Morgunblaðið - 06.07.1983, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1983
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir Thomas L. Friedman
Schulz varar við bjartsýni.
sama. Sýrlendingar hafa nefni-
lega á tilfinningunni, að tíminn
sé genginn í lið með þeim, því
aðeins tveimur mánuðum eftir
að samkomulagið var undirritað
í Beirut, 17. maí, voru ísraelar
farnir að huga að brottflutningi
hermanna sinna frá Chouf-fjalli
og nágrenni suðaustur af Beirut
vegna mannfalls í árásum
skæruliða. Sýrlendingar telja að
frekari tilslakanir af hálfu ís-
raela séu í vændum vegna þrýst-
ings heima fyrir, en almenning-
ur í ísrael er orðinn langþreytt-
ur á mannfallinu.
í öðru lagi telja Sýrlendingar
að þeim sé að takast að fá önnur
Arabalönd á sveif með sér í and-
stöðunni gegn samkomulaginu
Sýrlendingar ekki líklegir
til tilslakana í Líbanon
— þrátt fyrir ferð Schulz til Damascus
Ferð George P. Schulz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Mið-
Austurlanda, og þá sérstaklega til Sýrlands, í vikunni hefur vakið mikla
eftirtekt og menn velta eðlilega fyrir sér hvort að ferðin sé merki þess að
eitthvað sé að slakna á spennunni í málefnum Líbanon og brottflutningi
erlendra herja frá landinu. Að Sýrlendingar skuli veita Schulz áhevrn
þykja tíðindi, því nýlega neituðu þeir að ræða við sérlega sendifulltrúa
Bandaríkjanna í Mið-austurlöndum, þá Phillip Habib og Morris Draper.
Assad þykir ólíklegur til tilslak-
ana.
sem gert var 17. maí. Þeir hafa
sent sendinefndir til Arabaland-
anna og eru ánægðir með árang-
urinn. Auk þess óttast þeir ekki
að til vopnaskaks komi milli sfn
og ísraela, ísraelar vilji ekki
fórna mannslífum og þó að til
bardaga myndi koma, yrði það
einungis málstað Sýrlands til
góða.
í þriðja lagi, telja Sýrlend-
ingar að ef Líbanondeilan leyst-
ist nú, myndu Bandaríkin leggja
ofuráherslu á friðaráætlun
Reagans forseta. Sýrlendingar
eru á móti þeirri áætlun fyrir
margra hluta sakir, ekki síst þar
sem hún gerir ráð fyrir því að
Jórdanía verði „talsmaður" Pal-
estínumanna, en ekki Sýrland.
Loks er talið að Assad vilji
fyrir engan mun láta líta svo út
að stjórn sín sé að linast í einu
eða neinu á sama tíma og hann á
í erjum sínum við Yasser Arafat
leiðtoga PLO.
Svo er það PLO. ólíklegt er
talið að skæruliðarnir hafi hug á
að fara frá Líbanon, enda hefur
skæruhernaðurinn gegn ísrael
gengið að óskum. Arafat stendur
svo höllum fæti, að ólíklegt er að
honum yrði hlýtt ef hann fyrir-
skipaði að hinir 10.—13.000
skæruliðar PLO færu frá Líban-
on. Uppreisnarmennirnir í röð-
um PLO, sem hafa bætt við sig
fylgi, gera það auk þess að kröfu
sinni, að Palestínumenn dvelji í
Líbanon uns nýtt Palestínuríki
verði stofnað. Snagarnir eru sem
sé margir og fjölbreytilegir.
Þýtt og endurs. — gg.
Hvað segir Schulz?
Schulz ræddi við fréttamenn
við brottför sína til Saudi-Arab-
íu, en þar hafði hann sína fyrstu
viökomu í ferðinni. Hann sagði
m.a.: „Auðvitað væri það stór-
kostl.’gt ef okkur tækist að leysa
málin í þessum viðræðum, en í
raun og veru er hæpið að það
takist. Það er miklu nær að líta á
þessar viðræður sem viðleitni til
þess að ýta við hlutaðeigandi að-
ilum, en allt hefur verið í strandi
síðustu misserij}. Ég mun viða að
mér upplýsingum um málin og
skilmála Sýrlendinga sjálfra og
það er mikilsvert að fá tækifæri
til að ræða við þá, því þeir hafa
gefið út margs konar yfirlýs-
ingar. Gott að fá að vita ná-
kvæmlega hvar þeir standa,
hvað þeir sætta sig við og hvað
ekki,“ sagði Schulz og bætti við
að menn skildu ekki gera sér of
miklar vonir, því ekkert ber.ti til
að afstaða Sýrlendinga hefði
mildast, nema síður væri.
