Morgunblaðið - 23.06.1983, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavfk.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrrfstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö.
Ný viðhorf í
skattamálum
Efnahagsaðgeröir, sem
hægja eiga á sjálfvirkum
og keðjuverkandi víxlhækkun-
um kaupgjalds og verðlags og
koma í veg fyrir annars fyrir-
sjáanlega rekstrarstöðvun í
undirstöðuatvinnuvegum, rýra
ótvírætt kaupmátt. Kaupmátt-
arrýrnun milli áranna 1982 og
1983, sem verður mikil, stafar
þó mestpart af þróun efna-
hagsmála liðin misseri og hefði
að stærstum hluta komið fram,
þó ríkisstjórnin hefði engin
bráðabirgðalög sett. Efna-
hagsráðstafanir hennar rýra
hinsvegar meðalkaupmátt
launa 1983 um 3% til viðbótar
þeirri kaupmáttarskerðingu
sem spár stóðu ella til, um leið
og þær draga úr hraða verð-
bólguskriðsins.
Mildandi aðgerðir ríkis-
stjórnar ná bæði til tekju-
skattslækkunar og hækkunar
tryggingarbóta. Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra,
hefur þar að auki lagt fram í
ríkisstjórninni tillögur um
lækkun aðflutningsgjalda, sem
líta verður á sem framlag
stjórnvalda til að hægja á
verðskriði í landinu. Dagblaðið
Tíminn hefur það eftir Alex-
ander Stefánssyni, félagsmála-
ráðherra, í gær, að þessar hug-
myndir séu í samræmi við
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar, og miðist við það að
„lækka rekstrarkostnað heimil-
anna“. Því ber að fagna að sam-
staða virðist í ríkisstjórninni
um þessi nýju viðhorf í skatta-
málum.
Ekki er víst að lækkun að-
flutningsgjalda rýri tekjur rík-
issjóðs afgerandi. Þvert á móti
kann slík lækkun að leiða til
hins gagnstæða. Verulegur
samdráttur hefur sagt til sín í
sölu bifreiða, sjónvarpa,
hljómflutningstækja, myndseg-
ulbanda, heimilistækja o.s.frv.,
en ríkisskattar eru um helming-
ur af sóluverði bifreiða og stór
hluti í verði allrar vöru. Veru-
legur sölusamdráttur bitnar því
ekki sízt á ríkissjóði, þann veg,
að hvaðeina, sem auðveldar al-
menningi að eignast slík tæki,
kann að skila sér aftur til ríkis-
sjóðs. Hitt væri svo ekki lakara
ef lækkun aðflutningsgjalda
næði jafnframt til vöruflokka
sem fremur teljast til nauð-
synjavöru heimilanna í landinu.
Fram hjá hinu má þó ekki
horfa að viðskiptahalli og
skuldastaða þjóðarbúsins gagn-
vart umheiminum hvetur til
varúðar varðandi innflutning
og eyðslu. Fyrst og fremst ber
þó að hvetja til aukinnar þjóð-
arframleiðslu og þjóðartekna,
ekki sízt á vettvangi virkjana og
orkuiðnaðar, en möguleikar á
þeim vettvangi vóru því miður
hornrekur í tíð fráfarins iðnað-
arráðherra.
Það ríkir efnahagskreppa í
samfélaginu, þjóðarframleiðsla
og þjóðartekjur hafa dregizt
saman. Skuldir hafa hlaðizt upp
erlendis. Óðaverðbólga hefur
sett ýmsum framleiðslufyrir-
tækjum stólinn fyrir dyrnar.
Við slíkar aðstæður ber stjórn-
völdum að draga saman segl í
ríkisútgjöldum og skattheimtu;
setja ríkisbúskapnum sömu
reglur um sparnað og aðhald og
almenningi. Lækkun tekju-
skatta og aðflutningsgjalda,
sem ríkisstjórnin lætur liggja
að, með og ásamt niðurskurði
ríkisútgjalda, er greiðförnust
leið hennar að trúnaði og stuðn-
ingi fólksins í landinu. Um-
talsvert átak á þessu sviði yrði
fordæmi sem fólk vildi gjarnan
fyigja.
Ríkisstjórnin verður sjálf að
kortleggja þann völl, sem áróð-
ursstríð næstu mánuða og miss-
era verður háð á; tryggja sér
vígstöðu, sem felur í sér sigur.
Þá vígstöðu getur enginn skap-
að nema hún sjálf. Rætist sú
veðurspá í skattamálum, sem
felst í ummælum Alberts Guð-
mundssonar, fjármálaráðherra,
og Alexanders Stefánssonar, fé-
lagsmálaráðherra, er það byrj-
un sem lofar góðu um fram-
haldið.
