Morgunblaðið - 27.05.1983, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983
Blaðamenn sátu fyrir fráfarandi ráðherrum er þeir komu út af ríkisstjórn-
arfundinum á Bessastöðum í hádeginu í gær. Gunnar Thoroddsen og frú
Vala Thoroddsen á tali við fréttamann.
„Ég sakna þess að vera
ekki lengur í ráðuneytinu“
— segir Ingvar Gíslason fráfarandi menntamálaráðherra
„Ég SAKNA þess að vera ekki
lengur í menntamálaráðuneytinu,
ég hefði gjarnan viljað vera þar
lengur, en þess var ekki kostur,
þar sem embættið fór til annars
flokks. Við því er ekkert að segja,
svona er pólitíkin," sagði Ingvar
Gíslason, fráfarandi menntamála-
ráðherra í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
„Eg yfirgef ráðuneytið með góð-
um hug. Það eru mörg verkefni
þar óunnin, sem ég hefði viljað
vinna að. Mér hefur líkað ákaflega
vel að vinna þarna. Ef til vill hef-
ur þetta verið skemmtilegasti tími
æfinnar.
Ég hef átt þátt í að vinna að
mörgum verkefnum í ráðuneyt-
inu,“ sagði Ingvar aðspurður, hvað
hefði helst áunnist í ráðherratíð
hans. „Þar vil ég til dæmis nefna
uppbyggingu Ríkisútvarpsins.
Fjárhagur þess hefur verið efldur
í minni tíð og byggingarmál þess
eru komin af stað. Búið er að
leggja hornstein að nýju út-
varpshúsi og verður hluti þess
kominn í gagnið þegar í sumar. Þá
hefur verið efnt til útvarpsrekstr-
ar á Akureyri. Þar er verið að
koma upp húsnæði fyrir þá starf-
semi og ég er mjög ánægður með
að hafa átt hlut að því máli. Þjóð-
arbókhlaða er að rísa, en það er
mikið verk og Listasafn fslands
hefur verið í byggingu á þeim tíma
sem ég hef verið ráðherra. Ég kom
fram lögum um Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, sem lengi hefur ver-
ið beðið eftir. Skólar út um landið
„Ég óska þessari nýju ríkisstjórn
heilla," sagði Friðjón Þórðarson,
fyrrverandi dóms- og kirkjumála-
ráðherra, þegar Mbl. hafði sam-
band við hann í gærdag.
„Ég vona að störf þeirrar sem
nú er frá að hverfa verði metin af
sanngirni. Já, það er < manni
ákveðin eftirsjá. Þegar maður hef-
hafa risið, til að mynda Verk-
menntaskólinn á Akureyri og víða
annars staðar hafa skólar risið út
um landsbyggðina.
Ég óska hinum nýja mennta-
málaráðherra góðs gengis í hinu
nýja starfi," sagði Ingvar Gíslason
að lokum.
ur verið að vinna á ákveðnum stað
með góðu fólki verður í manni eft-
irsjá þegar maður skilur við það.
En það er ekki þar með sagt að
ekki séu allir vegir færir. Ég vil
þakka öllum sem ég hef unnið með
innan þessara ráðuneyta, starfs-
fólki og einnig samstarfsráðherr-
um um norræn málefni," sagði
Friðjón Þórðarson.
„Óska stjórn-
inni heilla“
— segir Fridjón Þórðarson
Gunnar Thoroddsen
fráfarandi forsætisráðherra:
„ÞESSI rúm þrjú ár sem stjórnin
hefur starfað hafa á marga lund ver-
ið mjög ánægjuleg, samstarfið gott
og fjöldi merkra mála gengið fram,“
sagði Gunnar Thoroddsen fráfar-
andi forsætisráðherra, er hann gekk
af fundi forseta íslands á Bessastöð-
um í gær, en hann var spurður hvað
honum væri efst í huga í lok starfa
sem forsætisráðherra.
Gunnar sagði einnig: „Ég minn-
ist þessa samstarfs með ánægju
og sé ekki eftir þessum þremur ár-
um.“ Er hann var spurður álits á
viðtakandi ríkisstjórn svaraði
hann: „Ég óska henni heilla."
Pálmi Jónsson fv. landbúnaðarráðherra:
Tel að margt
hafi áunnist
Síðasti ríkisstjórnarfundur ráðuneytis Gunnars Thoroddsen. Frá vinstri: Ingvar Gíslason, Svavar Gestsson,
Ragnar Arnalds, Ólafur Jóhannesson, Gunnar Thoroddsen, Steingrímur Ilermannsson, Tómas Árnason, Hjörleif-
ur Guttormsson, Pálmi Jónsson, Friðjón Þórðarson. Morgunhlaðið/Kmilía.
