Morgunblaðið - 20.05.1983, Side 1
56 SÍÐUR
112. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Frakkland:
Díoxínið
komið í
leitirnar
St. Quentin, Frakklandi, 19. maí. AP.
FJÖRUTÍU og ein tunna með
banvænu díoxíni, sem leitað hef-
ur verið með logandi Ijósi víða
um Evrópu, fannst í dag í litlu
þorpi í Norður-Frakklandi. Hafði
eiturtunnunum verið komið fyrir
í sláturhúsi, sem ekki hefur verið
notað í 20 ár.
Díoxínið er eitt eitraðasta
efni, sem menn þekkja til, og
hefði aðeins örlítill leki úr ein-
hverri tunnunni getað valdið
stórkostlegu slysi. Það gerðist í
borginni Seveso á Ítalíu árið
1976 þegar efnaverksmiðja þar
sprakk í loft upp. Eitrið í tunn-
unum er einmitt þaðan komið.
Um 300 manns búa í þorpinu
þar sem eitrið fannst og mun
enginn nema eigandi slátur-
hússins hafa vitað um það. Eit-
urtunnurnar voru fluttar frá
Ítalíu til Frakklands og hurfu
þar sporlaust.
Líbanon:
Habib í
liðsbón
Dhahran, Beirut, 19. maí. AP.
PHILIP HABIB, sendimaður
Bandaríkjaforseta í Miðausturlönd-
um, er nú í Saudi-Arabíu og leitar
þar stuðnings stjórnvalda við að
koma Sýrlendingum á brott frá Líb-
anon. Líbanir hafa sjálflr gert mann
út af örkinni til að leita frekari lið-
sinnis ýmissa Vestur-Evrópuríkja.
Saudi-Arabar hafa opinberlega
lýst yfir ánægju sinni með sam-
komulagið um brottflutning er-
lendra herja frá Líbanon en þó
ekki lagt hart að Sýrlendingum að
virða það enn sem komið er. Mun
Habib nú reyna að fá þá til þess.
Utanríkisráðherra Líbana, Elie
Salem, hélt í dag til Ítalíu, Frakk-
lands og Vestur-Þýskalands og er
megintilgangur ferðarinnar að fá
tvær fyrrnefndu þjóðirnar til að
fjölga hermönnum sínum í alþjóð-
lega gæsluliðinu og Vestur-Þjóð-
verja til að taka þátt í því einnig.
Shimon Peres, leiðtogi ísraelska
verkamannaflokksins og stjórnar-
andstöðunnar, sagði í Strasborg í
dag, að ísraelar ættu að hverfa
með her sinn frá Líbanon hvort
sem Sýrlendingar gerðu það eður
ei. Það yrði öllum fyrir bestu, ekki
síst ísraelum sjálfum.
„Mun lifa sem tákn
fyrir pólska æskuu
Mikill mannfjöldi við útför drengsins sem lést eftir barsmföar lögreglunnar
Vinir Grzegorz Przemyk bera kistu hans til grafar í kirkjugarði í Varsjá.
Varsjá, 19. maí. AP.
UM TUTTUGU þúsundir manna
voru í dag við útför menntaskóla-
nemans Grzegorz Przemyk, sem lést
fyrir einni viku eftir ákafar barsmíð-
ar lögreglumanna. Lögreglumenn
voru með mikinn viðbúnað, fjölda
brynvagna og bfla með vatnsþrýsti-
byssum, en létu þó fólkið afskipta-
laust. Mikil og vaxandi ólga er nú
sögð undir niðri í Varsjá og öðrum
pólskum borgum.
Um 8.000 manns voru við at-
höfnina í kirkjunni þegar Grzeg-
orz var jarðsunginn og þúsundir
manna bættust við þegar líkfylgd-
in lagði af stað eftir götum Var-
sjár í 25 stiga hita. Grafarþögn
ríkti í göngunni en margir héldu
hendi á loft og gerðu V-merki með
fingrunum, sigurtáknið. Þegar
komið var til kirkjugarðsins biðu
þar um 5.000 manns.
