Morgunblaðið - 07.07.1983, Side 1

Morgunblaðið - 07.07.1983, Side 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 151. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Walesa hótað brott- rekstri Varsjá, 6. júlí. AP. LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, sam- taka hinna frjálsu verkalvðsfélaga í Póllandi virti í dag að vettugi boð yfir- manna sinna, er hann sneri ekki aftur til vinnu innan tilskilins tíma úr sumarleyfi þvi, sem hann á að hafa tekið sér án lcyfis. Lýsti Walesa þv( yfir, að hann myndi halda áfram orlofí sínu, nema því aðeins að hann yrði „fíuttur til baka með valdi“. Talsmað- ur vinnuveitanda Walesa sagði hins vegar, að svo gæti farið, að hann yrði rekinn úr starfi. „Walesa á á hættu að verða rekinn fyrir agabrot," sagði talsmaðurinn, Danuta Oczki, sem er starfsmanna- stjóri við skipasmíðastöðina í Gdansk, þar sem Walesa hefur unnið sem rafvirki. „Fjarvera hans frá vinnu er alvarlegt brot á starfsregl- um verkamanna." Sjálfur sagði Walesa í viðtali við vestrænan fréttamann í dag, að hann hefði verið viðbúinn einhverj- um hefndaraðgerðum af hálfu ráða- manna við skipasmíðastöðina. „Þeir báðu nokkra menn úr minni deild, sem áttu að fara í sumarleyfi í ágúst, að taka orlof sitt i júlí,“ sagði Wal- esa. „Allir þessir menn höfnuðu því og héldu fast við þá ákvörðun sína að fara heldur í ágúst. Þetta sýnir, að fjarvera mín er aðeins notuð sem yf- irvarp, þegar hótað er að reka mig Sýrland: Koma Shultz árangurslaus Segir enga lausn í Líbanon í sjónmáli Jerúsalem, 6. júlí. AP. GEORGE P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tókst ekki að fá sýrlenzk stjórnvöld til að kanna möguleikana á að flytja her sinn frá Líban- on. Var frá því skýrt í Damaskus í dag, að fyrri afstaða sýrlenzkra stjórn- valda í þessu efni stæði óbreytt og væri óhagganleg. Þar sem Shultz tókst ekki ætlunarverk sitt í Sýrlandi, er nú talin mikil hætta á, að ekkert verði úr framkvæmd á samkomulagi því, sem áður haföi náðst milli Líbanons og ísraels um brottflutning ísraelshers frá Líbanon. Lyfta bjálka Hermenn úr friðargæzlusveitum Frakka í Líbanon lyfta bjálka úr fjögurra hæða byggingu, sem hrundi til grunna í Beirút í gær. Ekki er vitað um fjölda þeirra, sem misstu lífið eða slösuðust, en útvarp- ið í Libanon sagði, að fimm líbanskir verkamenn og tveir franskir hermenn hefðu beðið bana. Sjá frétt á bls 22. Shultz átti fimm klukkustunda fund með Hafez Assad Sýrlands- forseta, þar sem hann reyndi að fá þann síðarnefnda til þess að fall- ast á áætlun Bandaríkjastjórnar um brottflutning allra erlendra herja frá Líbanon. Þá hélt Shultz einnig margra klukkustunda fund með Abdul-Halim Khaddam, utanríkisráðherra Sýrlands, í sama skyni. Þreyttur og vonsvik- inn viðurkenndi Shultz að lokum, að enginn árangur hefði náðst. „Við ræddum um öll grundvallar- atriði málsins," sagði hann, „en náðum alls engu samkomulagi um þetta samkomulag". Skírskotaði hann þar til samkomulags þess, sem áður hefur verið gert milli ísraels og Líbanons. Shultz tók það fram í viðtali við fréttamenn að viðræðunum lokn- um, að einskis illvilja hefði gætt í þeim. „Skoðanir okkar stönguðust einfaldlega með öllu á,“ sagði hann. Helzta mótbára sýrlenzku stjórnarinnar við tillögum Banda- ríkjamanna væri sú, að þær fælu í sér hættu gagnvart fullveldi Líb- anons. „Við aftur á móti teljum, að með tillögum okkar sé óskert fullveldi Líbanons tryggt," sagði Shultz og bætti við: „Að svo komnu tel ég engar líkur á því, að útlendir herir verði á brott frá Líbanon á næstunni." Útilokar ekki toppfund Reagans og Andropovs Kohl kanslari vonbetri um sam- komulag í Genfarviðræðunum Moskvu, 6. júlí. AP. HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýzkalands, sagði í dag, að „mjög yfír- gripsmiklar viðræður" sínar við Yuri Andropov, forseta Sovétríkjanna, hefðu gert sig vonbetri um, að samkomulag ætti eftir að nást eigi síðar en um næstu áramót um takmarkanir á kjarnorkuvopnum í Evrópu. „Ég lagði á það áherzlu við leiðtoga Svoétríkjanna, að við í stiórn Sambands- lýðveldisins værum þeirrar skoðunar, að á þeim tíme, sem eftir er til áramóta, ætti að gefast tækifæri til þess að ná raunhæfum árangri í Genfarviðræðunum um takmarkanir á meðaldrægum eldflaugum,“ sagði Kohl á fundi með fréttamönnum í Moskvu í dag og bætti síðan við: „Sovézki leiðtoginn útilokaði það alls ekki, að árangur gæti náðst á þessu sviði á þessu ári.“ Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýzkalands, á fundi með fréttamönnum í Moskvu í gær, þar sem hann skýrði frá viðræðum sínum við Yuri Andropov, forseta Sovétríkjanna, daginn áður. Á heima- tilbúinni rellu yfir N-pól Pboenix, Arizona, 6. júlí. AP. SEXTÍU og fjögurra ára gamall fyrrum flugmaður úr bandaríska fíughernum, maður sem flaug margar herferðir á P-40 stríðs- fíugvélum Bandaríkjamanna, ætlar að verða fyrstur manna tií að fíjúga yfír Norðurpólinn á heimatilbúinni flugvél. Don Taylor, en svo heitir maðurinn, mun fljúga eins hreyfils Thorp T-18-flugvél sem hann hefur dundað við að setja saman í bílskúrnum heima hjá sér. Þetta er 5,5 metra löng vél og árið 1976 flaug hann henni í kring um hnöttinn. 1980 flaug hann henni frá Bandaríkjunum til Ástralíu og Nýja Sjálands og svo til baka. „Þetta verður eflaust mjög erfitt, það eru engin skilti þarna upp frá sem stendur á að maður sé komin til Norður- pólsins og áttavitinn er gagns- laus vegna segulmagnsins. Það eru allar áttir í suður þegar maður er á Norðurpólnum. Sól- in sést ekki á þessum slóðum á þessum árstíma, en það mun ekki koma að haldi, ísinn og vatnið býður ekki upp á kenni- leiti," sagði Taylor við frétta- menn og fleiri forvitna í gær. Framlög til varnar- mála hækka um 13% London, 6. júlí. AP. Kohl lagði áherzlu á, að báðir aðilar yrðu að sýna vilja sinn í verki, til þess að árangur gæti náðst. Hann gaf þó ekki í skyn, að afstaða Sovétstjórnarinnar í eldflaugamálinu hefði breytzt. Sjálfur lýsti Kohl för sinni til Sovétríkjanna nú sem „vinnu- ferðalagi", sem hefði ekki sízt gildi sökum þess, að með því gæf- ist sér tækifæri til þess að kynn- ast Andropov og ræða við hann. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Vestur-Þýzkalandi nú, að eftir viðræður þeirra Kohls og Andropovs í gær hafi þeirri skoðun vaxið mjög fiskur um hrygg, að nú geti aðeins toppfundur milli Reagans Bandaríkjaforseta og Andropovs blásið nýju lífi í afvopnunarvið- ræðurnar í Genf. Kohl var spurð- ur um hvort og hvenær slíkur fundur þeirra Reagans og Andro- povs gæti átt sér stað og neitaði hann því ekki, að slíkur fundur gæti komið til greina, en sagði: „Það hefur ekki verið rætt um neinn ákveðinn tíma til slíks fundar. Hugmyndin um slíkan fund á því aðeins rétt á sér, að fundurinn yrði rækilega undir- búinn og að hann yrði ekki bara áróðursæfing." BREZKA stjómin birti i gær nýja áætl- un í varnarmálum, þar sem fram kem- ur, að hún hyggst verja 15,97 milljörö- um sterlingspunda til varnarmála á næsta fjárhagsári og er þad um 13,4% aukning frá herútgjöldum yfírstand- andi árs. Af þessari fjárhæð verður 624 millj. pundum varið til þess að standa straum af kostnaði við 4.000 manna herlið Breta á Falklandseyjum, sem Bretar náðu aftur á sitt vald í júní í fyrra eftir 10 vikna styrjöld við Argent- (nu. í sérstakri yfirlýsingu, sem fylgir skýrslunni, ítrekar Michael Hasel- tine varnarmálaráðherra einlægan og afdráttarlausan stuðning Bret- lands við Atlantshafsbandalagið: „Viðbrögð Breta á síðasta ári í Falk- landseyjastríðinu voru einhver ör- uggasta sönnunin fyrir veru okkar og stuðningi við NATO, sem hægt er að hugsa sér,“ sagði Haseltine enn- fremur á fundi með fréttamönnum í dag. „Sérhver, sem vill staðreyna eðli og getu hins vestræna varnar- bandalags og vilja þess til þess að verja sig, getur ekki virt að vettugi hinar sálrænu afleiðingar Falk- landseyjastríðsins."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.