Hvað segja „hinir“?
Háttsettir embættismenn I
Sýrlandi og vestrænir diplómat-
ar þar reikna með því að Assad
Sýrlandsforseti tjái Schulz að
Sýrlendingar muni ekki taka í
mál að eiga viðræður við stjórn
Líbanon um brottflutning sýr-
lenska hersins frá landinu, með-
an að Líbanir aðhyllist „banda
ríska" samkomulagið sem ísrael-
ar og Líbanir gerðu með sér 17.
maí. Diplómatarnir, sem ekki
gáfu upp nöfn sín, sögðu ekkert
benda til þess að Assad og stjórn
hans hefðu endurskoðað hug
sinn. Það sem þeir hafa sagt
opinberlega er nákvæmlega og í
öllum smáatriðum það sem þeir
segja einnig á bak við tjöldin.
Það er stutt síðan utanríkisráð-
herra Sýrlands, Abdel Khadd-
am, undirstrikaði harðlínu-
stefnu Sýrlands í ræðu á sýr-
ienska þinginu. Hann sagði m.a.
að Sýrlendingar hefðu varað
Líbani við því að eiga í viðræð-
um meðan landið væri hernum-
ið. „En Líbanir kusu að skella við
skollaeyrum," sagði Khaddam.
Hann minnti einnig á, að sýr-
lenska stjórnin hefði gert
Bandaríkjastjórn það ljóst 26.
apríl þessa árs, að hefðu ísra-
elsmenn eitthvað upp úr krafs-
inu í samningunum umfram það
sem þeir höfðu fyrir innrásina í
Líbanon, myndi það kosta lengri
hersetu Sýrlendinga í Líbanon
en annars væri ástæða til.
Hagnaður ísraela
í ræðu sinni á þinginu reifaði
Khaddam hvað lsraelsmenn
hefðu haft upp úr krafsinu með
því að gangast að „bandaríska
samkomulaginu". í fyrsta lagi
taldi hann það afleitt að einn
þriðji hluti Líbanon væri með
samkomulaginu gerður að hlut-
lausu öryggissvæði, þar sem
Saad Hadad majór hinn líbanski
fengi að leika lausum hala, en
Hadad er svarinn óvinur Sýr-
lendinga. í öðru lagi telja Sýr-
lendingar fráleitt að Líbanir
hafi neyðst til að opna landa-
mæri sín við ísrael fyrir verslun
og ferðamönnum. í þriðja lagi að
flugher Líbanon verði varla fær
um að granda húsflugum sé far-
ið eftir samkomulaginu, í fjórða
lagi, að lönd sem engin tengsl
hafa við ísrael fái ekki heimild
til að hafa vopnaflutninga í Líb-
anon. Og í sjötta lagi, að sam-
komulagið raski sögulegum sam-
skiptum Sýrlands og Líbanon, en
þau samskipti hafa ávallt verið á
þá lund að Líbanon hefur fylgt
Sýrlandi stjórnmálalega.
Sýrlenskur
þankagangur
Vestrænir diplómatar í Dam-
ascus, sem þekkja hugsanagang
Sýrlendinga benda á fleira sem
kemur til, en Sýrlendingar fari
ekki eins hátt með. í fyrsta lagi
telja Sýrlendingar að ísraels-
menn hefðu átt að kalla heim
allt herlið sitt skilmálalaust
samkvæmt samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna nr. 508 og 509.
Þá myndu þeir gera slíkt hið
Kjöreigns/f
Ármúla 21.
85009 - 85988
Dan V.S. Wiium lögfrwðingur.
Ólafur Guömundtton tölum.
2ja herb.
Miðvangur
Góö íbúð i lyftuhúsi. Öll þjón-
usta á jaröhæö.
Asparfell
Snotur íbúö á 4. hæð. Laus
strax.
Ljósheimar
Snotur íbúö í lyftuhúsi. Ca. 65
fm. Öll sameign í frábæru
ástandi.
Hamraborg
Góö 2ja herb. íbúö á 1. hæð
(ekki lyftuhús) 70 fm. Suöur-
svalir. Bílskýli.
3ja herb.
Tunguheiði
Mjög rúmgóö íbúö á efri hæð í
fjórbýlishúsi. Útsýni. Sér
þvottahús.
