Morgunblaðið - 28.05.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1983
15
ann. — Finnur þú til til valds, þeg-
ar þú stjórnar.
— Nei, nei, nei, Páll hlær ...
kannski átti þetta að einhverju
leyti við hér áður fyrr um þá
hljómsveitarstjóra, sem mestar
voru prímadonnurnar, en ekki
lengur, hljómsveitarstjórar gera
sér þess fulla grein, hversu færir
og frægir sem þeir eru, að það er
samvinnan og samstarfsandinn,
sem öllu skiptir, jafnvel miklir
skapmenn eins og Karajan vita
hve háðir þeir eru hljóðfæraleik-
urunum. Nú á dögum verður
hljómsveit að vinna saman eins og
ein fjölskylda, og afstaða hljóð-
færaleikaranna til hljómsveitar-
stjórans skiptir miklu um hvernig
til tekst. Mér þótti því mjög vænt
um það úti núna, þegar hljóðfæra-
leikararnir komu til min eftir
hljómleikana, þökkuðu mér fyrir
samvinnuna og sögðust vonast til
að sjá mig fljótt aftur, — það var
gaman að fá góða gagnrýni, en
þetta var þó bezt af öllu.
Aldrei séð eftir
því að koma
til íslands
Páll Pampichler Pálsson hefur,
sem kunnugt er, haft fleiri járn í
eldinum en hljómsveitarstjórnina
undanfarin ár, hann hefur haslað
sér völl sem eitt af okkar helztu
tónskáldum.
— Ég byrjaði frekar snemma
að fást við tónsmíðar, sagði hann,
— ætli ég hafi ekki verið fjórtán
ára, þegar ég skrifaði fyrsta
verkið, sem segja mátti að eitt-
hvert smávit væri í, og heima í
Graz höfðu verið flutt eftir mig
nokkur smærri blásaraverk, áður
en ég kom hingað. Það fyrsta, sem
segja mætti stærra í sniðum, var
hinsvegar fagottkonsertinn sem
vinur minn, Hans Ploder, frum-
flutti hér árið 1952.
Síðast í vetur var frumfluttur
eftir Pál skemmtilegur klarinettu-
konsert skrifaður fyrir Sigurð
Snorrason. — Já, og ég hef samið
nokkur stór hljómsveitarverk síð-
ustu árin, meðal annars „Hugleið-
ingu um L“ og „Fléttuleik". Kór-
verk hef ég auðvitað samið, svo
sem Requiem í minningu Jóns
Leifs, verk fyrir kór og píanó við
Limrur Þorsteins Valdimarsson-
ar, og fyrir kór og hljómsveit
„Svarað í sumartungl", einnig við
kvæði eftir Þorstein. Þá má
kannski nefna sönglög við ljóð eft-
ir Hannes Pétursson og Nínu
Björk Árnadóttur og verkið
„Stúlkan og vindurinn", sem ég
skrifaði fyrir þær Helgu Ingólfs-
dóttur semballeikara og Manuelu
Wiesler flautuleikara, þær frum-
fluttu það í Skálholti og það hefur
verið talsvert flutt erlendis. — Þú
veizt, minnir hann á, að Manuela
er frænka mín, móðir mín og faðir
hennar voru hálfsystkin, en um
það vissi hvorugt okkar fyrr en
eftir að Manuela hafði ákveðið að
flytjast til Islands — hún frétti
þá, að hún ætti þar frænda fyrir.
— Hefurðu aldrei séð eftir að
flytjast til íslands, Páll?
— Nei, aldrei og sízt núna eftir
að ég er farinn að stjórna öðru
hverju erlendis, það er svo mikil
upplyfting og hvatning að fá slík
tækifæri. Auðvitað saknaði ég
eins og annras að heiman framan
af, sérstaklega skóganna í Austur-
ríki og menningarlífsins að
nokkru marki, því var að sjálf-
sögðu ábótavant hérna, en á móti
kom ánægjan af því að geta stuðl-
að að uppbyggingunni. Nú er hér
mikil menningarleg gróska, á öll-
um sviðum. Fjölskyldunnar sakn-
aði ég líka, að sjálfsögðu, og ég
man, að mér þótti ákaflega leitt að
geta ekki verið við útför föður
míns, sem lézt árið 1966, fjárhag-
urinn leyfði það einfaldlega ekki.
Hinsvegar gat ég fylgt móður
minni til grafar, því þá vildi svo
til, að karlakórinn var að fara í
söngferð til Kína, svo að ég gat
skroppið heim i leiðinni og haft
nokkurra klukkustunda viðdvöl
meðan jarðarförin fór fram. En að
ég sjái eftir að hafa setzt hér að,
því fer fjarri.
HJÓLREIÐAOAGURINN
ð
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
TIL STYRKTAR
FÖTLUÐUM
BÖRNUM
Söfnunarfólk
munið að gera skil.
Komið og fáið
viðurkenningarskjöl.
Dregið úr 150 glæsilegum
vinningum
1. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur.
