Morgunblaðið - 27.05.1983, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983
Msöur, sem aðeins var nefndur „Hr. Vitni“, kom í vikunni fyrir bankanefnd á vegum Bandaríkjaþings, sem rannsakaði svik vegna greiðslukorta
(kreditkorta). Maðurinn hafði verið látinn laus nýlega úr fangelsi, þar sem hann hafði afplánað dóm fyrir greiðslukortasvika og neitaði að koma fyrir
nefndina, nema hann fengi algerlega að leyna því, hver hann væri.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlin
Chtcago
Dyflinni
Feneyjar
Frankfurt
Helainki
Hong Kong
Jerúsalem
Jðhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Líssabon
London
Los Angeles
Madríd
Mallorca
Mexíkóborg
Miami
Moskva
Nýja Dehli
New York
Osló
París
Rio de Janeiro
Reykjavík
Rómaborg
San Francísco
Stokkhóimur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
Þórahðfn
8 léttskýjað
10 alskýjaó
27 heióskírt
19 lóttskýjaó
15 alskýjaó
14 heióskírt
18 heióskírt
18 skýjaó
12 rigning
22 heióskírt
26 skýjaó
28 heióskírt
19 heióskírt
36 heióskirt
16 skýjaó
21 lóttskýjaó
26 heióskirt
16 skýjaó
27 skýjað
24 heióskírt
22 lóttskýjaó
22 lóttskýjaó
24 skýjað
29 heióskírt
30 heióskírt
38 skýjaó
24 heióskírt
20 skýjaó
16 skýjaó
11 heióekírt
24 rigning
10 mistur
18 rigning
17 hefðskirt
18 skýjaó
15 rigning
26 heióskfrt
18 skýjaó
21 skýjaó
17 heióskfrt
6 skýjaó
El Salvador:
Bandarískur hernað-
arráðgjafí drepinn
San Salvador, 26. maí. AP.
HÁTTSETTUR bandarískur hernað-
arráðgjafi í San Salvador var í dag
drepinn með þeim hætti, aö hann var
skotinn fjórum sinnum í höfuðið.
Hann er fyrsti hernaðarráðgjafinn,
sem er drepinn í El Salvador.
Maðurinn var foringi í banda-
ríska flotanum og hét Albert A.
Schaufelberger. Bandaríska sendi-
Frá New York
til London fyr-
ir 149 dollara
London, 26. maí. AP.
BANDARÍSKT Bugfélag fékk í
dag leyfi brezkra stjórnvalda til
þess að byrja flug yfir Atlantshafið
milli New York og London fyrir
aðeins 149 dollara.
Þegar ákvörðun brezka við-
skiptaráðuneytisins um flugleyf-
ið var tilkynnt, tóku allar línur
til skrifstofu bandariska flugfé-
lagsins á Gatvick-flugvelli, 40 km
fyrir sunnan London, að hringja
og svo hélt áfram í allan dag.
Bárust pantanir þúsundum sam-
an til flugfélagsins báðum megin
Atlantshafsins.
„Þetta eru dásamlegar fréttir,"
sagði Patricia Solom, talsmaður
flugfélagsins, er hún frétti um
flugleyfið. Fyrsta flugið var
áformað frá New York í kvöld og
á flugvélin að lenda í Gatvick í
fyrramálið. Flogið verður með
þotu af gerðinni 747-200.
Áður hafði ýmislegt bent til
þess, að brezka stjórnin væri hik-
andi við að veita þetta flugleyfi.
ráðið í San Salvador hefur staðfest
þessa frétt og skýrt frá atburðum á
þann veg, að Schaufelberger hafi
farið einn á bíl sínum til háskólans
í borginni til þess að sækja þangað
vin sinn. Hann kom kl. 6.30 að stað-
artíma að háskólabyggingunni og
lagði þar bíl sínum í bílastæði og
tók að þeyta flautu bílsins, þegar
vinur hans kom ekki.
Skyndilega var öðrum bíl ekið
upp að bíl Shcaufelbergers og úr
honum var skotið fjórum skotum.
Maður, sem átti leið þarna fram-
hjá, kom Schaufelberger til hjálp-
ar, flutti hann yfir í bifreið sína og
ók síðan sem hraðast í næsta
sjúkrahús. En það var til einskis,
því að Schaufelberger var látinn,
þegar í sjúkrahúsið var komið.
Skýrsla bandaríska sendiráðsins
um atburðinn er byggð á framburði
vitna og öðrum upplýsingum, sem
starfsmenn sendiráðsins náðu að
safna saman. Enn er hins vegar
ekkert vitað um, hverjir morðið
frömdu.
Bretland:
Bretland:
Vaxandi
forskot
Ihalds-
flokksins
London, 25. maí. AP.