Dvergabakki
Góö og haganleg íbúö á efstu
hæö. Losun samkomulag. Lítið
áhvílandi.
4raherb.
Efra-Breiðholt
með bílskúr
Rúmgóð íbúö á efstu hæð. Vel
umgengin íbúð. Sömu eigendur
frá upphafi. Stórar suöursvalir.
Ath. skipti möguleg á 2ja—3ja
herb. íbúö.
Súluhólar
Nýleg íbúö á 2. hæð ca. 115 fm.
Fullbúin eign. Afh. fljótlega.
Hraunbær
íbúð í góöu ástandi á 3. hæö.
Ljós teppi. Suðursvalir.
Laugalækur
Góö íbúð á efstu hæö í nýlegu
steinhúsi. Frábær staösetning.
Sórhæöir
Langholtsvegur
Góö sórhæð á 1. hæö í þríbýli
um 124 fm. Mæöin skiptist í 2
stofur, og 2 góð herb. Stórt
eldhús meö góöum borökrók.
Suöursvalir. Bílskúr. Ákv. sala.
Dyngjuvegur
Efri hæö í tvíbýlishúsi. Stærö
ca. 110 fm. Frábært ástand.
Fallegur garöur. Stór bílskúr.
Fífuhvammsvegur
Neöri hæð í góöu steinhúsi ca.
120 fm. Fallegur garður. Góð
staösetning. Bílskúr í góöu
ástandi ca. 50 fm.
Agnar Ólafsson,
Hafþór Ingi Jónsson hdl.
Heimasími sölum.: 30832
og 75505.
FASTEIGNA
HÖLLIN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIÐBÆR - HÁALErTISBRAUT 58-60
SÍMAR 35300& 35301
Ugluhólar
Mjög góö 2ja herb. á 2. hæö. Ákveðin
sala.
Hávallagata
Endurnyjuö 2ja herb. á jaröhæð.
Ákveðin sala.
Framnesvegur
2ja herb. á jaröhæö. Ákveöín sala.
Hvassaleiti
Rúmgóð 3ja herb. á jaröhæö.
Skarphéðinsgata
Endurnýjuö 3ja herb. Ákveðin sala.
Kríuhólar
Góö 3ja herb. ibúö meö bílskúr. Ákveö-
in sala
Orrahólar
Stórglæsileg 3ja herb. íbúö meö harö-
viöarinnrettingum. Akveöin sala.
Skálagerði
3ja herb. á mjög góöum staö. Ákveöin
sala
Vesturberg
Falleg 4ra herb. íbúö á 3. hæö. Ákveöin
sala.
Stóragerði
Glæsileg 3ja — 4ra herb. íbúö á 3. hæö.
Suöursvalir. Bilskúr. Eign í sérflokki.
Blikahólar
Mjög falleg 4ra—5 herb. íbúö á 1. hæö.
Bilskur. Mikió útsýni.
Hrafnhólar
Stórglæsileg og rúmgóö 4ra herb. íbúö
meö bílskúr. Akveöin sala.
Holtagerði Kóp.
140 fm efrl sérhæö. Ibúöin er 6 herb.
Bílskurssökklar
Kambsvegur
Efri sérhæö 230 fm sem skiptist í 2
stofur, 2 svefnherb., skála og eldhús.
Þvottaherb. innaf eldhúsi.
Unufell
Mjög fallegt raöhús á einni hæö. Bíl-
skúrssökklar. Akveöin sala.
Skeiðarvogur
— endaraðhús
Húsiö er kjallari, hæö og ris. i kjallara
eru 3 herb.. þvottahús og geymsla. A
hæö stotur og eldhús. i risi 2 herb. og
baö.
Agnar Ólafsson,
Hafþór Ingi Jónaaon hdl.
Heimas.sölum. 30832 og 75505.
3ja herb. góð íbúð
til leigu á góðum stað í Vesturbænum. Leigist frá 1.
ágúst nk. Tilboð með sem gleggstum uppl. sendist Mbl.
fyrir 9. þ.m. merkt: „Góð umgengni —2099“
Hveragerði
Lítiö einbýli óskast
Höfum öruggan kaupanda aö einbýlishúsi, ca.
60—100 fm, í gamla bænum. Þarf aö vera góð
ræktuö lóö við húsiö. Eignin þarf aö vera í góðu
standi. Bílskúr æskilegur.
Huginn fasteignasala
Templarasundi 3. Símar 25722 — 15522.