Morgunblaðið - 12.06.1983, Blaðsíða 6
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983
KJÚKLINGAR
eru sérgrein okkar, nammi, namm.
Komiö á staöinn, eöa
hringið á undan ykkur og
pantið í síma 291 "| 7
Þá er maturinn tilbúinn
þegar þiö komið
Franskar kartöflur
sósa og salöt
SOUTHERN
FRIED
CHICKEN
Verið velkomin
Kjúklingastaöurinn í
Tryggvagötu
Minning:
Bjarni Hálfdánar-
son vélstjóri
Þann 5. júní þessa mánaðar
andaðist í Landspítalanum Bjarní
Hálfdánarson eftir langa og erfiða
baráttu við þann sjúkdóm, sem að
lokum vann sitt verk að fullu.
Bjarni var fæddur við Dýrafjörð
þann 21. febrúar 1917 sonur hjón-
anna Jóhönnu Sigurðardóttur og
Hálfdáns Bjarnasonar, trésmiðs.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Laufey Ágústa Markúsdóttir
Kristjánssonar frá Súðavík og eig-
inkonu hans, Halldóru Jónsdóttur.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að þekkja Bjarna nokkuð náið þar
sem hann var giftur systur minni.
Bjarni var mjög skapgóður og
blíðlyndur. Prúðmenni var hann í
allri umgengni og átti bágt með að
9
Plastgróóurhús
f rá Plastprent hf:
Ódýr, sterkog
, auoveld
i uppsetningu
Vorið 1982 hóf Plastprent framleiðslu á
gróðurhúsum úr plasti. Þessi gróðurhús
hafa reynst frábærlega vel í alla staði.
Húsin eru bæði ódýr, sterk og það er bæði
auðvelt og fljótlegt að setja þau upp.
Plastgróðurhúsin eru fáanleg í mörgum
stærðum, allt frá 4,8 m2 upp í 39 m2 og
jafnvel enn stærri.
blómauol
Grvðurhúsinu viö Sigtún: Símar36770-86340
Þau henta því vel hvort sem er fyrir
garðyrkjumenn, bændur eða garðeigendur.
Tvö plastgróðurhús hafa verið sett upp hjá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur í Fossvogi
og nú einnig hjá Blómavali við Sigtún.
Plastprent hf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600
þola ef gengið var á hlut þeirra
sem minna máttu sín. Hann var
ávallt reiðubúinn til hjálpar ef
erfiðleikar steðjuðu að og hugsaði
þá meira um þá sem hjálpar
þurftu en um sjálfan sig. Þannig
voru þau hjón bæði tvö, því feng-
um við að kynnast fjölskylda mín
og ég. Oft var þröngt í búi hjá
Laufeyju og Bjarna með barna-
hópinn, en börnin voru fimm tals-
ins, sem öll telja árin og húsmóð-
irin oft á sjúkrahúsi vegna þeirra
sjúkdóma sem hafa hrjáð hana frá
unga aldri. En aldrei var svo
þröngt í búi að ekki væri hægt að
rétta út hönd til hjálpar ef með
þurfti.
Þau Laufey og Bjarni byrjuðu
sinn búskap vestur á ísafirði en
fluttust til Reykjavíkur árið 1948
og bjuggu hér síðan. Lengst af í
Lyngbrekku við Blesugróf en nú
seinni árin í Tunguseli í Breið-
holti.
Bjarni stundaði sjómennsku
lengi frameftir ævi og var þá
lengst af vélstjóri á fiskiskipum
og síðan við pípulagnir. Það var
sama hvaða verk Bjarni fékkst
við, það lék allt í höndunum á hon-
um og alltaf skilaði hann þeim
verkum sem honum voru falin
þannig að þeir sem þeirra voru að-
njótandi máttu vel við una.
Þau hjónin tóku dreng í fóstur
árið 1947 og var hann skírður
Markús Sigurgeir og var hann
ávallt augasteinn þeirra hjóna
ekki síður en þeirra eigin börn og
hefur hann reynst fósturforeldr-
um sínum sem besti sonur alla tíð.
Hann er giftur Báru Magnúsdótt-
ur og búa þau í Hafnarfirði ásamt
börnum sínum. Laufey og Bjarni
eignuðust fjögur börn sem öll eru
á lífi, en þau eru Hörður Sævar,
kona hans er Lilja Sigurgeirsdótt-
ir og búa þau á ísafirði; Hálfdán
giftur Vigdisi Ólafsdóttur og þau
eru búsett í Reykjavík; Jóhanna
Halldóra gift Gísla Sigurjónssyni
og Svanfríður Guðrún gift Eyþóri
óskarssyni og búa þau öll á ísa-
firði. Allt er þetta myndarfólk og
hefur komið sér vel áfram í lífinu
og er mikill' styrkur fyrir móður
þeirra að eiga þau að þegar hún
hefur nú séð á bak þeim manni
sem hún hefur svo lengi deilt með
allri gleði og sorg, sem lífið færir
okkur í þessum heimi. Nú þegar
góður drengur er kvaddur er
margs að minnast en fátt eitt
rúmast í smá grein sem skrifuð er
meira af vilja en mætti.
Við hjónin biðjum góðan guð að
styrkja Laufeyju og fjölskyldu
hennar í sorg þeirra.
Megi guð blessa minningu míns
kæra mágs og hann hvíla í friði.
Útförin verður gerð á morgun,
mánudag, frá Bústaðakirkju.
Árni Markúsxon
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' sjöum Moggans!