GALLlJP-skoðanakönnun í blað-
inu The Daily Telegraph í gær
sýndi, að Margaret Thatcher for-
sætisráðherra hefur aukið for-
skot sitt yfir Verkamannaflokk-
inn úr 13 í 15% fyrir þingkosn-
ingar þær, sem fram eiga að fara
í Bretlandi 9. júní nk. I skoðana-
könnuninni tóku þátt 1.700
manns og samkvæmt niðurstöð-
um hennar nýtur íhaldsflokkur-
inn nú fylgis 48% kjósenda, en
hafði 46% í Gallup-skoðanakönn-
un sem fram fór á vegum sama
blaðs í síðustu viku.
Verkamannaflokkurinn naut
nú stuðnings 33% aðspurðra,
sem var það sama og í síðustu
viku, en 18% studdu Bandalag
frjálslyndra og sóstaldemó-
krata á móti 19% í síðustu
viku. Aðrir höfðu nú 1% í stað
2% áður.
Petra Kelly, einn helzti for-
sprakki græningjanna í Vest-
ur-Þýzkalandi, ljáði í dag að-
stoð sína við upphaf kosninga-
baráttu umhverfisverndar-
sinna í Bretlandi. Á fundi með
fréttamönnum í London í dag,
sagði hún, að stefnuskrá þess-
ara flokka væri svipuð í báðum
löndunum. Flokkur hennar hef-
ur nú 27 þingsæti á vestur-
þýzka sambandsþinginu. Jona-
than Porritt, einn helzti foringi
brezkra umhverfisverndar-
manna sagði á þessum fundi, að
hann væri raunsær varðandi
möguleika flokks síns í kom-
andi kosningum.
Flokkurinn hefði boðið fram
í 53 kjördæmum f kosningunum
1979 en byði fram í 108 kjör-
dæmum nú. Þá hefði flokkur
hans ekki fengið nema 1,5% at-
kvæða 1979 en gerði sér jafnvel
vonir um að fá 5% nú.
Margrét Thatcher
Meírihlutinn með
kjarnorkuvörnum
Vindill á 320 pund
London, 26. maí. AP.
ÁTTA þumlunga langur Havana-
vindill, sem tilheyrði sir Winston
Churchill, forsætisráðherra Breta í
síðari heimsstyrjöldinni, var í gær
seldur ónafngreindum kaupanda
fyrir 320 pund. Fór salan fram á veg-
um uppboðsfyrirtækisins Christie.
„Ytra laufið var aðeins farið að
trosna, en vindillinn var geymdur
í hylki með glerloki og þannig búið
um hann, að hann mætti geymast
sem bezt," sagði talsmaður fyrir-
tækisins. Áletrun á hylkinu
greindi frá því, að vindillinn ætti
uppruna sinn að rekja til vindla-
kassa, sem Churchill gaf til góð-
gerðaruppboðs sem fram fór á
vegum flughersins 1942.
Sams konar Havana-vindill
kostar nú í London rúmlega 5
pund.
London, 26. maí. AP.
BKESKIR kjósendur virðast
hafa tekið ákveðnari afstöðu
en fyrr í þeim deilum, sem
staöið hafa um kjarnorku-
vopn þar í landi, og er vax-
andi forskot íhaldsflokksins
í síðustu skoðanakönnunum
rakið til þess. í fyrsta sinn er
nú meirihluti Breta hlynntur
því að koma upp bandarísk-
um stýrieldflaugum í Bret-
landi og að Bretar kaupi
Trident-eldflaugar af Banda-
ríkjamönnum.
Til þessa hafa Bretar verið á
báðum áttum um kjarnorku-
vopnamálin. Meirihlutinn hefur
viljað halda í núverandi vopna-
búnað þjóðarinnar en ekki viljað
fá bandarísk kjarnorkuvopn.
íhaldsmenn, sem hafa haft
áhyggjur af mótmælagöngum og
auknum umsvifum friðarhreyf-
ingarinnar, eru nú sigri hrósandi.
„Okkur hefur tekist að breyta
almenningsálitinu og það er auglj-
óst, að kjarnorkuvopnamálin eru
ekki lengur eitt af helstu kosn-
ingamálunum. Fólki er farið að
skiljast, að svo lengi sem ekkert
breytist fyrir austan járntjald þá
eru kjarnorkuvopn nauðsynleg,"
sagði talsmaður íhaldsflokksins,
Lesley Way.
Þessar niðurstöður eru taldar
mikið áfall fyrir Verkamannafl-
okkinn, sem með hálfum huga hef-
ur heitið því að eyðileggja Polar-
is-eldflaugar Breta en er hins veg-
ar einhuga í andstöðunni við
bandarísku kjarnorkuvopnin.