin í einföldum leikjum
æskunnar, sem höfðu þroskandi
áhrif á uppeldi þeirra.
Þórður átti gleðirík ár með öðr-
um jafnöldrum við leik og íþróttir,
sérstaklega var sundíþróttin hon-
um snemma kær. Þórður Guð-
mundsson er búinn að vera starf-
andi hjá skóverslun Hvannbergs-
bræðra frá því hann var 18 ára að
aldri eða í 57 ár og enn er hann að
starfi.
Það hlýtur að teljast mjög
óvanalegt, eða jafnvel einsdæmi
að menn starfi hjá sama fyrirtæki
í svo mörg ár og það segir sína
sögu.
Þórður er sérstaklega traustur,
góður og mjög grandvar starfs-
maður, hann vinnur öll sín störf af
Nú er hún komin ...
Vélin, sem tengist
köldu vatni eingöngu
eða heitu og köldu
— sama vélin —
en þú velur með
spamaðartakka
ódýrasta þvottamátann,
við þínar heimilisaðstæður
Hitun
Þvottur
Þurr —
vinding
• Þeytivinding með 850 sn. á mín.
• Tekur 5 kg af þurrþvotti.
• Hefur 10 grunnþvottakerfi.
• Sjálfstilltur forþvottur og aðalþvottur.
• Auk þess sjálfstætt hitaval fyrir 30,40,
60 og 95 gráðu heitan þvott (suða).
^RAFBUÐ
@SAMBANDSINS
Ármúla 3 ■ Simi 38900
HOOVER
800 WATTA RYKSUGA
MEÐ ÖLLU Á AÐEINS
kr. 3.990
ÓTRÚLEGT EN SATT
stakri samviskusemi.
Gagnkvæmt trúnaðartraust
hefir ávallt ríkt á milli Þórðar og
eigenda skóverslunar Hvann-
bergsbræðra, það trúnaðartraust
hefir orðið að traustri vináttu.
Þegar Þórður ræðir um Jónas
Hvannberg húsbónda sinn, sem
látinn er fyrir mörgum árum, þá
minnist hann hans ávallt með
djúpri virðingu og hlýleika, því af
honum lærði hann margt, sem
hefir orðið honum gott vegarnesti
á lífsleiðinni.
Ungur að árum kynntist Þórður
KFUM og starfi séra Friðriks
Friðrikssonar, sá boðskapur sem
hann heyrði þar, hreif hinn unga
mann svo að hann eingaðist
trausta trú á frelsarann Jesúm
Krist. Sú trú hefir verið Þórði afl-
gjafi og leiðarvísir gegnum lífið.
Þórður heillaðist ungur af sund-
íþróttinni og var frábær sundmað-
ur, hann vann til margra afreka á
því sviði fyrir félag sitt, sundfé-
lagið Ægi.
Hann var einn í hópi vaskra
sundmanna þeirra er þátt tóku í
‘Olýmpíuleikunum í Berlín 1936.
Ég vil þakka Þórði hið mikla
starf sem hann hefir unnið fyrir
Gideonhreyfinguna á íslandi, en
meginverkefni þess félags er að
gefa öllum 10 ára skólabörnum
Nýja Testamentið á hverju ári.
Þórður hefir verið mjög áhuga-
samur og virkur í þessu starfi og
það er sama hvenær hann er beð-
inn að taka að sér verkefni í þágu
þess félags, fúsleiki hans er slíkur
að starfið er unnið þegar í stað, af
þeirri samviskusemi, skyldurækni
og hinni miklu hógværð sem er
svo ríkur þáttur í allri lífsmótun
Þórðar, að óvenjulegt má teljast.
Hvenær sem maður hittir Þórð
og ræðir við hann, á finnur maður
hvílíkur öndvegismaður hann er
og sérlega vel gerður og af hans
fundi fer maður alltaf betri mað-
ur, slík eru hin jákvæðu áhrif
hans á aðra, því að kærleiksríkt
viðmót hans varpar hlýjum geisla
á alla er á vegi hans eru.
Best líður Þórði á heimili sínu í
hópi barna og barnabarna, ásamt
eiginkonu sinni, frú Margréti Sig-
urðardóttur.
Við Gideonfélagar óskum Þórði
og fjölskyldu hans Guðs blessunar
á þessum merku tímamótum í lífi
hans.
Helgi Elíasson
■ Sjálfvirkt snúruinndrag
■ Fjöldi fylgihluta
■ 800 watta. mótor
■ Hljóðlát
■ Ljósmælir sýnir þegar poki
er fullur
■ Greiðsluskilmálar
HCOVER ER HEIMILISHJALP
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8, sími 85670.
Útsala — Útsala — Útsala
30% afsláttur
frá
fyrri afslætti
Verslunin hættir 1. júní
Allt á aö seljast
Notiö þetta einstaka tækifæri
Sendum í póstkröfu
Fatamarkaðurinn í JL HÚSINU
Hringbraut 121 — Reykjavík.
Sími 22500.