Morgunblaðið - 28.05.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1983
Val ráðherra í þingflokkunum:
Engin atkvæðagreiðsla hjá
Framsóknaflokknum
Níu gáfu ekki kost á sér hjá Sjálfstæðisflokki
NÍII þingmenn Sjálfstæðisflokksins
gáfu ekki kost á sér til ráöherrakjörs,
en Mbl. skýrði í gær frá því hvernig
atkvæðagreiðsla fór þegar kosnir
voru ráðherrar flokksins. I sömu frétt
var í gær greint frá vali ráðherra
Framsóknarflokksins, óánægju frá-
farandi ráðherra hans og því að nýju
ráðherrarnir hefðu verið valdir sam-
kvæmt ósk flokksformannsins. Mbl.
fregnaði í gær, að í fyrsta skipti í sögu
flokksins hefði ekki farið fram at-
kvæðagreiðsla um ráðherraefnin og
að Ólafur Jóhannesson fráfarandi
utanríkisráöherra hefði mótmælt
vinnubrögðum formannsins á þing-
flokksfundinum.
Þeir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins sem ekki gáfu kost á sér
til ráðherrakjörs eru eftirtaldir í
stafrófsröð: Arni Johnsen, Eggert
Haukdal, Egill Jónsson, Gunnar G.
Von á Borge
HINN heimsþekkti danski grínisti
Viktor Borge er væntanlegur til
landsins í dag.
Hann kemur fram á skemmtun
Stúdentafélags Reykjavíkur í Há-
skólabíói í kvöld og á skemmtun-
um í Þjóðleikhúsinu á sunnudags-
og mánudagskvöld. Þá mun hann
einnig skemmta á Hótel Loftleið-
um.
Schram, Halldór Blöndal, Ólafur
G. Einarsson, Pálmi Jónsson , Sal-
ome Þorkelsdóttir og Valdimar
Indriðason.
Fráfarandi ráðherrar Framsókn-
arflokksins voru mjög óánægðir
með hvernig að málum var staðið
við val ráðherra flokksins. Er Mbl.
kunnugt að a.m.k. einn þeirra kom
til Alþingishússins um nóttina full-
viss þess að þar yrði látin fara
fram atkvæðagreiðsla til vals á
ráðherrunum eins og venja hefur
verið. Þess í stað kallaði flokksfor-
maðurinn ráðherrana einn og einn
á fund til sín í forsetaherbergi Al-
þingishússins og tjáði þeim að
hann yrði að sýna nýtt andlit
flokksins út á við og bezta leiðin
væri sú, að þeir hættu allir þrír.
Þegar komið var inn á þingflokks-
fundinn tjáði flokksformaðurinn
þingflokknum þessa skoðun sína og
lagði fram ráðherralista sinn.
ólafur Jóhannesson þáverandi
utanríkisráðherra stóð þá upp og
lýsti skoðunum sínum á þessum
vinnubrögðum, sem hann sagði
aldrei hafa þekkst innan Fram-
sóknarflokksins. Ekki komu þó
fram frekari mótmæli opinberlega
og ráðherralistinn þar með talinn
samþykktur. Mbl. er kunnugt um
að ekki eru allir enn á eitt sáttir
um hvernig staðið var að vali ráð-
herra Framsóknarflokksins.
Gengi íslenzku krénunnar lækkað um 14,6%:
Sölugengi dollars
hækkaði um 17,3%
BANKASTJÓRN Seðlabanka íslands
ákvað með samþykki ríkissstjórnar-
innar og að höfðu samráði við banka-
ráð, nýtt gengi íslenzku krónunnar.
Meðallækkun er 14,6%, sem hefur í
fór með sér um 17,3% hækkun á sölu-
gengi Bandaríkjadollars, eða úr 23,104
krónum í 27,100 krónur.
Sölugengi pundsins hækkaði við
gengisfellinguna um 19,92%, eða úr
36,215 krónum í 43,428. Þá hækkaði
sölugengi dönsku krónunnar um
15,43%, eða úr 2,6092 krónum í
3,0118 krónur. Sölugengi vestur-
þýzka marksins hækkaði við geng-
isfellinguna um 15,99%, eða úr
9,3072 krónum í 10,7953 krónur.
