Morgunblaðið - 23.06.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
35
Utvarpsdagskráin hefur tekið
mikinn fjörkipp í júnímánuði
eftir langvarandi deyfð síðari
hluta vetrar. Poppunnendur
þurfa t.d. ekki að kvarta. Gunn-
ar Salvarsson er kominn af stað
með nýjan þátt, „Listapopp", og
leikur öll vinsælustu lögin aust-
an hafs og vestan. Tónlistarfólk
þarf almennt ekki að kvarta, út-
varpið gerir hinum ýmsu tónlist-
arstefnum góð skil. Jazzgeggjar-
ar fagna nýjum þætti Jóns Múla
um sögu jazzins sem verður á
dagskrá seint á sunnudagskvöld-
um í sumar og fram á haust.
Ég var næstum búinn að
gleyma því að sjónvarp er til á
Islandi þar sem útvarpsdagskrá-
in var svo skemmtileg og fræð-
andi þessa dagana í júnímánuði.
Sjónvarpsdagskráin er afar til-
breytingarlaus og fátt sem vekur
athygli af því efni sem sjónvarp-
ið býður uppá á miðju sumri.
Sunnudaginn 12. júní var á
dagskrá eftir kvöldfréttir mynd
frá hestamannamóti Landssam-
bands íslenskra hestamanna á
Vindheimamelum i Skagafirði
sumarið 1982. Ernst Kettler
kvikmyndaði og Páll Stein-
grímsson gerði hljóð. Hópreið
hestamanna var tilkomumikil
sjón og glaðværð ríkjandi á mót-
stað eins og vera ber þegar
hestamenn koma saman. Kvik-
myndun var frábær og öll gerð
myndarinnar til fyrirmyndar.
Mánudagskvöldið 13. júnf
klukkan 21.45 sýndi sjónvarpið
fróðlega mynd um svokölluð
glasabörn og nýjar tilraunir með
frystingu og geymslu frjóvgaðra
eggja. Dr. Carl Wood og starfslið
hans á tilraunastöð í Melbourne
i Ástralíu sýndi sjonvarpsáhorf-
endum hinn mikla galdur vísind-
anna og var það allt saman
skemmtilegt og fræðandi. JR og
Derrick keppa nú um hylli sjón-
varpsáhorfenda í viku hverri og
eru báðir bara nokkuð snjallir.
JR að fremja glæpinn og Derrick
að fletta ofan af glæpamönnum.
Þýski sakamálaþátturinn um
lögregluforingjann Derrick er að
öllu leyti betri en sagan af fólk-
inu í Dallas sem er orðið svo
geggjað um þessar mundir að
ekki veitti af heilli herdeild af
geðlæknum til að aðstoða aum-
ingja fólkið.
Olafur Ormsson
Hclgi Gyjólfsson, harmonikkuleikari
frá Borgarfirði eystra.
í Bergen árið 1977 og í Burgas í
Búlgaríu árið 1978.
Við Borgfirðingar þökkum
þeim ánægjulega kvöldstund
þann 16. sl. og árnum þeim far-
arheilla, fullvissir þess, að ferðin
verður þeim sjálfum og landi
þeirra til sóma. Þjóðdansa-
flokkurinn mun sýna hér í
Glæsibæ sunnudaginn 27. júní
kl. 16.00. _ Sverrir.
Alltaf á fóstudögum
Yfirlýsing vegna skrifa
um garðaúðun og tankbifreið
eftir Brand Gislason
garðyrkjumann
Á síðustu vikum hefur verið fjall-
að mikið um garðaúöun í Reykjavík
í fjölmiðlum. Þar á meðal hefur
borgarlæknisembættið í Reykjavík
látið í veðri vaka að framkvæmd úð-
unar sé ábótavant þ.á m. að geymslu
og flutningi eiturefna um borgina. í
kjölfar ummæla borgarlæknis hafa
ýmsir einstaklingar fullyrt að notk-
un tankbfla við úðun væri ólögmæt
og óforsvaranleg með öllu. Dagblaö-
ið/Vísir hefur fylgt þessu eftir með
heilsíðu greinarskrifum skreyttri
með myndum af tankbfl sem ég hef
notað árum saman við garðaúðun.
Gnnfremur hefur Sigrún Davíösdótt-
ir hvatt til þess í Morgunblaðinu, að
menn gætu kallað til lögreglu ef það
yrði vart við umræddan tankbfl á
ferð um borgina.
Framanrituð umfjöllun sem
hefur verið ákaflega einhliða og
sett fram af óathuguðu máli, hef-
ur leitt yfir mig veruleg óþægindi.
Ég sé mig því knúinn til að skýra
frá fáeinum staðreyndum málsins.
Síðastliðin sjö ár hef ég notað
umræddan tankbíl við garðaúðun,
en hef stundað garðaúðun í 12
sumur alls. Tankbifreiðin er sér-
staklega búin til þessara starfa og
má í því sambandi m.a. nefna eft-
irfarandi atriði um hana og fram-
kvæmd úðunar almennt á mínum
vegum.
1. Tankurinn er smíðaður eftir
ströngustu kröfum úr krómstáli.
Og eru á honum tvö 2.000 lítra
hólf, lokin á tanknum leka ekki
þótt bifreiðin velti.
2. Tankurinn er byggður í miðj-
um bílnum og er varinn á hliðum
með sérstaklega styrktum skáp-
um. Fyrir aftan tankinn er höggv-
ari festur á grind bifreiðarinnar.
