Morgunblaðið - 12.06.1983, Qupperneq 42
90
Ný plata
væntanleg frá
Mike Oldfield
— áratugur liöinn frá
útgáfu Tubular Bells
Nú á næstu dögum er vænt
anleg ný plata frá snillingnum
Mike Oldfield. Síöasta plata
hans, Five Miles Out, seldist
mjög vel hérlendis og var af
mörgum talin ein besta plata
hans í langan tíma.
í hugum flestra er fyrsta plat-
an hans, Tubular Bells, vafalitið
sú sem stendur upp úr. i ár er
réttur áratugur frá því hún var
gefin út og enginn skyldi halda
aö Oldfield hafi getaö valiö úr
tilboöum útgefenda, þvert
móti.
Enginn fékkst til aö gefa verk
hans út og þaö var ekki fyrr en
kunningi hans sló til og lagöi fé
í útgáfuna. Þetta var upphafiö
að mikilli sigurgöngu Virgin-
útgáfunnar. t dag hefur Tubular
Bells selst í meira en 10 milljón-
um eintaka.
Hin nýja plata Oldfield ber
nafniö Crises. Hún er algerlega
tvískipt (reyndar eru allar plötur
þaö, ef grannt er skoöað). Á
annarri hliöinni er eitt samfellt
tónverk. Hin hliöin er í formi
styttri laga. Á meöal aöstoö-
armanna hans nú eru Jon And-
erson, fyrrum í Yes, Mlke
Chapman og söngkonan
Maggie Reilly, sem m.a. söng
titillagiö á síöustu plötu.
Sjötti
meölimurinn í
Seafunk-sveitina
Hljómsveitlnni lcelandic Sea-
funk Corporation hefur áskotn-
ast annar hljómborösleikari.
Heitir hann Birgir Jóhann Birg-
isson. Hann kemur ekki í staö
eins né neins heldur er hér aö-
eins um viöbót í hljómsveitina
aö ræöa.
Hljótt hefur veriö um hljóm-
sveitina allt frá því hún efndi til
tónleika meö tveimur öörum i
Bæjarbíói í aprílbyrjun. Hún
hefur hins vegar æft af ofur-
kappi aö undanförnu.
Auk hljómborösleikarans
nýja hefur sveitín nælt sér í um-
boösmann, auk sérstaks
hljóöblendils (mixermanns á
enn verri islensku) og Ijósa-
j meistara. Markús Sigurösson
er hér með ábyrgur fyrir hljóöi
og Egill Egilsson fyrir Ijósum.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983
Tónleikaprógramm Mezzo-
forte alveg stokkaö upp
— BARA-Flokkurinn kemur fram meö Mezzoforte í Leysdown og e.t.v. líka í Dominion í London
Tónleikaferö Mezzoforte um
Bretlandseyjar stendur nú sem
hæst og hafa móttökurnar sem
hljómsveitin hefur fengiö, veriö
mjög góöar hvar sem hún hefur
komið fram.
Nokkuö er nú um liöið frá þvi
Járnsíöan birti nákvæman lista yfir
alla tónleikaferöina þeirra, en núna
í vikunni barst okkur annar listl,
nýr og endurbættur. Viö yfirferð á
honum kemur í Ijós, aö vart stend-
ur steinn yfir steini á gamla listan-
um.
Talsvert hefur verið um aö fólk
spyröist fyrir um hvenær og hvar
Mezzoforte léki í Bretlandi. Fjöldi
íslenskra ferðamanna heimsækir
Bretland á hverju sumri og marga
fýsir aö heyra í sveinunum. Járn-
síöan birtir því listann til þæginda
aö nýju. Athygli er vakin á því aö
hann er gerbreyttur frá því sem
var.
Annaö kvöld, mánudagskvöld
13. júní, leikur Mezzoforte í Fair-
field í Croydon, þann 15. í Gold
Diggers í Chippenham, þá Guild-
hall í Southampton daginn eftir,
Assembly Hall í Tunbridge Wells
þann 17., Winter Gardens í Mar-
gate 18., Theatre Royal í Lincoln
19., Gaumont í Ipswich 21., Ass-
embly Hall í Worthing 22., Ding-
walls í Bristol 23., háskólanum í
Swansea 24., Stage Three í Leys-
down 25., The Derngate í North-
ampton 26., Romeo and Juliet í
Derby þann 27., sama staö í Don-
caster daginn eftir, Appollo í Ox-
ford 29. og Dominion í London
þann 30.
Áfram veröur haldiö og leikiö í
Circus Tavern í Essex dagana 1.
Muddy Waters látinn:
Fimmmenningarnir í Mezzoforte slappa af í búningsherberginu aó loknum vel heppnuöum tónleikum.
Grýlanna getið á
síöum Politiken
og 2. júní, Appollo í Manchester 3.
júlí, Dingwall's í Newcastle þann 6.
og Dingwall's í Hull 7., Cabaret
Club í Newmarket 8., Essex Barn
Braintree þann 9. júlí og loks í
Blazers í Windsor þann 10. júlí.
Ljóst er aö BARA-Flokkurinn
kemur fram meö Mezzoforte í
Leysdown og nú er veriö aö at-
huga hvort mögulegt sá aö Akur-
eyringarnir komi einnig fram í
Dominion í London. Þeim tónleik-
um veröur m.a. útvarpaö beint.
— SSv.
Eins og skýrt hefur verið frá á
Járnsíðunni eru Grýlurnar þessa
dagana í Danmörku og þaðan
fara þær áleiðis til Noregs og Sví-
þjóðar. Járnsíðan hefur enn eng-
ar spurnir haft af tónleikum Grýl-
anna, en vitað var fyrir förina, að
þeirra var beðið með nokkurri
eftirvæntingu.
