Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 32

Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983 Um samsæris- og kjarnorkubólu — eftir Guðmund Georgsson í grein eftir Björn Bjarnason, sem birtist í blaði þessu 31. mars sl., er veist að Samtökum herstöðvaand- stæðinga (SHA) fyrir að vekja á því athygli vorið 1980, að samkvæmt ýmsum erlendum heimildum væru kjarnorkuvopn hérlendis. Jafnframt eru í greininni ásakanir um samsæri herstöðvaandstæðinga og tiltekinna fréttamanna við útvarpið. Þar eð ég var formaður miðnefndar SHA, þeg- ar þessi mál voru tekin upp, og því ábyrgur fyrir gerðum þeirra, leyfi ég mér að gera nokkrar athugasemdir, en tek það fram, að ekki verður um tæmandi úttekt á öllum fullyrðing- um Björns að ræða, enda mundi það verða of rúmfrekt. Samsærisbólan Varðandi samsæriskenninguna þá er þess að geta að einu sam- skipti SHA við Hallgrím Thor- steinsson fréttamann í þessu máli voru þau, að hann hringdi í skrifstofu SHA eftir mótmælaað- gerðir okkar við utanríkisráðu- neytið þann 8. maí 1980 og spurð- ist fyrir um heimildir okkar. Ann- aðhvort starfsmaður eða einhver annar, sem staddur var á skrif- stofunni, varð fyrir svörum og veit ég ekki hvort sá hafði heimildirn- ar tiltækar. Þetta var allt og sumt. Flokkist það undir samsæri, að fréttamaður reyni að grafast fyrir um heimildir alvarlegra staðhæf- inga, þá er orðið vandlifað að vera fréttamaður. Okkur herstöðvaandstæðingum hefur oft fundist furðu hljótt í ríkisfjölmiðlum um málstað, sem nýtur mikils fylgis meðal þjóðar- innar, svo að okkur virðist sam- særið vera samsæri þagnarinnar eða a.m.k. sem fæstra orða. Við höfðum hugboð um ástæðuna. Nú hefur sá grunur verið staðfestur, því Haligrímur getur þess í viðtali við Þjóðviljann, að fréttamenn veigri sér við að fjaila ítarlega um þessi mikilsverðu mál vegna ofrík- is sem þeir eru beittir. Þetta er sennilega það alvarlegasta sem framlag Björns Bjarnasonar hefur leitt í ljós. Þarna er vegið að einni af meginstoðum lýðræðis, upplýs- ingamiðlun og skoðanaskiptum. Ég treysti mér ekki til að lá fréttamönnum, þó að þeir reyni að sneiða hjá viðfangsefnum, sem virðast kalla fram slík viðbrögð, hvernig sem á málum er haldið til að fá vinnufrið og frið fyrir at- vinnurógi. Mér er það frekar að- dáunarefni hversu margir þrauka. Ég vænti þess að Björn svíði víðar en í öxlinni eftir viðurkenn- ingarklappið frá bandaríska sendiherranum fyrir að koma í veg fyrir frekari umræðu í útvarp- inu um þetta mál. Ég vona að hann verði a.m.k. ekki orðinn sig- inaxla af slíkum atlotum, áður en hann áttar sig á því, að með því er hann kominn á braut, sem sæmir lítt sannleiksleitandi manni, sem virðist reiðubúinn að fórna lífinu fyrir lýðræðið. Kjarnorkubólan Varðandi það sem Björn kallar „skollaleik" og „dylgjur" her- stöðvaandstæðinga um að hér væru kjarnorkuvopn, skal þess getið, að fyrir þessari staðhæfingu höfðum við eftirtaldar heimildir: Defense Monitor, Bulletin of Atomic Scientists, Ambio, árbók SIPRI og bókina Arms uncon- trolled. Ef málflutningur byggður á svo fjölþættum heimildum flokkast undir „dylgjur" og „skollaleik", verður tæpast nokkru máli hreyft svo að það fái ekki þennan stimpil. Þá mundi vænt- anlega ríkja þögn um flest mál, en máske er það einmitt það sem Björn Bjarnason og aðrir mál- svarar hersetu og NATO-aðildar vilja helst. óskandi væri að Björn Bjarna- son gerðist jafn gagnrýninn á heimildir, þegar hann boðar auk- inn vígbúnað hérlendis. Þar virð- ist hann harla lítilþægur. Orð Ronald Reagans eða Caspar Wein- bergers virðast nægja. Ekki er hlustað á ómerkinga eins Edward Kennedy, Mark Hatfield, Robert McNamara, Cyrus Vance eða Paul Warncke, svo að tilnefndir séu nokkrir af fjölmörgum málsmet- andi Bandaríkjamönnum, sem