Morgunblaðið - 28.05.1983, Side 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
118. tbl. 70. árg. ________________________LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1983_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðbragðsstaða vegna
heræfínga Sýrlendinga
Mynd þessi sýnir sovéska rit-
höfundinn og andófsmanninn
Georgi Vladimov og eiginkonu
hans Natalyu á flugvellinum í
Frankfurt í gærkvöldi, en þau
komu frá Moskvu. Vladimov
var veitt vegabréfsáritun til
eins árs og mun hann hefja
kennslustörf við Kölnarhá-
skóla innan skamms.
Beirút, 27. mai. AP.
LÍBANSKIR embættismenn tilkynntu í dag að mikil hemaðaruppbygging ætti
sér nú stað hiá fsraelum eftir að Sýrlendingar juku mikið við herlið sitt í
Bekaa-dal í austurhluta Líbanon í dag.
ísraelar lokuðu aðalþjóðveginum
frá Suður-Líbanon í dag og skrið-
drekar og flutningabifreiðir sáust
mjakast í átt til Bekaa-dalsins og
miðhálendisins.
„Styrjöld er yfirvofandi," sagði
Yasser Arafat leiðtogi PLO við
hundruð fagnandi skæruliða í þorp-
inu Majdal Anjar í Bekaa-dal og
bætti því við að vopnavald væri það
eina sem gæti breytt þeirri biðstöðu
sem nú ríkir.
Talsmaður ísraelshers í Líbanon
sagði aðgerðir ísraela vera „fyrir-
byggjandi" og sagði að ísraelsher
gerði allt sem unnt væri til að koma
í veg fyrir að eitthvað gerðist. Hann
sagði herinn vera á verði vegna her-
æfinga Sýrlendinga sem hófust
fyrir nokkrum dögum og talið er að
muni standa nokkra daga enn. Æf-
ingar þessar munu vera t fullum
gangi í Golan-hæðum, sem ísraelar
náðu frá Sýrlendingum árið 1967 og
innlimuðu 1981.
Yitzhak Shamir, utanríkisráð-
herra ísraels, sagði að stjórnin
fylgdist gjörla með öllum hreyfing-
um herliðs Sýrlendinga og bætti
við: „Við vonum að Sýrlendingum
verði ekki á hörmuleg mistök og
höfum gert nauðsynlegar varúðar-
ráðstafanir."
Fregnir frá Golan-hæðum herma
að Sovétmenn taki þátt í heræfing-
um Sýrlendinga, og fullyrt er að
þetta sé í fyrsta skipti sem svo sé í
landhernaði Sýrlendinga.
Kujau viðurkennir að
hafa falsað bækurnar
Niðurstöður þriggja nýrra skoðanakannana:
llamborg, 27. mai. AP.
KONRAD KUJAU, minjagripasali sem sérhæfði sig í munum frá Nas-
istatímabilinu, hefur viðurkennt að hafa falsað dagbækur og eignað
þær Hitler og selt tímaritinu Stern, að því að haft er eftir talsmanni
saksóknarans í Hamborg í dag.
„Kujau afhenti saksóknurum í
gær handskrifaða játningu þar
sem segir að hann hafi ekki ein-
ungis vitað að dagbækurnar
væru falsaðar, heldur hefði hann
sjálfur staðið að verkinu," sagði
talsmaðurinn Peter Beck í síma-
viðtali við fréttamann AP-
fréttastofunnar.
Beck vildi ekki gefa frekari
upplýsingar um málið og sagði
rétt að bíða eftir niðurstöðu
dómstóla. Hann sagði hins vegar
að fréttamaðurinn sem hefði
staðið að kaupunum á dagbókun-
um fyrir Stern, Gerd Heide-
mann, hefði verið handtekinn
síðastliðna nótt og verði hann
ákærður fyrir sviksamlegt at-
hæfi.
Heidemann var sem kunnugt
er rekinn frá tímaritinu Stern
eftir að uppvíst varð um að hlut-
ar dagbókanna væru falsaðir og
hefðu verið samdir eftir áður út-
kominni bók um ævi Hitlers.
Óstaðfestur orðrómur í dag
hermdi að Kujau hefði ritað
játninguna til handa dómsvöld-
Heidemann
um með sömu rithönd og dag-
bækurnar. Peter Beck sagðist
hvorki geta staðfest orðróm
þennan né hrakið.
Kujau, sem er 44 gamall, var
handtekinn 14. maí síðastliðinn
eftir að hann gaf sig fram við
yfirvöld, sem þegar höfðu kann-
að minjagripaverslun hans í
Stuttgart og fundið þar fjölda
sönnunargagna.
en Verkamannaflokkurinn, og ef
sú yrði niðurstaða kosninganna
hefði íhaldsflokkurinn 250 sæta
meirihluta á þingi. Enginn flokkur
hefur komist nærri svo miklum
meirihluta frá því íhaldsmenn
höfðu 223 sæta meirihluta árið
1924.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar, sem framkvæmd var af
fyrirtækinu „MORI“ í Bretlandi
og náði til 1088 kjósenda, spá
íhaldsflokknum atkvæðum 51 pró-
sent kjósenda, Verkamanna-
flokknum 29 prósentum og Kosn-
ingabandalaginu 18 prósentum.
Tvö prósent atkvæða fóru til ann-
arra ónafngreindra flokka.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sama fyrirtækis í
síðustu viku fékk íhaldsflokkurinn
46 prósent atkvæða, Verkamanna-
flokkurinn 37 prósent, Kosninga-
bandalagið 16 prósent og 1 prósent
fer til annarra flokka.
Niðurstöður skoðanakönnunar,
sem náði til 1422 kjósenda, voru
birtar í Guardian í dag, og sam-
kvæmt þeim fær íhaldsflokkurinn
47,5 prósent atkvæða, Verka-
mannaflokkurinn 32,5 prósent,
Kosningabandalagið 19 prósent og
aðrir 1 prósent.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem gerð var fyrir
Thames Television, fær Ihalds-
flokkurinn 48 prósent atkvæða,
Verkamannaflokkurinn 33 pró-
sent, Kosningabandalagið 17 pró-
sent og aðrir 3 prósent.
Lundúnum, 27. maí. AP.
DAVID STEEL, leiðtogi Frjálslynda flokksins, boðaði í dag
til fundar yfir helgina til að endurskoða kosningaáætlun
Kosningabandalagsins eftir að síöustu skoöanakannanir gáfu
til kynna að úrslit kosninganna 9. júní næstkomandi yrðu
bandalaginu enn óhagstæðari en áður hafði verið spáð.
„Ég hef tekið þá ákvörðun að
reyna að stokka upp kosninga-
áætlunina í síðari hluta kosn-
ingabaráttunnar," sagði Steel á
blaðamannafundi. Hann mun
hitta leiðtoga sósíaldemókrata,
Roy Jenkins, á heimili sínu í Skot-
landi á sunnudag og fundinn
munu sitja auk þeirra David Ow-
en, varaleiðtogi Kosningabanda-
lagsins, og fleiri lykilmenn banda-
lagsins í kosningabaráttunni.
Samkvæmt niðurstöðum
þriggja skoðanakannana, sem
birtar voru í dag, fær Margrét
Thatcher forsætisráðherra yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða í
væntanlegum kosningum, Verka-
mannaflokkurinn var næstur í
röðinni og Kosningabandalagið
rak lestina.
Samkvæmt niðurstöðum einnar
skoðanakönnunar fær Margrét
Thatcher 22 prósent fleiri atkvæði
Nýjar yfirlýsingar frá Sovétmönnum:
Hóta meðaldrægum flaugum
í Varsjárbandalagsríkjunum
Mnskvu, 27. maí. AP.
SOVÉTMENN gáfu út þá yfirlýs-
ingu seint í kvöld að þeir myndu
koma fyrir meðaldrægum eldflaug-
um í ríkjum Varsjárhandalagsins ef
NATO-ríkin halda fast við þá
ákvörðun sína að koma fyrir meðal-
drægum eldflaugum í Vestur-Evrópu
í desember næstkomandi.
Þessi tilkynning sovéskra
stjórnvalda mun birtast á morgun
í dagblaði kommúnistaflokksins,
Pravda, en nokkur atriði úr henni
komu fram í fréttaflutningi opin-
beru fréttastofunnar TASS í
kvöld. '
Þar segir einnig að stjórnvöld
muni endurskoða afstöðu sína
varðandi uppsetningu á SS-20
meðaldrægum eldflaugum í Evr-
ópuhluta Sovétríkjanna ef
NATO-ríkin byrja að koma fyrir
572 nýjum bandarískum flaugum
fyrir lok þessa árs.
í tilkynningunni segir að ef
flaugarnar verði settar upp ógni
það því sem stjórnvöld í Kreml
kalla kjarnorkujafnvægi.
Bandaríkjamenn og Sovétmenn
hafa setið við samningaborð und-
anfarið eitt og hálft ár til að reyna
að komast að samkomulagi um
fækkun meðaldrægra eldflauga í
Vestur-Evrópu án nokkurs veru-
legs árangurs.
Thatcher bætir
enn stöðu sína