Morgunblaðið - 06.07.1983, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.07.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1983 25 Kristall frá Kolkuósi sigraöi í B-flokki geóinga og er þetta í annað skiptið sem hann sigrar á fjórðungsmóti. Knapi er Gylfi Gunnarsson, en hann er einnig eigandi hestsins. Þorri frá Höskuldsstöðum, efstur í A-flokki. Knapi er Ragnar Ingólfsson. en þó ekki fyrr en í úrslitunum, því hann hafnaði í þriðja sæti í forkeppninni. Straumur, sem var í fyrsta sæti, féll niður í fjórða sæti. Sámur lyfti sér úr því fjórða í annað og Logi féll úr öðru sæti í þriðja. Blakkur og Sörli höfðu sætaskipti á sjöunda og áttunda sæti, þannig að Sörli var í sjöunda sæti þegar upp var staðið. Tvö hross héldu sætum, þau Dimma- limm i sjötta sæti og Neisti í fimmta. Urslitakeppnin á fullan rétt á sér þótt ekki sé hún í raun sama keppnin og forkeppnin því í úrslitum er feti og stökki sleppt i báðum flokkum. Hestar sem búa yfir úrvals feti og stökki eiga á hættu að falla í röð þegar í úrslit- in kemur. Ekki verður svo skilið við gæðingakeppnina að ekki sé minnst á dómarana. Eins og venjulega var nokkuð misræmi milli þeirra á köflum en náðu þeir sér á strik öðru hvoru og var nokk- uð oft að ekki munaði meira en 0,5 á hæsta og lægsta dómara. Unglingum var gert nokkuð hátt undir höfði nú, á þann hátt að ekki voru aðrir dagskrárliðir í gangi meðan þeirra keppni stóð yfir. Taldi Sigrún Sigurðardóttir, sem stjórnaði unglingakeppninni, að sjaldan eða aldrei hafi verið eins vel staðið að unglingakeppni, en þess má geta að Sigrún er að sunnan og kom þar af leiðandi ekki nærri skipulagningu keppn- innar og má því telja hana hlut- lausan umsagnaraðila. Krakkarn- ir voru yfir höfuð vel ríðandi og var óneitanlega gaman að sjá hversu gott vald margir þeirra hafa orðið á yfirferðargangi. Kappreiöar heldur daufar en þó rættist úr árangri Ekki var fyrirfram búist við stórfenglegum kappreiðum að þessu sinni þar sem tiltölulega fá- ir komu að sunnan. Og þar af leið- andi mörg bestu kappreiðahrossin ekki með. Ástæðan fyrir þessu er sú að dýrt er að flytja hrossin norður og svo hitt að stórmót verður í Reykjavík um næstu helgi. Undanrásir voru á föstudag og fyrri sprettir í skeiði á laugardag. Satt best að segja leist manni ekk- ert á þetta þessa tvo daga, en úr rættist á sunnudag og náðust þokkalegir tímar. Heldur urðu úrslit óvænt í 250 metra skeiði, en þar sigraði Hóm- er sem Sævar Pálsson á og sat, og var tíminn 23,4 sek. Hómer þessi var reyndur nokkrum sinnum hér fyrir sunnan á sínum tíma en illa gekk að láta hann liggja. Annar varð Snarfari á 23,7 sek. og Frami varð þriðji á 23,8 sek. í 150 metra skeiði sigraði Bliki á 16,3 sek. Svanur varð annar á 16,7 og þriðji Náttfari á 18,8 sek. Ekki virtist hlaupagæslan í alveg nógu góðu lagi því Bliki var dæmdur upp í báðum sprettum að ósekju og vildi knapinn, Erling Sigurðsson, fá leiðréttingu á þessu. Þegar á reyndi kannaðist enginn hlaupa- gæslumaður við að hafa dæmt hann stökkva upp enda var það augljóst mál að hesturinn lá allan seinni sprettinn. í stökkgreinum voru sunnan- hestar í fyrstu sætum. Hylling Ut'l* pgíS'ö* JV8FI SWW1 mmr*t** 9ti* U Þannig birtist áhorfendum staðan f gæðingakeppninni hverju sinni, líkt og í kosningasjónvarpi. sigraði í 250 metra stökki á 18,7 sek., Loftur í 350 metrunum á 25,5 sek. og örvar í 800 metrunum á 62,7 sek. Brokkið var ótrúlega gott miðað við annað en þar sigraði Bastían á 39,5 sek. Burst varð önn- ur á 39,7 sek. og Trítill þriðji á 39,8 sek. Eru þetta ágætis tímar og ekki hvað síst hjá Burst því hún hafði kastað fyrir rúmum mánuði og beið folaldið við enda brautar- innar meðan mamma hirti silfrið. t 800 metra stökkinu voru aðeins tveir þátttakendur og er greinilegt að þessi annars skemmtilega vegalengd er í miklum öldudal. Það er sjaldgæft að mótsstæði geti boðið upp á tvær áttahundruð metra brautir en svo er með Mel- gerðismelana. Uppi á melnum er vallarsvæði á uppgrónum mel og er það umhugsunarvert hvort ekki ætti að flytja kappreiðar þangað þar sem augijóst er að aðalkapp- reiðabrautin gefur ekki möguleika á úrvals góðum tímum. Framkvæmd, aðstaöa og mótsbragur Þegar reynt er að meta það hvernig til hefur tekist kemur fyrst í huga manns hin framúr- skarandi góða aðstaða á Melgerð- ismelum og augljóst er, að þarna hefur verið unnið hörðum höndum undanfarnar vikur og mánuði. En það sem vekur mesta aðdáun er að allt er þetta unnið meira og minna í sjálfboðavinnu á kvöldin og um helgar. Þar sem vel er búið að fólki ríkir góður andi og ekki var annað heyra á mótsgestum en að svo væri. Mótsskráin var vel úr garði gerð, sú besta sem maður hefur séð til þessa. Blaðsíður voru í mis- munandi litum, kynbótahrossin á hvítum pappír, kappreiðar á gul- um og gæðingar og unglingar á gráum pappír. Með þessu móti var" notkun sýningarskrárinnar auð- velduð, bæði á forsíðu og baksíðu voru ljósmyndir í lit og setti það skemmtilegan svip á skrána. Að sögn lögreglunnar var lítið hjá þeim að gera og teljast það alltaf góð tíðindi. Mikið sungið og skemmtilegur gleðskapur eins og einn þeirra orðaði það. Tvær kvöldvökur voru haldnar á föstudags- og laugardagskvöld og var sú seinni mun betri, enda veð- ur frekar leiðinlegt á föstudags- kvöldið. Unglingar voru með sýn- ingu á hestum undir stjórn Kol- brúnar Kristjánsdóttur og var hún vel útfærð og skemmtileg á að horfa. Jóhann Jóhannsson, bróðir stórsöngvarans Kristjáns, söng og fluttar voru nýortar gamanvísur um kynbótadómnefndina, sem starfaði á mótinu. Allar tímasetn- ingar stóðust með ágætum og kom meira að segja fyrir að dagskrár- liðir kláruðust klukkustund fyrr en næsti dagskrárliður átti að byrja og féll þetta í góðan jarðveg hjá áhorfendum. Gátu menn þá fengið sér að borða eða skroppið frá án þess að vera hræddir um að missa af einhverju. Um kynbóta- hrossin verður fjallað síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.