hafa annað mat á ógnarjafn- væginu en ofangreindir ráðamenn. Það er athyglisvert að eftir ríf- lega tveggja ára athuganir Björns Bjarnasonar stöndum við raunar í sömu sporum og þegar þessu máli var hreyft árið 1980. Það virðist nokkuð ljóst núna að um eina frumheimild hafi verið að ræða, þ.e. Center for Defense Informa- tion (CDI) í Washington. Sam- kvæmt síðustu upplýsingum frá þeirri stofnun, sem Björn tilgrein- ir, greinir menn á sem við þá stofnun starfa. Gene La Rocque forstjóri CDI telur enn að miklar líkur séu á því að kjarnorkuvopn séu á íslandi, en David Johnson rannsóknarstjóri telur að líklega séu ekki kjarnorkuvopn á landinu og byggir þá skoðun m.a. á ákveðnum yfirlýsingum íslenskra stjórnvalda, en bætir hinsvegar við að kjarnorkuvopnum gæti ver- ið komið fyrir á landinu á stríðs- tímum. Aðferð Björns er síðan að grafa undan tiltrú á þann sem tekur stærra upp í sig. Sumt er heldur billegt og lítt sæmandi kröfuhörð- um manni um fréttamennsku. Ég held a.m.k. að það skipti litlu máli fyrir mat á málflutningi okkar Björns, þó að reykvískur bílstjóri, jafnvel gamalreyndur, kannaðist helst við okkur sem Bjössa bros- hýra eða Gvend fúla. Þess er tæp- ast að vænta að nokkur Banda- ríkjamaður, sem býr við gífurleg- an kjarnorkuvígbúnað heimafyrir, hafi teljandi áhyggjur af því, hvort á íslandi séu kjarnorku- vopn. Mér finnst það mjög virð- ingarvert af Gene La Rocque að berjast fyrir því að Bandaríkin láti uppi hvar þau hafa kjarnorku- vopn og hafa af því áhyggjur, að Bandaríkin fari á bak við vinveitt- ar þjóðir. Hann hefur fyllstu ástæðu til að ætla að svo sé, þó að Birni láist af einhverjum ástæðum að geta þess. Minna má á tvö dæmi, er bandarískar herflugvél- ar, sem hröpuðu með kjarnorku- sprengjur innanborðs við Thule á Grænlandi 1968, og nýlegri upp- lýsingar um samningsrof Banda- ríkjanna á Japönum á banni við því að bandarísk skip með kjarn- orkuvopn kæmu í þarlendar hafn- ir. Ekki veit ég hvaðan Gunnari Eyþórssyni, sein ritar í Morgun- blaðið 4. maí, koma heimildir um að flugvélar með kjarnorku- vopn hafi lent á Keflavíkurflug- velli. Er þar ekki verið að fara á bak við íslenska ráðamenn? Á meðan bandarísk yfirvöld gera hvorki að játa né neita tilvist kjarnorkuvopna, og þau þar að auki æ ofan í æ vís að brigðmælgi og íslensk stjórnvöld hafa ekki komið upp nákvæmu eftirliti með öllum búnaði og ferðum banda- rískra hertóla, verður öll umræða um þessi mál næsta ófrjó. Það er rangt hjá Birni, að bandarísk yfir- völd hafi breytt um stefnu varð- andi upplýsingar um kjarnorku- vopn, a.m.k. virtist það hafa farið framhjá aðstoðarvarnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sem fyrir nokkrum vikum sat fyrir svörum á sjónvarpsskermi Menn- ingarstofnunar Bandaríkjanna hérlendis. Dæmin sem Björn tekur um hið gagnstæða eru vægast sagt Þjóðhættuleg iðja nátttrölla — athugasemd viö grein Guðmundar Georgssonar eftir Björn Bjarnason Skilyrði þess að málefnalegar um- ræður fari fram á opinberum vett- vangi um jafn mikilvæg mál og ör- yggi íslands er að sjálfsögðu að við- horf séu reifuð í réttu samhengi og málstaður ekki gerður tortryggilegur með útúrsnúningi eða beinum rang- færslum. ITm allan hinn vestræna heim standa menn frammi fyrir því, að alls kyns upplýsingamiðlun er stunduð í því skyni að rugla menn í ríminu. Grein Guðmundar Georgs- sonar, læknis, er dæmigerð fyrir vinnubrögð þeirra manna sem án skynsamlegra raka leitast við að grafa undan málflutningi þeirra, sem styðja samstarf vestrænna þjóða í Atlantshafsbandalaginu, samstarf sem miðar að því að tryggja frið með frelsi. 1) Samtök herstöðvaandstæð- inga (SHA) héldu því fram vorið 1980, að kiarnorkuvopn væru geymd á Islandi. Hallgrímur Thorsteinsson lýsti því yfir í út- varpinu 20. maí 1980, að SHA vís- aði til „Bulletin of Atomic Scient- ists“ þessu til staðfestingar. 