Morgunblaðið - 03.07.1983, Blaðsíða 44
44
10 ÁR FRÁ G0SL0KUM I HEIMAEY
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1983
Ljósmynd Sigurgeir.
Húsið Gerði eins og þ*ð lítur út í d»g. Það týndist gjörsaralega í ösku á sínum tíma og voru a.m.k. fjórir metrar niður
á þak. Leifur Gunnarsson byggði þetU hús upphaflega og hafði búið í því í nákvæmlega einn mánuð þegar fór að
gjósa. Seinna keypti frændi Leifs, Guölaugur Björnsson, húsið og gerði það upp.
Ljósmynd Sigurgeir.
UppbyggingarsUrfið heldur áfram. Þarna er verið að byggja við Nýjabæjarbraut, skammt frá Eldfellinu.
Gerðishverfið á kafi í ösku. ÞetU líkist frekar hálendislandslagi en
mannabústöðum. Myndin er tekin í febrúar 1973.
Hverfið við ræ
GerAishverfið í Eyjum liggur mjög nálægt Eldfellinu, nán-
ast við rætur þess. Það lagðist undir ösku og vikur eins og
nærri má geta, og voru víða þrír til fjórir metrar niður á
þak húsanna í hverfinu.
Spáð fyrir goslokum
og þróuninni í Eyjum
í aprflbyrjun veturinn 1973 þegar
eldgosið í Heimaey stóð sem hæst,
voru blaðamenn Morgunblaðsins að
skrifa greinar í páskablað Morgun-
blaðsins og var miðað við tvo mögu-
leika í efnisvali. Annars vegar um
efni úr fyrndinni byggt á sUðreynd-
um, hins vegar efni sem miðaði við
árið 2000. Einn af blaðamönnum
Morgunblaðsins, Árni Johnsen, rit-
aði þá grein um Vestmannaeyjar ár-
ið 2000. Þegar enginn gat séð fyrir
um endalok gossins varð hann því
að spá um goslok, hvar hraunið
stöðvaðist, hvernig uppbyggingin fór
fram og eitt og annað.
Til gamans birtum við nú 10 ár-
um síðar glefsur úr þessari grein
Árna, því ótrúlega margt úr spá
hans hefur gengið eftir, m.a. hve-
nær gosinu lauk, en þar munar að-
eins tveimur dögum, því síðasta
sprengingin sem vart varð við í
Eldfellinu varð 17. júní, þótt form-
leg goslok væru ákveðin 3. júlí. Þá
lætur mjög nærri um spá Árna á
því hvað hraunið myndi renna
langt inn í bæinn, hann spáði því
að frystihúsin fyrir utan Hrað-
frystistöðina myndu sleppa, um
uppbyggingu nýrra fiskvinnslu-
stöðva, að íþróttahöll yrði byggð
strax eftir gos, skipalyfta og sitt-
hvað fleira, en hins vegar spáði
hann hraðari fólksfjölgun eftir
gos miðað við fyrir gos, en miðaði
þá við önnur vinnubrögð hjá
stjórnvöldum en raun varð á. Þá
spáir Árni byggð allt suður á
Breiðabakka árið 2000 og 8.500
íbúa byggð í Eyjum um aldamótin
næstu. Hér fara á eftir nokkrar
glefsur úr grein Árna sem er
skrifuð áður en gostímabilið var
hálfnað, eða um mánaðamótin
marz-apríl.
„f dag, 15. júní, á því herrans ári
2000 sit ég við skrifborð mitt að
Urðarbóli við Hrafnakletta í Vest-
mannaeyjum. Þegar maður er
kominn á fimmtugasta og sjötta
aldursár gluggar maður gjarnan á
stundum í gærdaginn og því ætla
ég að hripa hér niður nokkur at-
riði úr byggðarsögu Vestmanna-
eyja eftir gos, eins og það er kall-
að, eða frá því að gosið hætti og
ógnin hljóðnaði við bæjardyrnar
15. júní 1973. Þá hættu Foldirnar
gömlu austur á Heimaey að gjósa
og Foldin varð stillt og prúð í sam-
býli við Heimaklett og Helgafell.