„Dauði sérhvers manns er þján-
ingarfullur, en dauði þessa drengs
er hörmulegur," sagði Lech Wal-
esa í skeyti til móður Grzegorz og
lesið var upp í kirkjunni. „Eg full-
vissa þig um, að dauði hans mun
ekki gleymast," sagði hann enn-
fremur. Margir grétu þegar Miz-
iolek, biskup, sem jarðsöng, sagði,
að Grzegorz, sem lést þremur dög-
um fyrir 19. afmælisdag sinn,
myndi nú verða „að ljúka prófum
sínum á himni". Séra Bronislaw
Dembowski, sem flutti minn-
ingarræðuna, sagði, að nafn
Grzegorz myndi lifa „sem tákn
fyrir pólska æsku og baráttu
hennar fyrir frjálsu og réttlátu
Póllandi".
Sadowska, móðir Grzegorz, varð
sjálf fyrir misþyrmingum 3. maí
sl. þegar 20 óeinkennisklæddir
menn ruddust inn í eina af hjálp-
arstofnunum kaþólsku kirkjunnar
í Varsjá, börðu starfsmennina og
skildu þá síðan eftir á víðavangi
fyrir utan borgina.
Útlægir Samstöðumenn í Lon-
don sögðu í dag, að meira en 50
manns hefðu verið drepnir í pólsk-
um fangelsum síðan í janúar í
fyrra. Hefðu margir þeirra verið
ungt fólk, sem ekkert hefði unnið
til saka, en verið handtekið á götu
úti, „yfirheyrt, barið og skilið eftir
til að deyja". Sögðu þeir, að al-
gengt væri, að lögreglumenn skip-
uðu sér í tvær raðir, köstuðu föng-
unum á milli sín og „lemdu þá með
kylfum þar til þeir misstu meðvit-
und“.
Danmörk:
Hvar fékk
Wagner
peningana?
19. maí.
f FYRRAVOR vakti það mikla athygli
í Danmörku og víðar þegar um
150.000 vestur-þýskum mörkum, um
einni og hálfri milljón ísl. kr., var
rænt úr peningaskáp á heimili Ing-
mar Wagners, formanns danska
kommúnistaflokksins. Ingmar vildi í
fyrstu ekkert kannast við þetta fé en
sneri síðar við blaðinu og sagði, að
það væri „alþjóðlegt samstöðufé",
sem safnað hefði verið á Vesturlönd-
um. Þetta mál er nú komið til um-
ræðu á danska þinginu þar sem
margt bendir til, að peningarnir hafi
komið frá Austur-Þýskalandi og séu
hluti af lausnargjaldi fyrir fólk, sem
Austur-Þjóðverjar „seldu“ löndum
sínum í Vestur-Þýskalandi. Frá þessu
segir í danska blaðinu Politiken í
gær, miðvikudaginn 18. maí.
Ole Espersen, fyrrum dómsmála-
ráðherra úr flokki jafnaðarmanna,
hefur tekið þetta mál upp á danska
þinginu, en hann vill fá að vita
hvort danska lögreglan og leyni-
þjónustan sögðu honum ekki allan
sannleikann á sínum tíma. Hann
hefur einnig beðið núverandi dóms-
málaráðherra, E. Ninn-Hansen, að
svara því játandi eða neitandi
hvort peningarnir í peningaskáp
Ingmar Wagners hafi að hluta til
verið lausnargjald, sem Austur-
Þjóðverjum hafi verið greitt fyrir
frelsi fólks.
Það er m.a. vegna upplýsinga frá
Frakklandi, að Ole Espersen hefur
krafist svara við þessum spurning-
um, en samkvæmt þeim hefur hluti
fjárins, sem stolið var á heimili
Ingmar Wagners, formanns danska
kommúnistaflokksins, verið rakinn
til lausnargjalds, sem Vestur-
Þjóðverjar greiddu austur-þýskum
stjórnvöldum fyrir fólk, sem dæmt
hafði verið fyrir njósnir í Austur-
Þýskalandi.