3. Dælur og leiðslur eru úr galv-
aniseruðu stáli, sérstaklega leka-
þéttar. Kranar og slöngutengi,
ásamt slöngum eru í læstum skáp
á bifreiðinni.
4. Óblandað eitur er geymt í
stálkassa sem varðveittur er í
læstum skáp á bifreiðinni.
5. Eitri og vatni er blandað á
tankinn á afviknum stað í Reykja-
vík, völdum í samráði við borg-
arstarfsmenn og öll umgengni um
þann stað undir eftirliti þeirra.
6. Bifreiðin er ávallt þvegin
hátt og lágt að loknum hverjum
vinnudegi.
7. Bifreiðin er máluð í áberandi
litum, merkt fyrirtæki mínu,
nafni mínu og síma. Blandast eng-
um hugur um til hverra nota bif-
reiðin er.
8. Fimm manna starfslið fylgir
bílnum. Tveir sinna úðun, einn
gætir bíls og umhverfis og og tveir
fara á undan til að gera viðvart
um úðun, kanna garða og um-
hverfi þeirra. Þessir tveir tína
saman leikföng, hjól, barnavagna
og aðra lausamuni. Þeir sjá um að
þvottur sé tekinn inn af snúrum,
gluggum lokað, einkabílar færðir
ef þörf krefur og gera allt til að
tryggja að úðun geti farið slysa-
laust fram. Aðvörunarmiðar eru
settir á alla garða áður en úðun
fer fram. Berist úði einhverra
hiuta vegna yfir nærliggjandi bíla
eru þeir umsvifalaust skolaðir
með vatni.
9. Úðunarmenn eru í hlífðarföt-
um, með gúmmívettlinga og bera
öndunargrímur með kolafilterum.
Einnig nota þeir plastandlitshlíf-
ar við úðun hárra trjáa.
Ég þori að fullyrða með hliðsjón
af framantöldu, að umrædd tank-
bifreið og öll framkvæmd úðunar
á mínum vegum, þar með talinn
flutningur og geymsla eiturefna sé
með því öruggasta, sem þekkist í
þessum málum hér á landi sem
erlendis. Að gefnu tilefni skal tek-
ið fram að engin slys eða veikindi
hafa hlotist af notkun tankbifreið-
arinnar. Þá skal tekið fram, að
þau sjö ár sem tankbifreiðin hefur
verið notuð hafa þeir opinberu að-
ilar sem skylt er lögum samkvæmt
að hafa eftirlit með framkvæmd
garðaúðunar og tækjabúnaði til
úðunar.ekki gert athugasemdir við
tækjabúnað minn. Ég fagna því
hins vegar að nú hefur að frum-
kvæði mínu tekist ánægjulegt
samstarf við heilbrigðisnefnd
Reykj avíkur, heilbrigðiseftirlitið,
vinnueftirlit ríkisins svo og Jón
Gunnar Ottósson, skordýrafræð-
ing. Ég vona því að hér eftir fari
öll umræða um málið fram á mál-
efnalegum grundvelli á faglegan
hátt. Orökstuddar fullyrðingar og
gáleysisleg skrif og myndbirtingar
eru síst fallnar til að bæta fram-
kvæmd garðaúðunar.
Að lokum skal þess getið að mér
hefur borist eftirfarandi vottorð
frá Guðmundi Ingólfssyni heil-
brigðisfulltrúa: „Við eftirlit sem
fram fór í dag, kom í ljós, að úðun-
arbíll R-49227 fullnægir kröfum
sem heilbrigðiseftirlitið gerir til
notkunar við garðaúðun."
Reykjavík, 20. júní 1983
Nú er létt að slá!
Við kynnum nýju sláttuvélina okkar,
SNOTRU, sem erframúrskarandi létt og
lipur. Hún er útbúin hljóðlátri 3,5 hestafla
fjórgengisvél (nágranninn þarf ekki að
kvarta) með mismunandi hraðastillingum
og notar aðeins óblandað bensín.
Sláttubreiddin er 46 cm sem þýðir
fœrri ferðir yfir grasflötina. Einnig eru 3
hœðarstillingar á vélinni, þannig að
hnífurinn getur verið mismunandi hátt
frá jörðu en það kemur sér vel á ójafnri
grasflöt. Lögun hnífsins gerirþað að
verkum að grasið lyftist áður en það
skerst, þanmg að grasið verður jafnara á
eftir.
Utan um SNOTRU erepoxyhúðað
stálhús sem fyrirbyggir óþarfa skrölt
ogryð.
Með SNOTRU er hægt aðfá sér-
stakan graspoka, sem gerir rakstur
óþarfan.
Að síðustu, þá slær SNOTRA aðrar
sláttuvélar út hvað verð snertir, sem er
aðeins kr. 3560.-
notna)
B.B.BYGGINGAVÖKUR HE
SUOURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331.
Skilaboð
til Söndru
Fylgst meö kvikmyndatökum á nýrri
íslenskri kvikmynd byggöri á sögu
Jökul Jakobssonar.
Úr fargjalda-
frumskóginum
Nokkrar leiöbeiningar fyrir feröalanga.
Blöndungurinn
Ný unglingasíða.
Ptrr0imWatXtí>
Föstudagsbhidid ergott forskot á helgina