Eins og menn rekur minni til
eyðilögðust tæplega 20% af hús-
um bæjarins í eldgosinu. Það var í
maí árið slæma að síðasta hraunið
rann yfir hús í bænum, en það
stöðvaðist við símstöðina. Gosárið
var óskaplega erfiður tími fyrir
Eyjaskeggja og óvissan sem teygði
sig inn í allt líf fólksins var
óhugnanlega bítandi vegna þess
að innst inni ólu allir þá von í
brjósti að komast aftur heim til
Eyja. Hún hefur ávallt verið
römm sú taug sem rekka dregur
föðurtúna til, en eyjafólk er enn
Ur grein um
Vestmanna-
eyjar árið
2000, skrif-
aðri í miðju
gosi í Eyjum
1973
bundnara umhverfi sínu en annað
fólk í því efni og sannaðist það á
gosárinu.
Eins og gosið var ótrúlegt á sín-
um tíma, þá var það ótrúlegt hvað
allt fór fljótt í gang í Eyjum eftir
að gosinu lauk. I gosinu voru
menn bjartsýnir einn daginn,
svartsýnir hinn og sumir sigldu á
milli, biðu, biðu og biðu í bítandi
bið, vonar og óvonar."
„Uppbygging Eyjanna hófst af
krafti tveimur mánuðum eftir að
gosinu lauk og nú eru allir sam-
mála um að sú uppbygging var
verðugasta verkefni sem Islend-
ingar hafa fengið á þessari öld eft-
ir stofnun lýðveldis.
5 mánuðum eftir að hreinsun
hófst hér á Heimaey á öskunni var
því verki lokið, en meginhluti ösk-
unnar var fluttur austur fyrir Fell
eins og kunnugt er. Fáir trúðu því
fyrirfram að unnt væri að hreinsa
Heimaey á eins skömmum tíma og
raun bar vitni, en fólk var ekki
vant skipulagningu og afköstum
eins og fullkomnasta tækni bauð
upp á. Það var líka ótrúlegt verk
sem Landvernd vann með sáningu
og græðslu eyjarinnar á tveimur
árum. Þá fannst manni eins og
áratugir væru liðnir frá því að
gosið hófst, en vestur og suður á
eyju risu húsaraðir eftir húsaraðir
við götu eftir götu og 1976 hafði
Vestmannaeyjakaupstaður aftur
náð 5.500 íbúa tölu.
Samtímis því að askan var
hreinsuð úr bænum voru byggðar
götur eftir nýja skipulaginu, sem
hafði verið gengið frá skömmu
fyrir gos.“
„Nú eru líka allir sammála um
að kælingin mikla hafði áhrif og
átti rétt á sér. Enda, ef á það er
litið, verður að gera eitthvað ef
nokkur von er, menn láta ekki
grafa sig lifandi án þess að berjast
á móti. Menn kaupa jú smyrsl upp
á vonina.
Það hjálpaði mikið þegar byggð-
in fór að lifna aftur með komu
fólksins að Fiskiðjan og ísfélagið
fóru ekki undir hraun og þau auk
Vinnslustöðvarinnar og Eyjabergs
lögðu mikið kapp á að gera allt
klárt um leið og uppbygging bæj-
arins hófst. Það skipti öllu máli að
athafnamenn bæjarins voru sam-
taka sem einn maður að hrinda
atvinnulífinu af stað aftur og
þáttur Gúanósins mun ávallt
verða Eyjaskeggjum hvatning til
dáða. Þó var búið að gera teikn-
ingar að nýju frystihúsunum, sem
reist voru á árunum eftir gos inni
í botni. Frystihús sem enn eru þau
glæsilegustu og fullkomnustu sem
þekkjast. Hver einasti Eyjabátur
kom aftur til Eyja, enda höfðu
Eyjasjómenn gengið kyrfilega úr
skugga um það að þeirra höfn var
höfn sem þeir vildu ekki vera án.“
„Um það bil ári eftir að gosið
hætti voru 3.000 manns komnir
aftur heim til Eyja og eins og fyrr
segir tók það 3 ár að ná upp sömu