Morgunblaðið - 27.05.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983
49
fclk í
fréttum
Bette Davis
í „Hotel”
+ Bette Davis, meö sín 75 ár
aö baki, er enn aö leika og hef-
ur nú fallist á að fara með aö-
alhlutverkiö í nýjum sjón-
varpsmyndaflokki, sem heitir
„Hóteliö". Hann er byggður á
sögu Arthur Hailys með sama
nafni, og svo vill til að Bette
Davis er sjálf eigandi aö þessu
glæsilega og sögufræga hóteli.
Prinsinn ekki
hækkaóur í tign
+ Andrew prins, þyrluflugmaöur
í breska sjóhernum, mun ekki
veröa aönjótandi neinna forrétt-
inda hvaö varöar stööuhækkanir
og þarf hann aö öllum líkindum
aö bíöa til ársins 1984 eftir laut-
inants-titli, aö því er segir í fregn-
um bresku fréttastofunnar Press
Association í dag.
Taliö haföi verið líklegt aö
hann yröi hækkaður um tign á
þessu ári, þar sem hann var tal-
inn hafa starfaö dyggilega í Falk-
landseyjastríöinu 1982, en
fréttastofan sagði aö seinkun
yröi á því aö stööuhækkunin
kæmi til framkvæmdar vegna
niöurskuröar á fé til sjóhersins
og færri stööugilda þess vegna.
COSPER
Þaö eru aldrei lengur hár á jakkanum þínum. Ertu
farinn að halda framhjá mér meö sköllóttum
kvenmanni?
TÓNLEIKAR
í Gamla bíói laugardaginn 28. maí kl. 14.00.
Tónlist eftir: Maurice Ravel, Einleikarar: Manuela Wiesler,
Theu Musgrave, Þorkel Sigur- Laufey Siguröardóttir og Anna
björnsson, Clöru Schumann og Guöný Guömundsdóttir.
Georges Bizet. Stjórnandi: Guömundur Emils-
son.
Miðasala í Gamla bíói.
Einstakt tækifæri
Eigum til á lager þessa tvo bíla bankaborgaöa og á
gamla góöa genginu.
Dodge Ramcharger
V8-318, sjálfsk. meö vökvastýri aflhemlum og fl. Verð
447.000,00.
Dodge Van 6-250
meö gluggum, 6 cyl., sjálfsk. meö vökvastýri, afl-
hemlum o.fl. Verö 434.000,00 (347.000,00 til atvinnu-
bílstjóra). Báöir bílarnir eru nýir af árg. 1979.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
SPUNNIÐ UM STAT ÍN
eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN
Þú verður marinn eins og gyðingahundarnir, hrópaði
hann. Ætlaðir þér hlutverk fyrsta konsúls í gagnbylting-
unni. Þú átt þér ekki undankomu auðið, nema þú játir.
Játi? Játi hvað?
Svik, njósnir!
Aldrei!
Þá heldurðu lífi, annars ekki!
Aldrei!
Stalín bandaði honum frá sér með hendinn og snerist á
hæli:
Burt með hann, hrópaði hann. í fangelsi! Þjóðin skal fá
að heyra sannleikann. Og herinn bregzt ekki á örlaga-
stund. Voroshíloff mun sjá um það.
Voroshíloff kinkaði kolli. Túkhachevsky, sem hafði
staðið við hliðina á Stalín á grafhýsi Leníns I. maí, eða
cinungis hálfum mánuði áður en hann var handtekinn,
vissi nú að dagarnir voru uppi. Hann leit hryggur á
Voroshíloff, hugsaði: Allt unnið fyrir gýg.
Stalín rauk út.
En Voroshíloff hugsaði með sjálfum sér: Með Túkha-
chevsky fer mikill hermaður í gröfina. Og þjóðin mun
glata snilld hans og herstjórnarlist að eilífu. En hann
sagði ekkert. Voroshíloff er ekki talinn sérlega gáfaður,
þótt hann hafi getið sér gott orð í borgarastríðinu. En
hann kann að þegja á réttum stundum. Það er styrkur
hans.
Hann stendur upp. Fær sér vodkaglas, skjálfhentur.
Hann hefur einungis framið tvö ódæði í lífinu, finnst
honum, annað þegar hann skrifaði undir dauðadóm
Túkhachevskys, vitandi um sakleysi hans, en hitt þegar
hann þóttist trúa því, að Kamenev, Zínoviev og Búkharin
væru sekir óvinir ríkisins. En enginn hafði séð á honum
að hann efaðist eitt andartak. Þá gróf hann sannfæringu
sína, eins og þegar hann hafði grafið grunsemdir sínar,
eftir að Nadya svipti sig lífi.
Þessi gamli lífsreyndi hershöfðingi gengur út í bílinn
og kvíðir hálfpartinn fyrir því að þurfa að drekka með
Stalín í nótt. En hann gætir þess vandlega að skilja
minningarnar eftir heima.
40
Ef þú ert maður, Winston, þá ertu siðasti maðurinn.
Þín tegund er útdauð — við erum arftakarnir.
ORWELL: 1984.
ítóisti er nú orðið sams konar blótsyrði og trotský-
isti. í öllum leppríkjum Sovétríkjanna í Austur-
Evrópu eru hafin blóðug réttarhöld gegn títóistum
og síonistum. Draugurinn frá Búkharins-réttarhöldunum
er vakin upp. Margir falla í valinn, aðrir eru ataðir blóði.
Margir þjást af rangminni. Þá verður að lækna. Þeim
verður að breyta. I höfuðstöðvum öryggislögreglu komm-
únista í Austur-Evrópu hanga guðamyndir af Stalín.
Hann stjórnar öllum þessum réttarhöldum í raun og veru.
Hann er hugsanalögreglan. Og hugsanir hans breytast í
aðgerðir. Blóðugan verknað. En fórnardýrin hugsa: Allt
er þetta auðvitað gert gegn vilja hans, að ofsækja okkur!
Einstaka maður segir við sjálfan sig, hvernig getur hann
með svo hreinan og fallegan svip látið þetta viðgangast?
En þeir segja ekkert upphátt. Það væri guðlast. Þeir, sem
stjórna réttarhöldunum, hafa unnið sigur á sjálfum sér,
þeir elska Stóra bróður eins og Winston í 1984. Sumir
eru óðir. Það hvítmatar í augun í þeim. Þcir vinna eftir
forskrift þessarar bókar Orwells án þess að vita það:
Þið pyntuðuð hana.
O’Brien lét því ósvarað. Næstu spurningu, mælti hann.
Er Stóri bróðir til?
Vitanlega er hann til. Flokkurinn er til. Stóri bróðir er
flokkurinn holdi klæddur.
Er hann til á sama hátt og ég?
Þú ert ekki til, svaraði O'Brien. Aftur fann Winston til
vanmáttar síns. Hann þekkti, eðá gat gert sér grein fyrir
FRAMHALD