Morgunblaðið - 12.06.1983, Side 40
88
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983
ást er —
... aö veita henni það sem
henni finnst best — sjálf-
an þig.
TM Rw U S Pat ort — atl rtghts r«swv«d
•1983 Lo« AngslM Tlmes Syndlcate
Er sexbomban mín ekki farin í
háttinn!
Þá er það lýðræðið sem
er sett í skammarkrókiim
Asgerður Jónsdóttir skrifar:
„Heiðraði Velvakandi.
Þar sem þú ert alltaf að bjóða okkur lesendum Morgunblaðsins upp á
skoðanarúm í blaðinu ætla ég að nota mér það.
Meðan síðustu stjórnarmyndun-
arviðræður stóðu yfir og eins nú
eftir myndun ríkisstjórnar hafa
komið fram vanþóknunarraddir
vegna þátttöku Geirs Hallgríms-
sonar í því samningastarfi, ein-
kum þó vegna setu hans í núver-
andi ríkisstjórn. Eins og við mátti
búast hafa þröngsýnar og skiln-
ingsvana sálir risið upp og vitnað,
í hjálpræðishersstíl, um ágæti
hans. Væntanlega skilja þó allir
viti bornir menn, að hér er ekki
um að ræða mat eða vanmat á
manninum og eða stjórnmála-
manninum Geir Hallgrímssyni
heldur á tvíhliða og raunar marg-
hliða siðgæði þess stjórnmála-
flokks, er leyfir sér eftirfarandi
vinnubrögð: Sjálfstæðisflokkurinn
gerðist, ef ég man rétt, frumkvöð-
ull prófkjara — í nafni lýðræðis
að sjálfsögðu. Sjálfstæðisflokkur-
inn baðar sig ósleitilega í ljósi
hins frjálsa atkvæðisréttar lýð-
ræðislegra kosninga. En svo þegar
kemur að því, að hinn frjálsi kosn-
ingaréttur lýðræðisins fellir einn
af frammámönnum flokksins, ekki
einu sinni heldur tvisvar, þá er
það lýðræðið sem er sett i skamm-
arkrókinn en fallistinn hafinn til
vegs og meira að segja falið vand-
meðfarnasta og umdeildasta ráð-
herrastarf stjórnarinnar. Það
mun vart fyrirfinnast óhugnan-
Ásgerdur Jónsdóttir
Svar ritstj.
„Abyrgðarmenn lýðræðis" sitja
ekki á ritstjórn Morgunblaðsins
en engu að síður verður ekki látið
hjá líða að svara spurningum Ás-
gerðar Jónsdóttur. Ekki var við
öðru að búast en Velvakanda bær-
ist bréf frá þeim hópi manna sem
hefur á stefnuskrá sinni að hæl-
bíta Geir Hallgrímsson, formann
Sjálfstæðisflokksins.
1) Aðferðir þingflokka við val á
mönnum til að gegna ráðherra-
embættum sýna þest hve fráleitt
er að líta á prófkjör sem stað og
stund til að skipa menn í ráð-
herraembætti. Stjórnarskrá lýð-
veldisins íslands stendur vörð um
lýðræðislega stjórnarhætti meðal
annars með því að binda rétt
manna til að gegna ráðherraemb-
ættum ekki neinum sérstökum
skilyrðum. Vilji Ásgerður Jóns-
dóttir breyta þessu ákvæði stjórn-
arskrárinnar vegna þess að það sé
ólýðræðislegt þarf hún að færa
fyrir því sterkari rök en árásir á
Geir Hallgrímsson. Ásgerður
Jónsdóttir getur þess vegna orðið
ráðherra, ef hún fær til þess fylgi
á Alþingi.
2) Þegar Gunnar Thoroddsen
tók síðast þátt í prófkjöri sjálf-
stæðismanna fyrir kosningarnar í
desember 1979 hefði atkvæða-
magnið sem hann fékk leitt til
setu í 9. sæti á lista flokksins í
Reykjavík, ef þeirri aðferð hefði
ekki verið beitt í prófkjörinu, að
kjósendur röðuðu frambjóðendum
með því að setja tölustafi fyrir
framan nöfn þeirra. í prófkjöri
vegna kosninganna nú var þessari
aðferð ekki beitt heldur hinni að
láta atkvæðamagn ráða sæti
manna. Þannig lenti Geir Hall-
grímsson í 7. sæti. Sat Geir í því
með hlutfallslega meira atkvæða-
magn en Gunnar 1979 sem komst í
4. sætið á listanum vegna röðunar
kjósenda. Því er þetta dæmi nefnt,
að tæknilegar aðferðir ráða oft
meiru en atkvæðamagn við röðun
á framboðslista. Hvor aðferðin er
lýðræðislegri má deila um eins og
keisarans skegg. Og enn skal
ítrekað að það er þingflokkur
sjálfstæðismanna sem velur ráð-
herra flokksins en ekki kjósendur.