Ef litið er á breytingar á gengi
einstakra gjaldmiðla frá áramótum
kemur í ljós, að dollarinn hefur
hækkað um 62,76%, eða úr 16,650
krónum í 27,100 krónur. Pundið hef-
ur hækkað um 61,86% frá áramót-
um, eða úr 26,831 krónu í 43,428
krónur. Danska krónan hefur hækk-
að um 51,72% í verði frá áramótum,
eða úr 1,9851 krónu í 3,0118 krónur.
Þá hefur vestur-þýzka markið
hækkað um 54,12% frá áramótum,
eða úr 7,0046 krónum í 10,7953 krón-
ur.
Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðberra tók 1 gær við lyklum ráðuneytisins úr hendi Ingvars Gíslasonar,
fráfarandi ráðherra menntamála. Morgunbl»diíi/Guftjón.
Persónuafsláttur, barna-
og tryggingabætur hækka
RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær út
bráðabirgðalög, sem fela í sér
mildandi aðgerðir fyrir hina
iægstiaunuðu vegna þeirra að-
gerða, sem boðaðar hafa verið í
kjaramálum um næstu mánaða-
mót. Skv. þessum bráðabirgðalög-
um
• Hækkar persónuafsláttur um
1.400 kr. fyrir hvern mann.
• Barnabætur eru hækkaðar um
kr. 3.000 fyrir hvert barn, sem
var yngra en 7 ára í lok síð-
asta árs.
• Tryggingabætur hækka til
jafns við launahækkanir 1.
júní nk.
• Lífeyrir, tekjutrygging og
heimilisuppbót hækka um 5%
umfram launahækkunina.
• Mæðralaun með einu barni
hækka um 100% umfram al-
mennar launahækkanir en
mæðralaun með fleiri en einu
barni hækka um 30%.
• Viðbótarfé er tryggt til að
jafna og lækka hitunarkostn-
að.
Morgunblaðið gerði í fyrradag
ÓLAFUR G. Einarsson alþingismað-
ur var í gær kjörinn formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna. Þá var
Halldór Blöndal alþingismaður kos-
inn varaformaður þingflokksins og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson al-
þingismaður ritari. Þessar upplýs-
ingar fékk Mbl. hjá Ólafi G. Ein-
arssyni í gær.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
grein fyrir efni annarra bráða-
birgðalaga.
Sjá bráðabirgðalögin í heild á
bls. 30 og 32.
féllu atkvæði á fundinum þannig,
að Ólafur fékk 12 atkvæði í kosn-
ingu um formennsku í þingflokkn-
um, en Ellert B. Schram fékk 9
atkvæði. f kosningu um varafor-
mannsembættið, fékk Halldór
Blöndal 14 atkvæði, 6 seðlar voru
auðir og 2 ógildir. Þorvaldur
Garðar Kristjánsson var sjálf-
kjörinn í starf ritara.
Þingflokkur sjálfstæðismanna:
Ólafur G. Einarsson
kosinn formaður
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherrra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar;
Staða sjávarútvegsins mjög alvarleg,
alvarlegri en ég gerði mér grein fyrir
„HÉR er um það að ræða að fara í
aðgerðir til þess að halda atvinnu-
vegunum gangandi og allir út-
reikningar í þessu sambandi eru í
rauninni einskis virði. Það sem
skiptir mestu máli er að undirstöð-
urnar geti gengið, þannig að fólkið
geti haft af því atvinnu. Ef það
gerist ekki þá eru engin laun í
landinu, þannig að þessir útreikn-
ingar sem menn hafa verið að fara
með, jafnvel á undanfórnum árum,
eru afskaplega lítils virði þegar
þjóðfélag stendur frammi fyrir að-
stæðum eins og við gerum nú.
Það er a.m.k. Ijóst að staða
sjávarútvegsins er mjög alvar-
leg, og alvarlegri en ég hafði áð-
ur gert mér grein fyrir,“ sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra m.a. á blaða-
mannafundi ríkisstjórnarinnar í
gærdag, en ráðherrarnir voru
ítrekað spurðir um stöðu og
horfur ríkisfjármála. Fundinn
sátu fjórir ráðherrar, Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra, Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra, Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra
og Matthías Á. Mathiesen við-
skiptaráðherra. Kynntu þeir á
fundinum þau fimm bráða-
birgðalög sem gefin voru út í
gær.