Danska stórblaöiö Politiken birti
við komu Grýlanna til Kaupmanna-
hafnar stæöilega tveggja dálka
frétt um þær og fylgdi ágætis
mynd aö auki. „Islandske hekse í
byen“ var fyrirsögnin.
Um leið var þess getiö að
kvikmyndin Rokk í Reykjavík, heföi
hlotið mikið umtal á íslandi og
hlutar úr henni m.a. verið bannaöir
ungum börnum. Danskinum þykir
mikiö til þess koma aö þeir fá
óskerta útgáfu myndarinnar til
sýningar meö „sniffinu" og öllu
saman.
Einn
heims fallinn í valinn
kunnasti blúsari fei T 1 j~i «
s fallinn í valinn E lSlEllClSKC
Hvernig í ósköpunum, sem á
því getur staöiö, hefur ekki ver-
iö sagt frá því í máli eða mynd-
um hérlendis, a.m.k. ekki aö
því er umsjónarmaöur síöunnar
veit, aö Muddy hinn eini og
sanni Waters er allur. Dauöa
hans bar aö höndum fyrir meira
en mánuði, á heimili hans
skammt frá Chicago.
Er hann lést var hann oröinn
68 ára gamall, fæddur í Rolling
Fork í Mississippi 1915. Skírn-
arnafn hans var McKinley
Morganfield, en þaö vék síöar
fyrir nafninu, sem hann alltaf
notaöi, Muddy Waters.
Flestum ber líkast til saman
um, aö fáir ef nokkrir blúsarar
heimsins hafi staöiö honum á
sporöi á sviði. Lög hans eins og
„Hoochie Koochie Man“ og
„Got My Mojo Working", sem
Nine Below Zero léku svo listi-
lega á hljómleikaplötu sinni, eru
aöeins tvö fjölmargra laga
hans.
Tónlist Muddy Waters haföi
áhrif á fjölda tónlistarmanna og
nægir þar aö nefna Rolling
Stones. Nafn hljómsveitarinnar
er einmitt samiö upp úr nafni
eins laga Waters. Hann lék meö
mörgum mjög frægum blúsur-
um, m.a. Jimmy Rogers, en lag
hans „Gimme T For Texas"
varö frægt á ný i flutningi Lyn-
yrd Skynyrd, Buddy Guy,
Memphis Slim, Otis Spann og
Little Walter.
Þrátt fyrir alvarlegt bílslys
1970 lét Waters þaö ekki aftra
sér frá tónleikahaldi og honum
leiö hvergi betur en á sviöi.
Hann kom fyrst fram í Bretlandi
1958 og vakti stormandi lukku.
Síöustu tónleikar hans þar voru
á Knebworth-hátíðinni 1981. is-
lendingum síðari ára er hann
e.t.v. minnisstæöastur úr mynd
Band, „The Last Waltz".
hekse i byen
Ftlm om rock og snifning i Reykjavik
Fyrirsögnin í Politiken um Grýlurnar og kvikmyndina Rokk í Reykjavík.
Grace Jones komin og farin:
Margir urðu fyrir
sárum vonbrigðum
Vart hefur fariö framhjá nokkr-
um poppunnanda, aö Grace Jon-
es tróö upp hér á landi um síö-
ustu helgi. Hennar var beöið meö
mikilli eftirvæntingu, en eftir því
sem Járnsíöan kemst næst voru
ansi margir vonsviknir eftir aö
hafa barið goöið augum.
Flestum ber saman um aö
tónleikarnir í Sigtúni hafi veriö
miklu betri en í Safari kvöldiö eft-
ir, enda þá svo troöið í staöinn,
aö menn máttu vart skipta um
skoöun fyrir þrengslum. Ekki
bætti þá úr skák, að verulegur
hluti gestanna sá ekkert til Grace
Jones, né hvaö hún var aö gera.
Þegar svo bættist ofan á, aö
hljóöiö datt út um skeið voru
margir komnir á fremsta hlunn
meö aö ganga út.
Þótt menn hafi e.t.v. setiö á
sér í Safari var ekki svo í Sigtúni
kvöldiö áöur. Þar fréttist af þó
nokkrum, sem gáfust upp á að
bíöa eftir söngkonunni. Atti hún
aö koma fram um kl. 22.30 skv.
dagskrá, en þegar klukkan var
orðin eitt og ekkert bólaöi á
henni er vitaö til þess aö fólk
gekk út.
Ekki er ástæöa til annars en
aö þakka Leópold Sveinssyni og
hjálparkokkum hans fyrir þaö
eitt, aö gefa landanum tækifæri á
aö berja Grace Jones augum, en
í Ijósi þessarar reynslu ætti aö
standa ööruvísi aö málum næst.
Safari hentar engan veginn undir
tónleikahald stórstjörnu og Sig-
tún þá ekki heldur þótt staóurinn
sé e.t.v. betur til tónleikahalds
fallinn.
Skyldi einhver e.t.v. undra sig
á því hversu lítið hefur verið um
söngkonuna fjallað í dagblööun-
um skal sú skýring gefin, aö
tímaritið Samúel keypti einkarétt
aö myndatökum af henni svo og
viótali. Þar sem aöeins einum
Graca Jonea komln og farin.
Ijósmyndara er hleypt á tónleika
hennar og hún veitir aöeins eitt
viötal á hverjum staö varö ekkert
úr því aö Járnsíöan nálgaöist
hana. — sSv.