Morgunblaðið - 12.06.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983 81
Ráðherrafundi
EFTA lokið
Hálfsárslegur ráðherrafundur
EFTA, Fríverslunarsamtaka Evrópu,
var haldinn í Bergen dagana 1.—3.
júní sl. Fyrir ráðherrafundinn var
haldinn sameiginlegur fundur ráð-
gjafanefndar EFTA og ráðherranna.
í fréttatilkynningu frá við-
skiptaráðuneytinu segir að fund-
irnir hafi að verulegu leyti snúist
um efnahagsástandið í ríkjum
EFTA og viðskiptalöndum þeirra,
og auknar kröfur til stjórnvalda í
þessum ríkjum um verndarað-
gerðir í ýmsu formi til að hamla
gegn atvinnuleysinu heima fyrir.
I tilkynningunni segir ennfrem-
ur að viðskiptaráðherrarnir hafi
verið sammála um að öllum ráðum
yrði að beita til að sporna gegn
vaxandi hömlum í alþjóðavið-
skiptum þar eð verndarstefna
gæti tafið mjög fyrir bata í al-
þjóðaefnahagsmálum og skaðað
öll ríki, ekki síst hin smærri, sem
væru enn háðari óhindruðum að-
gangi að erlendum mörkuðum en
stærri ríkin.
Ráðherrafundurinn í Bergen
lýsti yfir ánægju með boð forsæt-
isráðherra Svía til leiðtoga ann-
arra EFTA-ríkja um fund þeirra í
Svíþjóð á næsta ári, þar sem rædd
yrðu sameiginleg hagsmunamál
ríkjanna sjö.
Að loknum þessum ráðherra-
fundi EFTA var haldinn fundur í
sameiginlegri nefnd EFTA-ríkj-
anna og Júgóslavíu, þar sem
viðskiptaráðherrar ríkjanna und-
irrituðu stefnuyfirlýsingu um
aukið samstarf við Júgóslavíu,
einkum á sviði viðskipta, iðnaðar
og ferðamála.
Matthías Á. Mathiesen, við-
skiptaráðherra, sat þessa fundi af
íslands hálfu og með honum þeir
Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytis-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu,
Hannes Hafstein, skrifstofustjóri
í utanríkisráðuneytinu og Valgeir
Ársælsson, varafastafulltrúi ís-
lands hjá EFTA í Genf.
Öllum þeim mörgu sem minntust min meö heimsóknum
kveöjum og gjöfum á fimmtugsafmæli mínu hinn 26.
aprá sl. erufluttar innilegustu þakkir.
Eggert Haukdal.
BILLINN
BÍLASALA SÍMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KÓPAVOGI
Allt á fullu
Nu veistu
hvert þú
átt að fara ef
þig vantar
Hi-Fi skáp.
HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA
HfSOAGNlBÖlLIN
BlLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK 8 91-81199 og 81410
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633