Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983
17
Á hestbaki
Kvikmyndir
Ólafur M. Jóhannesson
Nafn á frummáli: YFIR KJÖL
Lcikin heimildarmynd á vegum ís-
film hf.
Sýnd í sjónvarpi á íslandi 22.5. ’83.
Kvikmyndun: Ari Kristinsson.
Hljóó: Jón Hermannsson.
Textahöfundur og þulur: Indriói G.
Þorsteinsson.
Það má segja að hvítasunnu-
mynd sjónvarpsins ’83 hafi verið
myndin: Yfir Kjöl, sem
kvikmyndafélagið Ísfilm stendur
að og fjallar um ferð danska
liðsforingjans Daniel Bruun yfir
Kjöl 1898. En þessi ferð var farin
með tilstyrk þáverandi lands-
stjórnar og ætlunin að hlaða
vörður er vísuðu mönnum leið
um Kjalveg milli Akureyrar og
Reykjavíkur að því mér skilst.
Að baki þessari grjóthleðslu lá
sú hugsjón að endurvekja hina
ævafornu ferðamannaleið um
Kjalveg. Nú eins og menn heyra
hefur ferð Daniels og félaga ver-
ið ósköp hversdagsleg lestarferð
yfir hrjóstrugt hálendi tslands
ef undan er skilin vörðulagning-
in sem marka átti tímamot i
ferðamáta þess tíma. Hélt ég
satt að segja að Ágúst Guð-
mundsson leikstjóri þessarar
leiknu heimildarmyndar ísfilm
hf., myndi einbeita sér að því að
sýna áhorfendum hið raunveru-
lega verkefni leiðangursmanna:
vöróuhleósluna. Ég varð fyrir
miklum vonbrigðum því aðeins
var lagður hornsteinn að einni
einustu vörðu. Það hefði kannski
verið hægt að smala saman
grjóti í svo sem þrjár, fjórar í
viðbót. Þess í stað einbeitir leik-
stjórinn sér að því að sýna menn
á hestbaki.
Fannst mér er líða tók á
myndina að hér væri kominn
íþróttaþáttur í umsjón Stein-
gríms Sigfússonar allaballa-
þingmanns. Annars hafði ég
lúmskt gaman af því að skoða
hestana því hjá mér var staddur
reyndur hestamaður er notaði
tækifærið að útskýra muninn á
tölti, skeiði, stökki, valhoppi,
lötri og brokki. Fannst mér
myndin afskaplega fróðleg að
þessu leyti og í ætt við sannar
Jóhannes Geir hripar niður landslag en Harald Jespersen (Daniel Bruun)
horfír á af hestbaki.
heimildarmyndir. Annars hafði
ég mest gaman af því að fylgjast
með Jóhannesi Geir listmálara
bregða litum i vatn og þaðan á
pappír. Það er unun að sjá
snjalla listamenn töfra fram
myndveraldir með örfáum pens-
ilstrokum. Þá fannst mér at-
hyglisvert skot er sýndi gamlar
hestagötur sem voru líkt og risp-
ur í landið. Ekki voru nú þá
komnir jeppar með drif á öllu.
Raunar voru jeppaför meðfram
hestagötunum. Leiddi þetta
huga minn að því hve fáránlegt
er að banna þaulæfðum ökuþór-
um að aka um „kjalvegi" lands-
ins. Þessir menn eru nefnilega
ekki ósvipaðir Daniel Bruun; því
að baki rallumsókninni liggur
áhugi á að marka nýjar leiðir
fyrir þarfasta þjón samtímans.
Hér er heldur ekki verið að
hugsa um staða klára eða ótemj-
ur sem geta hlaupið út undan sér
út um alla móa með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum fyrir nátt-
úru landsins.
Nei, rallkappar nútímans ferð-
ast á fulltömdum gæðingum og
setja metnað sinn í að halda
þeim innan hinna vörðuðu slóða
ðbyggðanna. Sá er mestur í
þeirra hugum sem hvergi snertir
sóley eða lóuegg utan hinnar
mörkuðu leiðar. Með nýrri ríkis-
stjórn frjálslyndra víðsýnna
manna er von að ísland verði
ekki framvegis læst í greipum
einangrunarstefnu og austan-
tjaldsglópsku en menn á borð við
Daniel Bruun boðnir velkomnir
að varða upp á nýtt hinar fornu
þjóðleiðir. Með því að leggja
hornsteininn rétt er engin hætta
á að hinni viðkvæmu náttúru
okkar blessaða lands verði spillt
en von að hér blómgist mannlíf
af kynnum við nýja siði. Hér á
vel við að ljúka pári með eftir-
farandi hendingu úr Hávamál-
um: Sá es sæll, / es sjalfr of á /
lof ok vit, meðan lifir, / því at ill
ráð / hefr maðr oft þegit / ann-
ars brjóstum ór.
Barnafatnaður
© Vorumorkaöurinn hf.
| Barnafatadeild sími 86113.