Morgunblaðið - 23.06.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNl 1983
27
Hundaeigendur í Kópavogi:
Mótmæla
nýjum
reglum um
hundahald
NÝLEGA héldu Hundaræktarfélag
fslands, Hundavinafélag íslands og
Samband dýraverndunarfélaga ís-
lands fund með hundaeigendum í
Kópavogi vegna nýrra reglna um
hundahald í Kópavogi sem bæjar-
stjórnin hefur gefið út. Fundurinn
samþykkti ályktun þar sem ýmsum
ákvæðum í hinni nýju reglugerð er
mótmælt.
Meðal annars er mótmælt túlk-
un bæjaryfirvalda á úrslitum
könnunar á viðhorfum bæjarbúa
til hundahalds og lýst undrun á
þeim vinnubrögðum að „etja bæj-
arbúum hverjum gegn öðrum með
siðlausum uppástungum um upp-
ljóstranir og fyrirheit um nafna-
leynd," eins og segir í fréttatil-
kynningu frá Hundaræktarfélagi
íslands. Kröfunni um ófrjósemis-
aðgerðir á tíkum er mótmælt svo
og gjaldi þvi sem hundaeigendum
er gert að greiða. Þá er fram-
kvæmd leyfisveitinga mótmælt.
Að lokum fer fundurinn fram á
að framkvæmd reglugerðarinnar
verði frestað og væntir þess að
teknar verði upp viðræður á milli
bæjaryfirvalda og hundaeigenda
um eðlilegar og réttlátar óskir
hundaeigenda.
Unnið við að merkja rækjuna um borð í Dröfn. Sleppibúrið látið síga. Þessi háttur á að setja rækjurnar í sjóinn forðar
Ljósmynd: Guðmundur Bjarnason. J^jn, fr£ fug|jnum.
Merktar rækjur settar í sjóinn í ísafjarðardjúpi
— markmiðið að kanna hvort stofninn sé sjálfstæður eða ekki
RÚMLEGA þrjú þúsund rækjur
voru merktar og settar í sjóinn á
þremur stöðum á ísafjaröardjúpi
fyrr í þessum mánuði. Það var
rannsóknarskipið Dröfn sem sá
um þessa framkvæmd og er mark-
miðið það að kanna hvort rækjur
ganga úr ísafjarðardjúpi út á
djúprækjumiðin. Heitir Hafrann-
sóknastofnunin á sjómenn sem
kunna að finna þessa merktu
rækju að senda stofnuninni merk-
in, eða koma þeim til rækju-
mælingarmanna eða eftirlits-
manna á hverjum stað. Upplýs-
ingar um dagsetningar, staðsetn-
ingar, dýpi og veiðarfæri þurfa að
fylgja með. Verða endurheimtur
launaðar með einhverri fjárupp-
hæð ásamt upplýsingum um það
hvar rækjan hafi verið merkt.
Sólmundur Einarsson fiski-
fræðingur sagði í samtali við
Mbl. að þetta væri í annað skipt-
ið sem slík könnun væri gerð. Sú
fyrri var gerð árið 1971, en þá
skiluðu rækjurnar sér ekki,
„einkanlega vegna þess,“ sagði
Sólmundur, „að rækjunum var
þá einfaldlega kastað í sjóinn og
voru því auðveld bráð fyrir
fugla. Nú voru þær settar í sér-
stök sleppibúr, sem sökkt var á
mikið dýpi og síðan opnað og
dregið upp. Auk þess voru rækj-
urnar of fáar i fyrri könnuninni
og sjósettar of utarlega í Djúp-
inu.“
Sólmundur sagði að hingað til
hefðu menn álitið að stofninn í
ísafjarðardjúpi væri sjálfstæður
og aðskilinn frá stofninum á
djúprækjumiðunum, en þau
liggja 60 sjómílur norður af
Kögri og austur að Kolbeinsey
og suður að Sporða- og Stranda-
grunni. En þetta væri ekki vitað
fyrir víst og mikilsvert væri að
fá örugga vitneskju þar um.
„En þessi rannsókn getur ekki
gengið upp nema í góðri sam-
vinnu við sjómenn og því heitum
við á þá að slá ekki slöku við að
senda merkin inn. Það er auðvelt
að finna merkin, þau eru tölu-
vert stór miðað við rækjuna, blá
og ílöng,“ sagði Sólmundur.
í þessum sama leiðangri var
einnig framkvæmd árleg rækju-
lirfukönnun, en það er gert til að
varpa ljósi á árgangaskipun
rækjunnar.
Frá hestamóti á Murneyri. Ljósm.: Sig. Sigm.
Murneyrarmót-
ið um helgina
KvAra-I.M«hnlti 21 mni
Syóra-Uhgholti. 21. jóni.
ÁRLEGT hestamót hestamannafé-
laganna Sleipnis og Smára í Árnes-
sýslu fer fram á Murneyri sem er á
bökkum Þjórsár nú um helgina.
