Morgunblaðið - 26.05.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 26.05.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983 45 Þessir hringdu . . Zeppelin stoppaði yfir Öskjuhlíðinni Klla Einarsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg var hér árið 1930, þegar Zeppelin- flugfarið flaug yfir bæinn. Þess vegna varð ég hálfpartinn fyrir vonbrigðum, þegar ég las frá- sögn af þessum viðburði f Morg- unblaðinu nú fyrir skömmu, að þess var ekki getið, að flugfarið stoppaði í næstum heila klukku- stund yfir Öskjuhlíð. Settur var stigi niður og kostur hífður um borð. Ég minnist þess, að kaft- einninn stóð þar og vinkaði til okkar. Það var fjöldi manns uppi í Öskjuhlíð, svo að það hljóta margir að muna eftir þessu. Manni fannst eins og þarna héngi heilt skemmtiferðaskip uppi í loftinu; svo gríðarstórt var farið. Þá minnir mig að kaft- einninn hafi heitið Eckener en ekki Lehmann, eins og stóð í frásögninni. I»essar myndir af Zeppelin tók Kristinn Einarsson uppi í Öskju- hlíð. Frábær söngv- ari í hlutverki Turiddus Hjálmtýr Hjálmtýsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að vekja at- hygli á því, hve frábær tenór- söngvari er hér á landi að syngja hlutverk Turiddus í óperunni Cavalleria Rusticana, sen nú er sýnd í Þjóðleikhúsinu. Þetta er bandaríski tenórsöngvarinn Maurice Stern og leyfi ég mér að benda fólki á að láta ekki ein- stakt tækifæri úr greipum ganga að hlusta á þennan dramatiska söngvara, sem er tvímælalaust á heimsmælikvarða. Mér finnst VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS mniMurmruhi'ii If Maurice Stern allt of lítið hafa verið gert af því í fjölmiðlum að vekja athygli á þessum frábæra listamanni. 27 tommu dekk til í Mflunni Ásgeir Heiðar, verslunarstjóri í Mílunni, hringdi og hafði eftir- farandi að segja: — Ég las grein í þættinum, þar sem einhver var að kvarta um, að 27 tommu reiðhjóladekk væru ekki til í landinu. Þetta er nú ekki alveg rétt. Dekk af þessari stærð höf- um við alltaf átt og þau eru til. Við höfum aldrei flutt inn reiðhjól af þessari dekkjastærð, en höfum samt verið með slöng- ur og dekk fyrir þau. Sumaropnunartími Frá og meö 24. maí til 1. september veröa skrifstofur okkar opnar frá 8.00 f.h. til 4.00 e.h. INGARFÉLAG ÍSLANDS ? SUOURLANDSBRAUT 4 -- PÓSTHÓLF 5300 -- 125 RETKJAVÍK _ ISLAND VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Lærdómsdeild Verslunarskóla íslands verður slitiö laugardaginn 28. maí kl. 2 e.h. í hátíöarsal skólans. Verslunarskóli íslands. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja mílli kl. 11 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisfong verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. GÆTUM TUNGUNNAR Að dingla merkir að sveiflast eða vingsa en EKKI að hringja. Leiðréttum börn sem flaska á þessu! límtré sparar f yrir þig Límtré fyrirliggjandi úr furu, eik og brenni. Tilvalið efni fyrir þig til að smíða úr sjálfum þér til ánasgju - og svo sparar þú stórfé um leið! Hringdu í sima 25150 og við veitum __ fúslega allar nánari upplýsingar. BJORNINN HF Skulaium 4 - Simi 25150 Reykiavik SlGGA V/öGA í l/LVEÍWki . A U k> U>ltD (.Utli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.