2) Það getur ekki talist til ofrík- is að sýna fram á hve óheiðarleg- um aðferðum var beitt vorið og sumarið 1980 til að koma á fram- færi þessari skoðun Samtaka herstöðvaandstæðinga. Að kalla opinberar umræður um þessi mál „atvinnuróg" um blaðamenn er auðvitað út í hött. Blaðamenn verða að sæta gagnrýni fyrir störf sín eins og aðrir. Gefist þeir upp vegna gagnrýni geta þeir ekki kennt öðrum um það. 3) „Viðurkenningarklappið frá bandaríska sendiherranum" fólst í því að sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík sendi í skeyti til Wash- ington frétt Þjóðviljans um að ég hefði neitað að ræða við Ölaf R. Grímsson í þætti hjá Hallgrími Thorsteinssyni. Fyrir liggur yfir- lýsing frá Hallgrími Thorsteins- syni um að frétt Þjóðviljans var röng. 4) Allar þær greinar sem Guð- mundur Georgsson nefnir, byggj- ast á einni og sömu heimild, The Defense Monitor frá febrúar 1975. Að ábendingu Eiðs Guðnasonar, alþingismanns, kannaði stofnunin World Priorities í Washington forsendurnar fyrir fullyrðingu í eigin riti um að kjarnorkuvopn væru á íslandi í desember 1981. Sú könnun leiddi í ljós, að aðeins þessi eina grein í The Defense Monitor lægi að baki fullyrðing- unni, og var hún samstundis dreg- in til baka með þessum orðum for- stöðumanns World Pri^fites í bréfi til Eiðs Guðnasonar: „Ég harma þessi mistök mjög og vil fullvissa yður um að við munum birta athugasemd með leiðrétt- ingu í næstu útgáfu." Samtök herstöðvaandstæðinga draga auð- vitað ekki í land eða biðjast afsök- unar, enda vakir annað fyrir þeim en hafa það sem sannara reyriist. 5) Ég hef hvorki vitnað í Ronald Reagan né Caspar Weinberger því til stuðnings að halda þurfi uppi vörnum á Islandi. og hugmyndir mínar um öryggi íslands byggjast á mati á íslenskum hagsmunum innan ramma samstarfsins í Atl- antshafsbandalaginu. Hvað varð- ar þá Edward Kennedy og Mark Hatfield þá er rétt að það komi fram, að um bók þeirra, þar sem mælt er með frystingu kjarnorku- vopna, ritaði ég hér í blaðið á sín- um tíma við fögnuð Þjóðviljans. 6) Þeir sem enn standa í sömu sporum nú og 1980, þegar rætt er um kjarnorkuvopn og ísland, eru Samtök herstöðvaandstæðinga og Gene La Rocque, sem er í miklum minnihluta innan Center for De- fense Information eins og SHA meðal íslendinga. Þessi tvö nátt- tröll dagaði uppi sumarið 1980. 7) Bandaríkjastjórn játar hvorki né neitar tilvist kjarnorku- vopna, það er hin opinbera stefna hennar. Engu að síður lýsti sá starfsmaður í bandaríska varn- armáiaráðuneytinu sem fer með máiefni er varða ísland, Jon L. Lellenberg, því yfir í samtali sem birtist í Tímanum 2. mars 1982, að engin kjarnorkuvopn væru á fs- landi. Og Gunnar Gunnarsson, starfsmaður öryggismálanefndar, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti slitið FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breió- holti brautskráði á lostudag 102 stúdenta, en auk þess hlutu 107 nemendur prófskírteini af eins, tveggja og þriggja ára námsbrautum. Frábærum árangri á stúd- entsprófi náðu tveir nemendur, Margrét K. Sigurðardóttir af upp- eldissviði 152 einingar 426 stig, og Magnús Kristjánsson af eðlis- fræðibraut bóknámssviðs 150 ein- ingar 425 stig. Nú eru tíu ár liðin frá stofnun skólans og áttunda starfsári hans að Ijúka. Áðalbygging skólans hef- ur risið á því ári, en hún tengir tvær útálmur skólans. Þá hafa nemendur á tæknisviði byggt vandaða byggingu yfir hússtjórn- arsvið skólans í vetur, og innrétt- að félagsaðstöðu sína. Á vorönn Fjölbrautaskólans voru nemendur í dagskóla 1221 talsins, en í kvöldskóla, öldunga- deild 511 nemendur, alls 1732 nemendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.