Murneyrarmótin eru jafnan með
fjölmennustu hestamótunum enda
er aöstaöa þar góð til slfks móta-
haMs, góður skeiðvöllur og góð
tjaldstæði.
Fjölmargir koma ríðandi á
tta mót, sumir nokkuð langt að.
fyrra voru um 800 hross á svæð-
inu um mótshelgina en fólksfjöldi
um |500. Dómar gæðinga hefjast á
h
laugardagsmorguninn kl. 10 en
unglingakeppni kl. 15. Undanrásir
kappreiða hefjast kl. 17 en um
kvöldið verður kvöldvaka með
blönduðu efni. Á sunnudag er
mótið svo sett kl. 13, þá fara fram
úrslit kappreiða og verðlaun af-
hent í gæðinga- og unglinga-
keppnunum. Mikil þátttaka er i
öllum keppnisgreinum og munu
um 200 hross fá að spreyta sig
með knapa sína á Murneyrinni nú
um helgina.
— Sig. Sigm.
Hnausar:
Nýtt tjaldstæði á
Kirkjubæjarklaustri
llnausar, 20. júní.
Undanfarið hefur verið unnið við
að gera tjaldstæði hjá Stjórnarfossi
á Síðu. Ferðamálanefnd sem starfar
í Kirkjubæjarhreppi hafði forgöngu
um þetta og hefur verið unnið í sjálf-
boðavinnu og mikil þátttaka, þar á
meðal frá Ungmennafélaginu Ár-
manni, sem mun cinnig nota snyrti-
aðstöðuna.
Er íþróttavöllur uúgmennafé-
lagsins þarna mjög nærri. Tjald-
stæðið verður opnað nú eftir
næstu mánaðamót. Staðurinn er
mjög nærri Kirkjubæjarklaustri
mátulega fjarri aðalvegi. Birki var
gróðursett í brekkuna ofan við
tjaldstæðið til að prýða staðinn,
sem er þó fyrir einn hinn fegursti
á Síðu. Hlýtur að verða notalegt
að sofna þarna og hverfa frá
streitu nútímans við niðinn frá
Stjórnarfossi. Vilhjálmur.
Fishing News
International:
Tuttugu
síðna sérrit
um ísland
SÉRSTAKT 20 síðna fylgirit um ís-
land fylgir júníhefti ritsins Fishing
News International, þar sem fjallað
er um fiskiðnað og þjónustufyrirtæki
við hann á íslandi.
Meðal efnis í blaðinu er viðtal
við Steingrím Hermannsson, þá-
verandi sjávarútvegsráðherra.
Um fiskiðnað á íslandi segir með-
al annars að ísland hafi þróað eig-
in þjónustufyrirtæki fyrir fisk-
iðnað og að sú mikla reynsla sem
hafi fengist af að sjá fiskiðnaðin-
um fyrir þjónustu hafi styrkt
stöðu þjónustuiðnaðarins á al-
þjóðlegum mörkuðum, þannig að
hann sé jafnvel feti framar.
INNLENTV
Stóðst próf hjá
ríkisskattstofu
Bandaríkjanna
Ríkisskattstofa Bandarikjanna
hefur gefið Önnu Þóru Manger
skírteini númer 31966 og veitt henni
leyfi til að koma fram fyrir hönd
skattgreiðenda, cinstaklinga og
fyrirtækja í öllum þeim málum sem
varða ríkisskattstofuna. Hún stóðst
próf hjá ríkisskattstofunni í október
til að ná þessum réttindum.
Anna Þóra er fædd á Seyðis-
firði, dóttir hjónanna Ragnhildar
Guðmundsdóttur og Benedikts
Þórarinssonar. Hún varð stúdent
frá Verslunarskólanum 1957 en
stundaði nám i endurskoðun og
skattamálum við New York Uni-
versity. Frá 1973 hefur hún verið
endurskoðandi hjá Glickman &
Company í New Jersey. Anna er
gift Arnold Manger verkfræðingi
og eru þau búsett í New Jersey.
Hárgreiðslu-
stofa Æsufelli
Nýlega hafa hárgreiðslumeistararnir Edda Hinriksdóttir og Guðrún Sólveig
Grétarsdóttir (Dollý) opnað stofu að Æsufelli 6. Þær hafa báðar rekið
hárgreiðslustofu áður. Edda rak Hárgreiðslustofu Eddu í Sólheimum 1 og
stofnaði í fyrsta sinn hárgreiðslustofu í Borgarnesi. Dollý rak hárgreiðslu-
stofuna Lokkablik og befur unnið á nokkrum stofum síðan. Þær stöllur
bjóða upp á alla algenga þjónustu jafnt fyrir dömur og herra.
Aðalfundur Verndar
Aðalfundur félagasamtakanna Verndar veröur haldinn mið-
vikudaginn 29. júní nk. aö Hótel Heklu, kjallarasal, kl. 20.30.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Lagðir fram reikningar félagsins til samþykktar.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar og endurskoöenda.
5. Tekin ákvörðun um félagsgjöld.
6. Önnur mál.
Allir félagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórnin.