Morgunblaðið - 19.05.1983, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
47
Anderlecht varð
UEFA-meistari
ANDERLECHT og Benfica gerðu
jafntefli, 1—1, í síöari úrsiitaleik
liðanna í UEFA-keppninni í knatt-
spyrnu sem fram fór í gœrkvöldi í
Lissabon í Portúgal. Fyrri leik
þessara liöa lauk með sigri And-
erlecht, 1—0, og því varö liðið
UEFA-meistari í gærkvöldi.
Anderlecht veröskuldaði sigur
í leiknum í gær, en varö að sætta
sig viö jafntefli. Allan leikinn léku
leikmenn Anderlecht mun betri
og skipulagöari knattspyrnu. Sér
í lagi var varnarleikur liðsins góö-
ur svo og markvarslan.
Benfica lagöi allt í sölurnar til aö
sigra í leiknum og voru leikmenn
ákaft hvattir af 80 þúsund áhorf-
endum á vellinum. Jafnframt var
heitt í veöri og allar aöstæöur þeim
í hag. En allt kom fyrir ekki. Þeir
uröu þó fyrri til aö skora í leiknum.
Anderlecht
— Benfica
1—1
Á 32. mínútu leiksins skoraöi
Antonio Bastos meö góöu skoti,
viö gífurlegan fögnuö áhorfenda.
En þaö var skammvinn gleöi þvi
sex mínútum síöar skoraöi Juan
Lozano meö skalla fyrir Anderlecht
og jafnaöi metin. Þaö var Frank
Vercauteren sem átti alian heiöur-
inn af markinu og gaf mjög vel fyrir
markiö. Anderlecht vann síöast
Evrópukeppni áriö 1978 er liöiö
sigraöi í Evrópukeppni bikarhafa.
Nú viröist liöiö vera aö koma upp
með stórliö, og fær Arnór góöan
félagsskap næsta keppnistímabil
innan um alla þessa snjöllu leik-
menn.
Liöin sem léku í gær voru þann-
ig skipuö:
Anderlecht: Jacky Munaron,
Walter De Greff, Morten Olsen,
Luka Perusovic, Michel De Groot,
Per Frimann Hansen, Ludo Coeck,
Juan Lozano, Frank Vercauteren,
Erwin Vanderbergh og Broos.
Benfica: Bento, Pietra, Humb-
erto Coelho, Antonio Bastos Lop-
es, Veloso (Alves, 62), Carlos
Manuel, Stromberg, Sheu (Filipo-
vic, 51), Diamantino, Nene, Chal-
ana.
Nýr þjálfari Isfirðinga:
Allir eru mjög
metnaðargjarnir"
„Ég VERÐ MEÐ liðið í fyrsta leiknum í deildinni é föstudaginn — en þá
eígum við að leika í einhverjum eyjum (Vestmannaeyjum) — og síðan
fer ég aftur til Englands. Ég þarf aö ganga frá nokkrum málum þar
áður en ég kem aftur,“ sagði Howard Wilkinson, Englendingurinn sem
veröur þjálfari 1. deildarliðs ísfiröinga í sumar, er Morgunblaöiö spjall-
aði við hann í gærmorgun, en hann var þá að koma frá ísafiröi.
„Ég er enn samningsbundinn hjá Peterborough í 4. deild, — en ég er
búinn að hringja í formann félagsins, og ég get komið hingaö til lands
til starfa. Það er öruggt.“
Wilkinson sagöi aö Isfiröingar
heföu ekki haft samband viö sig
fyrr en síöastliðinn fimmtudag, þar
sem þetta heföi allt boriö mjög
brátt aö. „Mér leist ágætlega á aö-
stæöur á ísafirði — þetta er nátt-
úrulega allt ööru vísi og ekki sam-
bærilegt, viö aöstæöur atvinnu-
manna í England — en engu aö
síður leist mér ágætlega á þetta.
Svo er annaö: þaö eru allir svo
metnaöargjarnir á isafirði, bæöi
leikmenn og stjórnarmenn. Ég er
auðvitað metnaðargjarn líka og vil
aö liöiö standi sig sem best,“ sagöi
Wilkinson.
