Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 1

Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 1
48SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 116. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Samkomulag milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks: Ný ríkisstjórn tek- ur við völdum í dag Steingrímur Hermannsson forsætisráð- herra - Sjálfstæðisflokkur með 6 ráðherra Á MIÐNÆTTI í nótt samþykkti flokksráö Sjálfstæó- isflokksins tillögu þess efnis, að Sjálfstæðisflokkur- inn gangi til ríkisstjórnarsamstarfs með Framsóknar- flokki á grundvelli stjórnarsáttmála, sem þingflokk- arnir samþykktu á fundum sínum í gærmorgun. 121 greiddi atkvæði með tillögunni, 31 var mótfallinn, 9 seðlar voru auðir. Upp úr miðnætti samþykkti mið- stjórnarfundur Framsóknarflokksins samhljóða til- lögu sama efnis. Steingrímur Hermannsson, formað- ur Framsóknarflokksins, fór á fund forseta íslands kl. 11 í gærkvöldi og fékk afhent umboð til stjórnar- mvndunar eftir að samkomulag hafði náðst um að Framsóknarflokkurinn fengi forsætisráðherraemb- ættið í ríkisstjórn þeirra. Reiknað er með að hin nýja ríkisstjórn taki við völdum um miðjan dag. Ríkis- stjórn Gunnars Thoroddsen fer þá frá um hádegisbil. Unnið var að stjórnarsáttmálan- um innan þingflokkanna svo til stöðugt frá í fyrrinótt og um hádeg- isbilið í gær hófust samningavið- ræður um skiptingu ráðuneyta og ráðherrastóla. Sjálfstæðisflokkur- inn gerði að tillögu sinni við Fram- sóknarflokkinn að skiptingin yrði fimm ráðherrar Sjálfstæðisflokks á móti fjórum frá Framsóknarflokki og að Sjálfstæðisflokkurinn fengi forsætisráðherra. Framsóknar- flokkur vildi aftur á móti hafa skiptinguna fimm á móti fimm und- ir forustu Sjálfstæðisflokks, eða sex sjálfstæðisráðherra á móti fjórum frá Framsókn, sem þá hlyti forsæt- isráðherradóminn. Tillagan um ríkisstjórn sex ráð- herra Sjálfstæðisflokks og fjóra frá Framsóknarflokki undir forustu Framsóknarflokks var samþykkt á níunda tímanum í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkur hlýtur átta ráðu- neyti, en Framsóknarflokkur fimm. Ráðuneyti Sjálfstæðisflokksins eru eftirtalin: Utanríkisráðuneytið, iðn- aðarráðuneytið, fjármála- ráðuneytið, viðskiptaráðuneytið, samgönguráðuneytið, menntamála- ráðuneytið, heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið, auk Hagstofu Is- lands. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki haft þrjú þessara ráðuneyta undir sinni stjórn í um þrjá áratugi, þ.e. utanrikisráðuneytið frá 1953, er Bjarni Benediktsson var utanríkis- ráðherra, viðskiptaráðuneytið frá því Ingólfur Jónsson stýrði því árið 1956 og menntamálaráðuneytið frá 1956, en þá var Bjarni Benediktsson menntamálaráðherra. Ráðuneyti Framsóknarflokks verða forsætis- ráðuneyti, félagsmálaráðuneytið, landbúnaðarráðuneytið, sjávarút- vegsráðuneytið og dóms- og kirkju- málaráðuneytið. Fundahöld þingflokkanna og for- ustumanna flokkanna tveggja stóðu sleitulaust yfir frá því snemma í gærmorgun og allt fram á nótt, eins og fyrr segir. Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokks og miðstjórnar- fundur Framsóknarflokks höfðu verið boðaðir kl. 16 í gær, en marg- fresta varð fundunum. Framsókn- armenn hófu sinn fund klukkan að ganga sex síðdegis og frestuðu hon- um litlu síðar til kl. 20, flokksráðs- fundur Sjálfstæðisflokksins hófst ekki fyrr en laust fyrir kl. 21. Þingflokkur Framsóknarflokks kaus sína ráðherra í nótt, en þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins kemur saman árdegis. Samkvæmt heimild- um Mbl. er reiknað með ríkisráðs- fundi ríkisstjórnar Gunnars Thor- oddsen með forseta íslands að Bessastöðum kl. 11, þar sem forset- inn leysir ríkisstjórnina frá störf- um. Hið nýja ráðuneyti tekur síðan við völdum síðdegis. Steingrímur Hermannsson for- maður Framsóknarflokksins sagði, er Mbl. ræddi við hann á Bessastöð- um í gærkvöldi þegar hann hafði tekið við stjórnarmyndunarumboð- inu frá forseta íslands: „Það má segja, að þetta sé frágengið. Ég reikna- með að ég geti lagt fram ráðherralista á fundi forseta í fyrramálið og ný ríkisstjórn geti tekið við völdum síðdegis á morgun. Við munum ganga frá ráðherralista okkar í nótt og sjálfstæðismenn eru að vinna að sínum málum." Steingrímur sagði aðspurður um það hvers vegna hann teldi myndun stjórnar Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknar fyrst mögulega nú, að ýmis- legt annað hefði verið reynt síðan formenn þessara flokka hefðu haft umboð til stjórnarmyndunar, en það hefði ekki tekizt. Það væri því ekki grundvöllur fyrir stjórnarmyndun annarra flokka. Þegar tveir flokkar með ólík sjónarmið að nokkru leyti mynduðu ríkisstjórn saman, yrði málamiðlun auðvitað að koma til og svo væri í ýmsum málum, en aðal- atriðið væri það, að flokkarnir væru sammála um hvernig tekið yrði a efnahagsmálunum. Þau væru mál málanna og yrði að leysa. Þá sagði Steingrímur, að Framsóknarflokk- urinn hefði ekki gert kröfu til for- sætisráðherraembættisins. Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í gærkvöldi. Með honum á myndinni eru þingmennirnir Ólafur G. Einarsson, Matthías Bjarnason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Ljóxm. Mbl.: KÖE Steingrímur Hermannsson tekur við stjðrnarmyndunarumboðinu frá forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur á Bessastöðum í gærkvöldi. í nótt kaus þingflokkur Framsóknar Steingrím sem forsætisráðherra, Jón Helgason landbúnaðar-, dóms- og kirkjumálaráðherra, Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra og Alexander Stefánsson sem félagsmálaráðherra. Ljósm. Mbl. EmilÍJL MX-áætlunin samþykkt í öldungadeildinni: 11 demókratar gengu í lið með republikönum Washinglon, 25. maí. AP. ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings, þar sem republikanar eru í meirihluta, samþykkti í dag með 59 atkvæðum gegn 39 þá áætlun Reagan forseta að koma upp 100 MX-eldflaugum, sem komið verði fyrir á skotpöllum neðanjarðar í vesturhluta Bandaríkjanna. Áður hafði fulltrúadeild þingsins samþykkt áætl- unina. Þetta er talinn meiri háttar sig- ur fyrir Reagan forseta á þingi, en með þessari samþykkt féllst þingið á 625 millj. dollara fjárveitingu til þróunar og tilrauna með þessa eld- flaug. EUefu þingmenn úr röðum demó- krata gengu í lið með 48 þingmönn- um republikana í öldungadeildinni og samþykktu tillöguna nú, sem var samhljóða þeirri tillögu, sem samþykkt hafði verið í fulltrúa- deildinni með 239 atkvæðum gegn 186. Hér er um mikla breytingu að ræða frá því í desember sl. er full- trúadeildin neitaði ósk forsetans um fjárveitingu til MX-eldflaug- anna, sem eru langdrægar og geta flutt margar kiarnorl-vsnrengjur hver. Reagan for-eti lagði mikið kapp á að fá áætlun sína samþykkta nú og átti í þvi skyni marga fundi með einstökum þingmönnum, sem áður höfðu verið andvígir áformum hans, til þess að fá þá til þess að skipta um skoðun. í viðræðum sín- um við þingmenn lagði forsetinn mikla áherzlu á einlægni sína varð- andi takmörkun á kjarnorkuvopn- um og kvaðst mundu kanna ítar- lega allar tillögur um gagnkvæma fækkun á eldflaugum Bandaríkja- manna og Rússa. Framleiðsla nýrra eldflauga myndi hvorki hindra né draga úr þeim athugun- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.