Bráðabirgðalögin eru sérstak-
lega birt hér í blaðinu, en það
kom fram í máli ráðherranna að
staða atvinnuveganna er mjög
slæm og lögin sett í því skyni að
koma í veg fyrir hrun þeirra. í
bráðabirgðalögunum felst m.a.
eins og kunnugt er niðurskurður
og binding vísitöluhækkana á
laun. Þar í mót á að verja rúm-
um 400 milljónum króna til
svokallaðra mildandi aðgerða til
þeirra lakast settu. Fjármála-
ráðherra, Albert Guðmundsson,
var spurður hvernig þess fjár
yrði aflað. Hann sagði að unnið
væri að úttekt á ríkissjóði og það
yrði upplýst þegar niðurstöður
lægju fyrir. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
bætti því við, að á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun hefði verið
samþykkt að gera slíka allsherj-
arúttekt.
Mikil umræða varð um stöðu
útgerðar og fiskvinnslu. Sjávar-
útvegsráðherra var m.a. spurður
hvernig gengismun yrði varið.
Hann sagði að ekki hefði unnist
tími til að ganga endanlega frá
því en sagði síðan: „Ríkisstjórnin
mun gera það á síðari stigum að
höfðu samráði við hagsmunaað-
ila, en ég held að það sé rétt að
það komi fram að afkoman er
mismunandi 1 flotanum. Mér
sýnist við fljóta yfirferð að af-
koman sé einna verst hjá minni
skuttogurunum að ég tali nú
ekki um loðnuflotann, þó erfitt
sé að miða við það. Það má segja
að það hafi orðið hálfgerðar
náttúruhamfarir, engin loðna
veiddist á síðasta ári og þess
vegna er staðan enn verri.“ Þá
kom og fram að talið er að þess-
ar efnahagsaðgerðir ættu að
bæta stöðu sjávarútvegsins 1
heild um 5,1%.
Varðandi lögbindingu kaup-
hækkana var forsætisráðherra
spurður, hvernig ríkisstjórnin
ætlaði að koma 1 veg fyrir að
menn semdu sín á milli um verð-
bætur á laun. Hann svaraði að
samkvæmt þessum lögum yrði
það óheimilt í tvö ár og að hann
gerði ráð fyrir því að menn
semdu ekki um hluti sem væru
óheimilir að lögum. Hann var þá
spurður hvort refsiákvæði hefðu
verið ákveðin gegn slíku. „Það
fer eftir almennum hegningar-
lögum. Ákveðið var að setja eng-
in sérstök refsiákvæði."
Vegna umræðna um verð-
lagsmál og bindingu kauphækk-
ana var forsætisráðherra spurð-
ur hvort hækkun verðs á land-
búnaðarafurðum um 8% nú um
mánaðamótin þýddi ekki hækk-
un á launum bænda upp í
20—30%. Hann sagði þetta gam-
alkunnugt vandamál. Landbún-
aðarverð samanstæði annars
vegar af launalið bóndans og
hins vegar af rekstrarkostnaði.
Vitað væri að hann hefði hækk-
að umtalsvert síðustu þrjá mán-
uði, eða í kringum 23%. Þessar
tölur einar þýddu um 15% í bú-
vöruverðshækkun, þá væri ótal-
inn ýmis milliliðakostnaður.
Hann sagði að búvöruverð lægi
ekki fyrir, en gera mætti ráð
fyrir mikilli hækkun. Steingrím-
ur ítrekaði að þetta væri mjög
erfitt mál og sagði einu leiðina
út úr því að ná verðbólgunni
niður.
Forsætisráðherra sagði 1 lok
fundarins eftir að rætt hafði
verið nokkuð um kaupmáttar-
skerðinguna sem framundan er
og hann upplýsti að reiknað
hefði verið út að yrði 8% það
sem eftir er ársins, ef engar
ráðstafanir yrðu gerðar: „Ég hef
starfað að því í sjávarútvegs-
ráðuneytinu síðustu mánuðina
að reyna að halda fyrirtækjun-
um gangandi varðandi laun. Það
var verið í skuldbreytingum, lán-
um og öllum fjáranum til að
koma í veg fyrir stöðvun fyrir-
tækjanna. Þetta nefni ég af því
að ég er sannfærður um að þetta
er ekki hægt lengur. Ég er
sannfærðari um það en nokkuð
annað að það þarf að fara í
nokkuð harðar aðgerðir, harðari
en ég hefði kosið. En við höldum
þessu ekki áfram í 110—120%
verðbólgu, það verður að ná
henni niður."