B-álma
Borgarspítala
Meðalævi íslendinga hefur
lengst verulega sem jafn-
framt hefur breytt aldursskipt-
ingu þjóðarinnar. Þjóðfélagið
hefur hvergi nærri aðlagað sig
að þessum breyttu aðstæðum;
þörfum þess vaxandi hóps, sem
setzt hefur í helgan stein að lok-
inni starfsævi. Dekksti blettur-
inn á velferðarþjóðfélagi okkar
í dag er skortur á sjúkrarými
fyrir öldrunarsjúklinga. Nú hef-
ur nokkuð úr rætzt með B-álmu
Borgarspítala, sem að hluta til
var tekin í notkun í fyrradag, en
stefnt er að því að álman verði
fullbyggð 1986. Það vóru þeir
Davíð Oddsson, borgarstjóri, og
Matthías Bjarnason, heilbrigð-
isráðherra, sem formlega
hleyptu starfseminni af stokk-
unum.
Næsta stórátak heilbrigðis-
þjónustunnar, í þágu landsins
alls, þarf að vera K-bygging
Landspítala. Þörfin fyrir þá
byggingu er brýn og aðkallandi,
ekki sízt í þágu krabbameins-
varna.
Leggja ber áherzlu á að ljúka
B-álmu Borgarspítala og hefja
K-byggingu Landspítala. Það
eru verðug verkefni næstu ára á
vettvangi heilbrigðisþjónust-
unnar.
Þessi mynd er tekin á Látrum. Vigdís stendur á milli þeirra Stefáns Skarphéðinsson (t.h.) og Þórðar Jónssonar. Unga stúlkan
foður sínum, Kristni Guðmundssyni, en hann er fóstursonur Ásgeirs Erlendssonar vitavarðar, sem grillir f að baki þeirra. Lengs
en við hlið hennar er Haukur Þórðarson, sonur Þórðar í Látrum.
För forseta íslands um Vestfirði:
Forsetinn á slóði
Fatreksfirði, 22. júní,
frá blaðamanni Mbl., Hjálmari Jónssyni.
ÍBÚAR Barðastrandarsýslu færðu for-
seta íslands, frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur, málverk að gjöf við athöfn í Sauð-
lauksdalskirkju seinni partinn í dag,
en þar var föðurafi hennar prestur um
áratuga skeið. Málverkið málaði Þór-
dís Tryggvadóttir á Patreksfirði og er
það af Sauðlauksdal.
Annars hófst annar dagur heim-
sóknar forseta íslands til Vest-
fjarða klukkan átta í morgun með
því að farið var frá Flókalundi, þar
sem gist var í nótt, áleiðis til Látra.
Þar tók á móti forsetanum og bauð
hana velkomna Þórður Jónsson
bóndi á Látrum og lítil stúlka færði
forsetanum bióm. Hún er nafna frú
Vigdísar, sonardóttir vitavarðarins
í Látrabjargsvita, Ásgeirs Erlends-
sonar, og heitir Jóna Vigdís Krist-
insdóttir. Forsetinn þáði veitingar á
Látrum áður en haldið var inn að
vitanum og hann skoðaður í fylgd
vitavarðar. Ásgeir vitavörður færði
frú Vigdísi að gjöf hvítan ref sem
hann hafði veitt í vetur og verkað
skinnið upp á gamla mátann. Einn-
ig færði hann frú Vigdísi bréfahníf
sem hann hafði unnið úr steini úr
Látrabjargi.
Eftir að Bjargtangaviti hafði ver-
ið skoðaður var haldið að Fagra-
hvammi þar sem hádegisverður var
snæddur í boði Rauðsendinga. Bauð
oddviti Rauðasandshrepps, Össur
Guðbjartsson, forsetann velkomna
og kvað hann heimsóknina ekki síst
ánægjulega vegna þess að afi frú
Vigdísar, séra Þorvaldur Jakobsson,
hefði verið þjónandi prestur i Sauð-
lauksdai um áratuga skeið. Til borðs
með frú Vigdísi við hádegisverðinn
sátu gamlir Rauðsendingar sem
mundu afa hennar.
Að hádegisverði loknum hélt for-
seti íslands að bænum Hnjóti þar
sem hún opnaði minjasafn sem
bóndinn á Hnjóti, Egill Ólafsson,
ásamt konu sinni, Ragnheiði Magn-
Stefán Skarphédinsson sýslumaóur og Þórarinn Þór pófastur færðu frú Vigdísi málverk aö gjöf fyrir hönd íbúa Frú Vij
Barðastrandarsýslu. Málverkið er eftir Þórdísi Tryggvadóttur og er af Sauðlauksdal. flesta i
þeirra ]