Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 48

Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 48
”T^Úglýsinga- síminn er 2 24 80 veríð örugg verslíð við fagmenn! FIMMTUDAGUR 26. MAI 1983 Víðtækar aðgerðir fyrirhugaðar: Laun hækka um 8% 1. júní nk. 4% 1. okt., lögbundin til 31. jan. Vísitölukerfið afnumið í tvö ár — Barnabætur og tekju- trygging hækkar — tekjuskattur lækkar — Lenging lána RÍKISSTJÓRN Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks mun beita sér fyrir víðtækum aðgerðum í efnahagsmálum, fjármál- um og atvinnumálum á næstu vikum, að því er fram kemur í stjórnarsáttmála flokkanna tveggja, sem væntanlega verður kynntur opinberlega í dag. Er markmiö þessara aðgerða að tryggja atvinnuöryggi, lækka verðbólgu verulega, ná jafnvægi í viðskiptum við útlönd og vernda kaupmátt lægstu launa. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins eru eftirfarandi aðgerð- ir ráögerðar í stjórnarsáttmála hinnar nýju ríkisstjórnar: i Vísitölukerfi launa verður af- numið í tvö ár frá, 1. júní nk. til 1. júní 1985. ' Ákveðið verður með lögum, að laun hækki um 8% hinn 1. júní nk. en lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu samkvæmt ákvæðum kjarasamninga ASÍ og BSRB hækki um 10%. Að óbreyttu hefði kaupgjaldsvísitalan hækk- að um 20—22% um næstu mán- aðamót. Hinn 1. október hækki laun um 4%. Allir gildandi kjarasamn- ingar verði framlengdir með þessum breytingum til 31. janú- ar 1984. Að þessum tíma liðnum eru samningar um kaup og kjör á valdi aðila vinnumarkaðarins. Mildandi aögerðir Til þess að draga úr áhrifum þessara aðgerða á kjör hinna verst settu mun hin nýja ríkistjórn beita sér fyrir eftirfarandi ráðstöfunum: • Skattar og tollar, sem leggjast með miklum þunga á nauðsynja- vörur verði lækkaðir. • Barnabætur barna að 7 ára aldri verði hækkaðar. • Tekjuskattur verður lækkaður með auknum persónuafslætti. • Jöfnun húshitunarkostnaðar verður aukin verulega. • Tekjutrygging lífeyrisþega hækkar umfram laun, og mæðra- og feðralaun hækka sér- staklega. Frestur á greiðslum vaxta og afborgana Skv. upplýsingum Morbunblaðs- ins er ráðgert í stjórnarsáttmála, að ríkisstjórnin beiti sér fyrir eftirfarandi aðgerðum vegna hús- byggjenda: • Heimilt verður að fresta greiðslu á 15—25% af saman- lagðri fjárhæð afborgana, verð- tryggingaþátta og vaxta verð- tryggðra lána hjá byggingar- sjóðum ríkis og verkamanna og íbúðalánum banka og annarra lánastofnana. Þessum greiðslum skal bætt við höfuðstól láns og lánstími lengdur. • Þeir sem stofnað hafa til skulda vegna bygginga eða kaupa á eig- in húsnæði í fyrsta sinn undan- farin 2—3 ár eigi kost á skuldbreytingalánum. • Lán Húsnæðismálstjórnar til þeirra sem byggja í fyrsta sinn hækki um næstu áramót. • Vextir lækki í samræmi við verðbólgustig síðar á árinu. Grundvöllur lánskjara verði endurskoðaður og stefnt að lengri lánstíma. Verðlagsmál — Bú- vöruverð — Fiskverð Á þessum sviðum er stefnt að eftirfarandi: • Aðeins skal heimiluð hækkun á vörum og þjónustu, sem nauð- synleg er til að standa undir óhjákvæmilegum kostnaðar- hækkunum fyrst um sinn. Síðan er stefnt að því að frjáls verð- myndun komi til skjalanna, þar sem samkeppni er næg. Sveit- arfélög eiga sjálf að ákveða gjaldskrár þjónustufyrirtækja sinna. • Laun bónda í verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða hækka ekki umfram almennar launabreyt- ingar. • Verð á þeim fisktegundum, sem getið er um í tilkynningu Verð- lagsráðs sjávarútvegsins nr. 4/1983 skal ekki hækka að með- altali umfram almennar launa- breytingar. Stjórnarsáttmálinn: Aukið frjálsræði í gjaldeyrisverzlun Samningar teknir upp við Álfélagið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks, sem tekur við völdum í dag, eru ákvæði um stóriðju, breytingar á stjórnkerfi og utanríkismál. Hin nýja ríkisstjórn ráðgerir eftirfarandi í deilumálum við Svissneska álfélagið og í öðrum stóriðjumálum: • Samingar verði teknir upp að nýju við álfélagið um verulega hækkun raforkuverðs og önnur atriði. • Kannaðir verði möguleikar á þriðja eignaraðila að Járn- blendiverksmiðjunni í Hvalfirði. • Nýjum aðilum verði gefinn kost- ur á eignaraðild í Kísil- málmverksmiðjunni. • Við byggingu orkuvera verði gætt samrærnis milli markaðs- öflunar og virkjunarfram- kvæmda. f stjórnarsáttmála hinnar nýju ríkisstjórnar munu ráðgerðar ýmsar umbætur í stjórnkerfi landsins og peninga- og lána- stofnunum, þ.á m.: • Ríkisendurskoðun heyri undir Alþingi. • Yfirstjórn bankamála verði í einu ráðuneyti. • Frjálsræði í gjaldeyrisverzlun verði aukið og réttur til að eiga fé á gjaldeyrisreikningum rýmk- aður. • Framkvæmdastofnun ríkisins verður endurskipulögð. Verkefni áætlunardeildar færð til ann- arra stofnana. Framkvæmda- sjóði verði mörkuð staða í tengslum við endurskipulagn- ingu sjóðakerfis. Lánastefnu Byggðasjóðs verði breytt og sjálfvirkni í lánveitingum af- numin. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun hin nýja ríkis- stjórn stefna að eftirfarandi: Bygging nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli verði hafin. Framkvæmdum í Helguvík verði haldið áfram. Ljósm.: Anna Jóhannsdóttir Svifdrekafélag Reykjavíkur gekkst fyrir svifdrekamóti í Ólafsvík um hvítasunnuna og voru þátttakendur um 20 talsins. Sjá frásögn og myndir á bls. 5. Piltar á bifhjólum á gangstígum: Höfum tekið marga — en þeir koma jafnharðan aftur segir Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn „AKSTUR bifhjóla á gangstígum í Breiðholti og Fossvogi er mikið vandamál. Við höfum tekið marga pilta á hjólum og afhent hjólin foreldrum þeirra. En þetta er eins og að moka í botnlausan hít. Strákarnir eru jafnharðan komnir á gangstígana aftur,“ sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn í samtali við Mbl. er blaðið bar undir hann frétt sem birtist siöastliðinn sunnudag um slysahættu af völdum bifhjóla á gangstígum í Breiðholti. „Fólk kvartar mjög undan ágangi vélhjóla og hættuna af þeim. Eltingarleikur við strákana er hvimleiður og þeir eiga marga möguleika á að komast undan. Við fórum fram á það við Reykjavík- urborg, að hindrunum yrði komið upp, en það er talið útilokað vegna þess að þá komast konur ekki um með barnavagna. Skilti um bann við bifhjólaakstri, sem sett hafa verið upp, hafa ekki reynst hafa áhrif — strákar hafa ekki virt þau viðlits og ekið um gangstígana. Samstarf við foreldra þeirra þarf að koma til — því miður hefur ekki tekist að fá foreldra til þess, að leggja að sonum sínum, að aka ekki á gangstígum," sagði óskar ólason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.