Morgunblaðið - 31.05.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
120. tbl. 70. árg.
Kveðjustundin var erfið en heim-
koman þeim mun gleðilegri.
Bretland:
Sigurinn
jók frjó-
semina
i
London, 30. maí. AP.
FÖGNUÐURINN yfir heimkomu
hetjanna frá Falklandseyjum var
svo innilegur, að „hvorki meira
né minna en 66% eiginkvenna
þeirra urðu ófrískar strax á eftir“.
Frá þessu sagði í gær í Lundúna-
blaöinu The Sunday People.
Engar tölur voru nefndar yfir
fjölda fæðinga síðan hermenn-
irnir sneru heim frá Falklands-
eyjum en sagt, að aldrei fyrr
hefðu jafnmargar eiginkonur
hermanna alið börn og nú, níu
mánuðum eftir sigurinn yfir
Argentínumönnum. Sagði blað-
ið, að fæðingardeildir á sumum
hersjúkrahúsum væru yfirfull-
ar og hefði orðið að vísa frá
óbreyttum borgurum, sem ann-
ars fengju að leggjast þar inn.
Walesa
fær ekki
vinnufrið
Varsjá, 30. maí. AP.
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, var
færður í dag á lögreglustöð til yfir-
heyrslu og er það í þriðja sinn á fjór-
um dögum. Pólska sjónvarpið skýrði
frá því í gær, að maður nokkur hefði
verið handtckinn og hefði hann ætlað
að koma sprengju fyrir á einum þeirra
staða, sem Páll páfi mun koma til í
ferð sinni um Pólland 16.—23. júní
nk.
Talsmaður Walesa sagði, að hann
hefði verið fluttur á lögreglustöð í
morgun og spurður um ýmislegt
varðandi fimm fyrrum ráðgjafa
Samstöðu, sem sakaðir eru um und-
irróður gegn stjórnvöldum. Fimm-
menningarnir voru félagar í KOR,
varnarnefnd verkamanna, og er
þeim borið á brýn að hafa viljað
koma kommúnistastjórninni í Pól-
landi frá völdum. Talsmaður Wal-
esa sagði, að hann hefði neitað að
svara spurningum lögreglumann-
anna eins og við fyrri yfirheyrslur.
Sagt var frá því í pólska sjón-
varpinu í gær, að maður, sem lengi
hefði átt við geðræn vandamál að
stríða, hefði verið handtekinn og
mikið sprengiefni fundist í fórum
hans.
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fundinum í Williamsburg lokið:
„Aukin bjartsýni á efna-
hagslega endurreisn“
Leidtogar sjö helstu iðnríkja heims
komust að samkomulagi um meg-
inmarkmiðin í efnahagsmálum
Williamsburg, 30. maí. AP.
LEIÐTOGAR helstu iðnríkja hins frjálsa heims komust í dag að samkomu-
lagi á fundinum í Williamsburg um þau meginmarkmiö, sem stefna ber að í
efnahagsmálum heimsins. í lokayfirlýsingu fundarins, sem stóð f tvo daga,
heita þeir að vinna að enn frekari lækkun verðbólgu og vaxta og takmarka
um leið halla á fjárlögum ríkjanna með því að skera niður opinber útgjöld.
Sagði í yfirlýsingunni, að það væri forsenda fyrir hagvexti í heiminum að allir
legðust á eitt.
Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, sem var gestgjafi fundar-
manna, las lokayfirlýsinguna, sem
hlotið hefur heitið „Williamsburg-
aryfirlýsingin um efnahagslega
endurreisn". Þar sagði, að leiðtog-
arnir myndu beita sér fyrir auk-
inni fjárfestingu' og minna
atvinnuleysi með „viðeigandi
ráðstöfunum í peninga- og fjár-
málum" samtímis því, sem unnið
væri að lækkun verðbólgu og
vaxta.
„Viðræður okkar hér í Willi-
amsburg hafa aukið bjartsýni
okkar á áframhaldandi efna-
hagsbata," sagði Reagan og bætti
því við, að leiðtogar ríkjanna sjö
væru einhuga um náið samstarf í
framtíðinni. Meðal þess, sem sam-
komulag varð um á fundinum, var
að afnema viðskiptahöft og vernd-
araðgerðir einstakra ríkja og að
leita endurbóta á hinu alþjóðlega
peningakerfi.
