Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
VIÐGERÐAR OG
VATNSÞÉTTINGAR-
EFNI SEM GERA
MEIRA EN AÐ DUGA.
THORITE
Framúrskarandi viögerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl. Thorite er til-
valið til viðgerða á rennum ofl
ACRYL60
Eftir blöndun hefur efnið
tvöfaldan þenslueiginleika,
tvöfaldan þrýstieiginleika,
þrefaldan sveigjanleika og
áttfalda viðloðun miðað við
venjulega steypu.
WATERPLUG
Sementsefni sem stöðvar
rennandi vatn. Þenst út við
hörnun og rýrnar ekki.
Þetta efni er talið alger bylt-
ing.
THOROGRIP
Thorogrip er sementsefni,
rýrnar ekki, fljótharðnandi.
Þenst út við þornun og er
ætlað til að festa ýmsa
málmhluti í stein og stein-
steypu.
Ksteinprýði
I Slórhóföa 16, afmi 83340.
i
m BpggingavoruvergluD
byggingauörur| Tcfjggva Hnonestoftfir
SIOUMÚL A 37 - SlMAR 83290-83360
Minning:
Margrét Björnsdótt-
ir frá Sauöárkróki
Fædd 26. desember 1899
Dáin 10. aprfl 1983
Nú sést ég niður til að kveðja
góða vinkonu sem farin er á
vængjum morgunroðans, Margréti
Björnsdóttur, Hlunnavogi 6. Hún
lést í Landspítalanum 10. apríl
eftir nær 2 ára þungbæra legu.
Margréti er best lýst þannig, að
hún hugsaði lítið um sjálfa sig,
var alltaf með hugann hjá börnum
sínum, tengdabörnum og barna-
börnum sem áttu hug ömmu sinn-
ar allan. Hún var öllu sínu fólki og
vinum mjög þakklát fyrir um-
hyggjuna, ástúðina og allar heim-
sóknirnar.
Yngsti sonur Margrétar, Tómas
og hans fjölskylda, voru alltaf hjá
henni alla daga, til að styrkja
hana og gleðja.
Margrét var mjög viðfelldin og
góð kona, hlý í viðmóti og gestris-
in með afbrigðum.
Margrét var fædd á Klauf á
Skaga og ólst upp í Skagafirði.
Ung giftist hún sveitungi sínum,
Sigurði Péturssyni verkstjóra,
sem látinn er fyrir mörgum árum.
Þeim varð 4 barna auðið, 3 sona og
1 dóttur, Heigu sem býr nú í
heimabyggð foreldra sinna. Syn-
irnir Eysteinn og Tómas búa í
Reykjavík en elsta soninn, Hall-
dór, missti Margrét fyrir nokkrum
árum. Það sár greri aldrei, bar
hún harm sinn í hljóði.
Margrét var harðdugleg kona,
var mikið ein með börnin sín ung,
þegar maður hennar var fjarver-
andi vegna vinnu sinnar.
Við hjónin í Sigtúni gleymum
aldrei afmæli Margrétar á jólum.
Þá var öll fjölskyldan saman kom-
in á heimili hennar og Helga
hennar komin frá Sauðárkróki til
að vera hjá móður sinni. Þá var
glatt á hjalla, spilað mikið á spil
sem allir höfðu gaman af, þó
sérstaklega afmælisbarnið. Þá var
drukkið mikið súkkulaði og enginn
gleymir góðu kökunum hennar
Margrétar minnar.
Við erum þakklát vinkonu okkar
fyrir öll spilakvöldin sem hún fór
jafnvel öndvegisviður
þarf umönnun
Harðviður er notaður þar sem annar mýkri viður dugar ekki. i
útihurðir, um borð í skipum, já alls staðar þar sem mikið mæðir
á vegna veðráttu eða notkunar. En jafnvel öndvegisviður þarf
umönnun. Viðinn þarf að hreinsa og verja gegn ofþornun.
International hefur allt sem til þarf: Hreinsi sem
auðveldur er í notkun og skaðar ekki kítti, lakk eða málningu.
Og olíu sem varnar því að viðurinn þorni.
Öndvegisviður á góða umönnun skilið.
International
með okkur á, bíltúrana sem við
höfðum öll gaman af og einnig
fyrir alla hjálpina gegnum árin.
Margrét var jarðsungin frá
- Sauðárkrókskirkju 23. apríl og
hvílir við hlið eiginmannsins í
kirkjugarðinum á Nöfunum. Nú
eru þau bæði komin heim í sveit-
ina sína aftur, Skagafjörðinn
kæra, þar sem hugurinn var alltaf.
Hles.suA sé minning vinanna okkar beggja,
þau hvíli í friði.
Agga og Valli.
Enginn er svo fátækur að hann
geti engum gefið. Gamall maður
staulaðist haltur við staf sinn, en
hann brosti við hverju barni er á
vegi hans varð, leik þeirra kyrrði
augnablik. Þau brostu á móti og
hlökkuðu til að mæta honum
næst. Honum léttist gangan og
þau urðu betri menn.
Ef við lítum nokkra áratugi aft-
ur í timann um kynningu við
Margréti Björnsdóttur, er ekki
óeðlilegt, að slíkir umgengnis-
þættir komi upp í hugann. Hvort
sem við vorum saman í ferð eða
komum heim á hennar myndar-
heimili, þar sem hennar ljúfa gleði
Ijómaði, því svo hjartanlega naut
hún þess að veita og gleðja.
Þótt starfsþrekið dvínaði og
sjúkdómsþrautir herjuðu á, varð
hugsun og minning vina Margrét-
ar svo: meðan henni var þrautin
bær, þér af mátti frétta — átti
hendur ávalt tvær öðrum til að
rétta, og því ljúfara sem veitt var,
var manni kærara að þiggja. Slík-
ir lífshættir er ekki lítil arfleifð til
niðja sinna og á öllum sviðum
dyggð og tryggð sem og til átthaga
sinna Skagafjarðar og Sauðár-
króks er hugur okkar margra vina
fylgdi henni til hinstu hvílu undir
móðurmold; því leitar hugur í
hæðir, þar hafnar og sérhver bæn
og myndir af Margréti glæðir, sem
mild var og ljúf og væn.
Af vináttuböndum við góða,
verður hver maður sjálfur betri,
þar fyrir megum við mörg þakka
Margrétar góðu samfylgd, vott-
andi börnum og barnabörnum og
öðru skylduliði okkar innilegustu
samhugsóskir. Una og Ingþór
Electron 1100
De luxe
Sjálfvirk þvottavél
í sérflokki
1100/800/500 sn./mín. þeyti-
vinda
Tekur 4,5 kg af þurrum þvotti
Sparnaðarrofi
Tekur inn á sig bæði heitt og
kalt vatn
Hitar 30°C, 40°C, 50°C, 95°C
Þvottakerfi fyrir straufrí efni
3 hólfa sápuskúffa
Þvottatromla úr ryöfríu stáli
Topphlíf er nota má sem
vinnuborð
Er á hjólum og því auðhreyf-
anleg
Utanmál: hæð 85 cm, breidd
59 cm, dýpt 56 cm.
Þyngd: 70 kg.
HOOVER ER HEIMILISHJÁLP
Verö kr. 15.667,00
Greiðsluskilmálar
ÁRS ÁBYRGÐ
FÁLKINN
Suöurlandsbraut 8,
sími 84670.