Hann var spurður aö því hvort
hann heföi nokkurn tíma komist í
snertingu við íslenska knattspyrnu
fyrr. „Nei, aldrei. En þegar ég var
hjá Leeds (þar starfaöi hann sem
þjálfari er Alan Clarke var fram-
kvæmdastjóri — innsk. blm.) fór-
um viö til Ikast í Danmörku og tók-
um þar þátt í móti. Þar vorum við í
hálfan mánuö og það er þaö
næsta sem ég hef komist islandi
áður.“
Hvað helduröu um knattspyrn-
una hér á landi?
„Ég hef nú ekki fengiö tækifæri
til aö sjá neina leiki ennþá, en ég
hef skoöaö myndir á myndbandi
frá leikjum Isafjaröarliösins frá því
í fyrra. Mér sýnist aö liöiö hafi leik-
Leikir í
kvöld
ÞRÍR loikir fara fram í 1. daild í
kvöld:
Þór — ÍA á Akurayri kl. 20.00.
ÍBK — Valur í Kaflavík kl. 20.00.
Víkingur — UBK ( Laugardal kl.
20.00.
Laik ÍBV og ÍBÍ aam fram átti að
fara (Vaatmannaayjum var fraat-
að og varður laikinn annað kvðld.
iö mikiö „kick and chase" knatt-
spyrnu — þ.e.a.s. sparkaö var
fram og síöan áttu framherjarnir
aö ná boltanum. Liöiö hefur aö
vísu á aö skipa mjög fljótum fram-
herjum þannig aö þessi aöferö
hentar því vel.
Ég get ekki sagt um þaö hvort
liöið muni leika eins í sumar. Ég
verö aö kynna mér betur mann-
skapinn sem ég hef og þá verð óg
einnig aö sjá andstæöinga til aö
vita hvernig hagstæöast sé aö
leika gegn þeim.“
Wilkinson var aö lokum spuröur
aö því hvort hann komi til með aö
leika meö liöinu síöar í sumar, en
hann lék sem miðvörður í Englandi
hér áöur.
„Ég vil nú ekkert segja um þaö
strax. Ég er nú oröinn 36 ára,
þannig aö ég verö aö sjá hversu
góö knattspyrnan er, — hvort þaö
borgar sig fyrir mig aö spila meö
liöinu þó ég hafi til þess leyfi,"
sagöi þessi einstaklega geöugi
Englendingur. — SH
MorgunbMM/ SkapH Hallgrímsaon
• Wilkinson ásamt Jóhanni Torfasyni, einum leikmanna ÍBÍ á Reykja-
víkurflugvelli i gærmorgun er hann kom frá isafirði.
HJOLREIÐADAGURINN
♦
♦
♦
FÖTLUÐUM
BÖRNUM
Söfnun er
Öllum ágóða varið til uppbyggingar
dvalarheimilis ffyrír fötluð börn.
Við heitum á alla með stuðning.
Takið vel á móti söfnunarfólki.
Margt smátt
gerir eitt stórt.
Söfnunargögn má ná í á skrifstofu Styrktarfélags
lamaöra og fatlaöra aö Háaleitisbraut 11 —13.
&
HJÓLREIÐADAGURINN
28. MAÍ1983
&
♦
♦
♦
STYRKTARFELAC
m
VOLTA
ELECTRONIC
hún gerist ekki
BÉTRI
Kraftmikil og lipur.
Sænsk gæðavara. Hag-
stætt verð — Vildarkjör.
EINAR FARESTVEIT i. CO HF.
BERGSTAOASTRATI I0A - SlMI I6995
Auðvitað
pumn>
Fótboltaskór
Æfingaskór
Gaddaskór
Æfingagallar
I nqotf/ é/kan/onor
Klapparstíg 44,sími 11783
Rcskiumnl-Pizzerui
HAFNARSTRÆTI 15 —
S 13340.
OPID DAGLEGA FRA
KL. 11.00—23.30.
LJUFFENGAR PIZZUR
SÉRRÉTTIR DAGSINS
ESPRESSO KAFFI.
KÖKUR
Knattspyrnu-
skóli Fram
Námskeiöin vinsælu hefjast mánudaginn 30. maí.
Tveggja vikna námskeiö.
Eldri flokkar kl. 09—12.
Yngri flokkar kl. 13—16.
Kennarar: Audrzej Strejlan og Sigurbergur Sig-
steinsson. Innritun í Framheimilinu (sími 34792) eftir
kl. 13.00.