2. Hljómsveitin Iss leikur.
3. Davíð Oddsson borgarstjóri tekur á móti hjólreiðafólk-
inu.
4. Magnús Ólafsson og Þorgeir Ástvaldsson skemmta.
5. Pálmi og Bergþóra skemmta.
6. Dregnir út 150 glæsilegir happdrættisvinningar, þar á
meðal 11 splunkuný reiöhjól, frá Hjólum og vögnum,
Hjólasport, Erninum, Markinu, Mílunni og Fálkanum,
ásamt ýmsum reiðhjólabúnaði frá sömu verslunum.
Aðrir vinningar eru 10 matarvinningar frá Svörtu pönn-
unni, bækur frá Erni og Örlygi, Almenna bókafólaginu,
Fjölni og Iðunni, hljómplötur frá Steinum og Skífunni,
matarvinningar frá Sælkeranum og fleira.
Allír hjólreiðamennirnir fá hressingu á Lækjartorgi frá
Coca-Cola.
Kynningu annast Bryndís Schram og Þorgeir Ástvalds-
son.
Viðurkenningarskjöl, sem börnin fá við afhendingu
söfnunarfjárins á Lækjartorgi, gilda sem happdrætt-
ismiðar.
Hjólreiðafólkið heldur heimleiöis í skipulögðum hóp-
um í lögreglufylgd.
♦
♦
♦
♦
Hjólreiðafólk! Verið vel búin.
Lögregla, flugbjörgunarsveitarmenn og félagar úr Hjólreiða-
félagi Reykjavíkur leiðbeina hópunum niður á Lækjartorg.
Ökumenn! Sýnið hjólreiðafólkinu tillitssemi.
Viðurkenningarskjölin gilda sem happdrættismiðar. Glæsi-
legir vinningar verða dregnir út.
Safnast saman við 15 skóla í dag
Hjólreiöadagurinn 28. maí 1983
— hjólum í þágu þeirra,
sem ekki geta hjólaö —
Hagaskóli, Melaskóli, Vesturbæj-
arskóli og Landakotsskóli. Leið 1:
Mæting í porti Hagaskóla kl. 13.30.
Hvassaleitisskóli og Álftamýrarskóli.
Leið 2:
Mæting í porti Hvassaleitisskóla kl.
13.30.
Hlíðaskóli — Austurbæjarskóli —
Æfingaskóli K.H.Í. — Öskjuhlíðar-
skóli. Leiö 3:
Mæting í porti Hlíöaskóla kr. 13.30.
Langholtsskóli — Vogaskóli. Leiö 4:
Mæting í porti Langholtsskóla kl.
13.30.
Réttarholtsskóli — Fossvogsskóli
og Breiðagerðisskóli. Leið 5:
Mæting í porti Réttarholtsskóla
kl. 13.30.
Laugarnesskóli
skóli. Leið 6:
og Laugalækjar-
Mæting í porti Laugarnesskóla kl.
13.30.
Breiðholtsskóli. Leið 7:
Mæting í porti Breiðholtsskóla kl.
13.30.
Árbæjarskóli. Leið 8:
Mæting í porti Árbæjarskóla kl.
13.30.
Seljaskóli — Ölduselsskóli. Leið 9:
Mæting í porti Seljaskóla kl. 13.30.
Fellaskóli og Hólabrekkuskóli.
Leið 10:
Mæting í porti Fellaskóla kl. 13.30.
Mosfellssveit. Leið 11:
Börn úr Varmárskóla og aðrir mæti
við Varmárskóla kl. 13.00.
Brottför frá skólanum kl. 14.00.
Seltjarnarnes. Leiö 12:
Börn úr Mýrarhúsa- og Valhúsa-
skóla, ásamt öörum aöilum mæti við
Mýrarhúsaskóla kl. 13.00.
Garöakaupstaður. Leiö 14:
Börn úr Flataskóla og aðrir mæti viö
skólann kl. 13.00.
Kópavogur. Leið 13:
Börn úr Kópavogsskóla — Digranes-
skóla — Snælandsskóla og Víghóla-
skóla og aörir aðilar mæti við Kópa-
vogsskóla kl. 13.00.
Brottför frá skólanum kl. 14.00.
Börn úr Kársnesskóla og Þinghóls-
skóla mæti við Kársnesskóla, ásamt
öörum aðilum kl. 13.00.
Brottför frá skólanum kl. 14.00.
Hafnarfjöröur. Leið 15:
Börn úr Víðistaðaskóla — Öldutúns-
og Lækjarskóla — Engidalsskóla,
ásamt öörum aöilum mæti við Víöi-
staðaskóla kl. 13.00.
Brottför frá skólanum kl. 13.45.
♦
♦
♦
♦
Foreldrar! Hjólið með börnum ykkar á Lækjartorg
éi-tækjart0rgi_ húfur^við'skóíanaMur
hreSS Og kat en lagt veröur af staö
niöur á torg.
— hjólum í þágu þeirra
HJÓLREIÐADAGURINN
sem ekki geta hjólað —
STYRKTARFELAG
LAMAÐRA
OG FATLAÐRA
.J
■i •