Það var einkum Mitterrand,
Frakklandsforseti, sem beitti sér
fyrir síðastnefnda málinu enda
hefur gengisskráningin og staða
dollarans sérstaklega mikil áhrif
á verðbólguna í öllum löndum og
viðskipti þeirra við útlönd. Gífur-
legur halli á fjárlögum Bandaríkj-
anna, sem talinn er munu verða
um 190 milljarðar dollara, var
einnig nokkur ásteytingarsteinn á
fundinum. Bandaríkjastjórn vill
ekki gera of mikið úr áhrifum
hans en á fréttamannafundi, sem
Helmut Kohl. kanslari Vestur-
Þýskalands, hélt eftir að Reagan
hafði flutt lokayfirlýsingu fundar-
ins, sagðist hann telja fjárlaga-
hallann eina meginástæðuna fyrir
háum vöxtum í Bandaríkjunum.
í gær samþykktu leiðtogarnir
sjö, sem voru frá Bretlandi,
Vestur-Þýskalandi, Frakklandi,
Japan, Kanada, Ítalíu og Banda-
ríkjunum auk forseta EBE, að
lýsa yfir stuðningi við stefnu
Bandaríkjastjórnar í afvopnun-
armálum og þykir það umtals-
verður sigur fyrir Ronald Reagan,
Bandaríkjaforseta. Sjá bls. 18.
-
Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, fagnar hér Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, þegar hún kom til fundarins ( Williamsburg sl. laugardag.
Þátttakendur ( árlegum fundi leiðtoga sjö helstu iðnríkja hins frjálsa heims, þeim níunda í röðinni. Talið frá vinstri
eru: Trudeau, forsætisráðherra Kanada, Gaston Thorn, forseti EBE, Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands,
Mitterrand, Frakklandsforseti, Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, Nakasone, forsætisráðherra Japans, Thatcher,
forsætisráðherra Breta, og Fanfani, forsætisráðherra Ítalíu.
Minni spenna í Líbanon
þrátt fyrir viðbúnaðinn
Beimt, Damaskus, 30. maí. AP.
HELDUR DRÓ í dag úr spennunni milli Sýrlendinga og
ísraela, en herir beggja voru þó við öllu búnir, fjóröa daginn
í röö. Embættismenn PLO, Frelsisfylkingar Palestínumanna,
neituðu í dag fréttum útvarpsstöövar í Líbanon um að reynt
hefði verið að ráða Yasser Arafat af dögum. Hann er nú í
Líbanon til að reyna að hindra frekari uppreisnartilraunir
gegn yfirráðum Fatah-fylkingarinnar í PLO.
Haft er eftir vestrænum sendi-
ráðsmönnum, að nokkuð hafi
dregið úr viðbúnaði ísraela í
Bekaa-dal í gær og líbanskar út-
varpsstöðvar sögðu, að Sýrlend-
ingar hefðu einnig fækkað í her
sínum við 80 km langa vopnahlés-
línuna. Ekkert lát er hins vegar á
áróðri Sýrlandsstjórnar gegn
ísraelum og Bandaríkjamönnum,
áem hún segir vera tilbúna til
styrjaldar gegn Sýrlendingum í
því skyni að neyða þá til að fallast
á samninginn um brottflutning
erlendra herja frá Líbanon. Tveir
ísraelskir hermenn féllu og þrír
slösuðust þegar skæruliðar réðust
í gær á tvo herflutningabíla.
Útvarpsstöðin „Rödd Líbanons",
sem hægrimenn reka, sagði í dag,
að reynt hefði verið að ráða Yass-
er Arafat, leiðtoga PLO, af dögum
í Bekaa-dal í dag, skammt fyrir
vestan sýrlensku landamærin, og
hefði einn lífvarða hans fallið.
Talsmenn PLO neita þessu harð-
lega og segja Arafat hafa verið í
líbönsku borginni Tripoli í nótt og
í dag, ekki í Bekaa-dal.
Arafat er nú staddur í Líbanon
til að reyna að koma í veg fyrir
uppreisn meðal þeirra liðsmanna
PLO, sem finnst Arafat ekki vera
nógu vígreifur. Eftir sumum
heimildum er haft, að hann hygg-
ist jafnvel flytja höfuðstöðvar
PLO til Tripoli og að það sé til
marks um versnandi samskipti
palestínskra skæruliða og Sýr-
lendinga.