Sú aðferð er alls ekki brot á lýð-
ræðislegum stjórnarháttum. Auk
þess var því ávallt lýst yfir, m.a.
af efsta manni á lista sjálfstæð-
Þessir hringdu . . .
Okkur langar
líka í ís
Elísabet Jónsson, Keflavík,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Það er áreiðanlega erfitt
fyrir marga sykursjúka að horfa á
sjónvarpsauglýsinguna um Emm-
ess-ísinn. Það kemur sjálfsagt
vatn í munninn á fleirum en mér
við það. En nú finnst mér tími til
kominn, að við fáum að vera með,
því að okkur langar líka í ís. Á
tímabili framleiddi Mjólkur-
samsalan ís fyrir sykursjúka, að
ég held fyrir beiðni frá spítölun-
um, og þá fékkst slíkur ís hér í
Víkurbæ. Svo allt í einu var hann
horfinn og ég sá hann ekki meir.
Kannski er þessi ís enn framleidd-
ur, en mér finnst í of mikið ráðist
að fara að leggjast inn á spítala til
að fá þetta góðgæti. Og það eru
alveg örugglega ekki aðeins hinir
fullorðnu í hópi sykursjúkra, sem
eiga þarna hlut að máli; hugsið
ykkur börnin, sem verða að horfa
upp á félaga sína gæða sér á þessu.
Ekki held ég að þeim líði vel. Að
lokum langar mig til að benda yf-
irvöldum á, að þau gætu gert
meira af því að styðja við bakið á
okkur, sem erum haldin þessum
sjúkdómi. Við verðum að kaupa
vörur, t.d. ávexti, sem eru oft á
tíðum helmingi dýrari en sam-
bærilegar vörur fyrir almenning.
Megi það ganga
vel og taka sem
stystan tíma
Félagi í SFR hringdi og hafði
eftirfarandi að segja.
— Hvernig er með íslenska
verkalýðsforystu? Veit hún ekkert
um það sem er að gerast í landi
okkar? Er hún algerlega stein-
runnin? Hvað leggur Kristján
Thorlacius til að gert verði í efna-
hagsmálum íslensku þjóðarinnar
annað en að æsa til samblásturs
móti aðgerðum ríkisstjórnarinn-
ar? íslenskir launþegar hafa feng-
ið meira en nóg af ráðdeildarleysi
Alþýðubandalagsins og reyndar
fleiri undanfarin ár, enda virðist
sá einn tilgangur þeirra að skapa
algeran glundroða, því að þá er
komið að þeim að taka völdin. ís-
lenskir launþegar skorast ekki
undan þeirri ábyrgð, sem þeir og
íslensk þjóð verður að axla. Það
verður erfitt, en megi það ganga
vel og taka sem stystan tíma. Biðj-
um Drottin Guð um vit og visku
ráðamönnum okkar til handa. Með
hann í stafni mun allt fara vel.
„Úrslit kosninganna eiga
eftir að hafa mikil áhrif ‘
— sagði Margaret Thatcher þegar hún hafði greitt atkvæði
»t |m-«*u lugi kvIu áll *tr Maó
H-I.I I kaMMafli ri»a rfti» a* hrrfmála to»*i iaa I tnmmrn." «a«M fH nna i
. hMMMkmi kl» t !*'••» -•*«' Mik.l spr.nK'nK. *•"> '*.« á -.rKmn. M.k.l -.prnna hefur nkt
. ■ . Wftur Irland. . rtav >*r« hö t.l Iwr að undanform.
Vísa
vikunnar
Thatcher’s sun is shining bright,
showers allowed nowhere.
England keeps the road to right,
the road to strenjth and welfare.
Hákur
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Þessi mál báru á góma.
Rétt væri: Þessi mál bar á góma.