Samanburðurinn verður frá-
farandi ríkisstjórn í hag
— segir Svavar Gestsson fráfarandi félagsmálaráðherra
„MÉR HEFUR fundist þetta vera
áhugavert viðfangsefni og verkefnin
hafa verið næg, ég tel að margt hafi
áunnist, það hefur verið mótuð skýr
stefna í málefnum landbúnaðarins
og henni fylgt fram með þeim
árangri meðal annars í framleiöslu-
málum, að jafnvægi hefur verið í
framleiðslu og neyslu mjólkur og
mjólkurvara í þrjú ár,“ sagði Pálmi
Jónsson fyrrum landbúnaðarráð-
herra í samtali við Mbl., en hann lét
af embætti landbúnaðarráðherra í
gær.
„Erfiðleikar eru að vísu í út-
flutningi sauðfjárafurða, en það
hafa verið reyndar nýjar leiðir
þótt í smáum stíl sé, varðandi
vinnslu og söluaðferðir, sem gefa
vissar vonir. Þannig að ég tel enn
of snemmt að slá því föstu að við
eigum ekki að framleiða eitthvert
kindakjöt til útflutnings," sagði
Pálmi.
„Ég tel að unnist hafi verulega á
með nýjar búgreinar í landbúnaði
og eflingu þeirra og þær gefa
verulega möguleika, bæði loðdýra-
rækt, fiskirækt, ylrækt og fleira,
en ýmis þessi mál eru í miðjum
klíðum og framtíðarverkefni eru
næg. Um starfið í heild get ég sagt
að ég hef átt mjög ánægjulegt
samstarf, fyrst og fremst við
starfsfólk landbúnaðarráðuneytis-
ins, við samtök bænda og bændur
víðsvegar af landinu og ég er til-
tölulega anægður með það sem vel
hefur tekist, enda þótt við mikla
erfiðleika sé nú að etja, einkan-
lega í fjárhagsmálum bænda, eftir
það harðæri sem gengið hefur
undanfarin ár og þann samdrátt
sem orðið hefur í hefðbundinni
búvöruframleiðslu, samfara því
sem þessi mikla verðbólguþróun
og gífurlegur fjármagnskostnaður
kemur harðar við landbúnaðinn
en aðra atvinnuvegi," sagði Pálmi
Jónsson.
„ÉG 8KIL við þetta sáttur við Guð
og menn, en þó með söknuði hvað
varöar utanríkisráðuneytið", sagði
Olafur Jóhannesson fráfarandi
utanríkisráðherra á hlaói Bessa-
staða, er hann kom af síóasta
„ÞETTA hefur að mörgu leyti ver-
ið mjög góð ríkisstjórn. Ég held að
menn komi til með að kunna að
meta hana,“ sagði Svavar Gests-
fundi ríkisstjórnar Gunnars Thor-
oddsen.
Ólafur var spurður hvernig hon-
um litist á nýju ríkisstjórnina.
Hann svaraði: „Það er bezt að láta
son fyrrverandi félagsmálaráð-
herra í lok ríkisstjórnarfundar í
gær.
það sýna sig hvort í þeim er dug-
ur.“ Hann var í lokin spurður,
hvort hann hefði tekið þá ákvörð-
un að verða ekki ráðherra áfram.
„Það er ekki víst að ég hafi átt
kost á því,“ svaraði Ólafur.
Svavar sagði ennfremur: „Ég
held að það sem þessi ríkisstjórn
hefur gert til dæmis í félagslegum
efnum verði mikils metið, þegar
fram í sækir og einnig á öðrum
sviðum.
Ég er mjög þakklátur fyrir það
tækifæri sem ég hef haft til þess
að starfa með Gunnari Thorodd-
sen, það hefur verið mjög lær-
dómsríkt og ánægjulegt samstarf.
Ég tel einnig, og raunar óttast að
þegar núverandi ríkisstjórn tekur
við, þá muni menn meta þessa
kannske meira en áður vegna þess
að samanburðurinn verði þessari
stjórn í hag en ekki þeirri sem
tekur við.
*
Olafur Jóhannesson:
Sakna utanríkisráðuneytisins
Eg sé ekki eftir
þessum 3 árum