Morgunblaðið - 07.07.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚÍI 1983
19
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------!
Í8SKAPARI
Hollensk hágæðavara
á sérstaklega
hagstæðu verði
ARC358 — Lúxus barskápur
með teak-áferð. 90 lítra. Sérstakt
frystihólf fyrir ísmolagerð.
Verð kr. 8.710,- H. 52,5 cm. B.
52,5 cm. D 60 cm.
AFE523 — Frystiskápur , 140
lítra með sérstökum hraðfrysti.
Verð,kr. 14.280,- H. 85 cm. B. 55
cm. D. 60 cm.
ARF805 — Rúmgóöur 310 lítra ísskápur. 2ja dyra með
65 lítra frystihólfi. Auöveldur að þrifa. Sjálfvirk afþýðing
Verð kr. 16.520,- H. 139 cm. B. 55 cm. D. 58 cm.
HLJOMBÆR
HUÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
AFE268 — Isskápur, 340 litra
með 33 lítra frystihólfi.
Verð kr. 14.480,- H. 144 cm.
B. 60 cm. D 64 cm.
ARF874 — isskápur, 270 lítra
með 24 lítra frystihólfi.
Verð kr. 12.685,- H. 134 cm. B.
55 cm. D. 60 cm.
Lítið um innlent
sjónvarpsefni
í júlí og ágúst
EINS OG sjónvarpsáhorf-
endur hafa tekiö eftir er sú
nýbreytni á sumardagskrá
sjónvarpsins að útsending
fellur ekki niöur í júlímán-
uði. Lítiö verður þó unniö í
upptökusal utan fastra liöa,
þ.e. frétta og þáttanna ,,Sjón-
varp næstu viku“ og „A döf-
inni“. Eitthvað verður um
útitökur og samsetningu
þátta og unnjð verður að gerð
þáttar um Ásgrím Jónsson,
listmálara, en á vegum
frétta- og fræðsludeildar
verður gerður þáttur um
Skaftárelda sem Magnús
Bjarnfreðsson hefur umsjón
með.
Dagskrá júlímánaðar byggist
því að mestu á erlendu efni en ein
íslensk kvikmynd, „Vandarhögg",
sem Hrafn Gunnlaugsson gerði
eftir leikriti Jökuls Jakobssonar,
verður endursýnd. Þá verður sýnt
frá söngvakeppninni í Cardiff í
Wales og hægt að fylgjast með ár-
angri íslenska þátttakandans, Sig-
ríðar Gröndal.
Að sögn Tage Ammendrup, dag-
skrárgerðarstjóra, starfa allt að
30 manns í tengslum við upptökur
á sjónvarpsefni, þar af um 14
tæknimenn og verður ekki fækkað
í starfsliði upptökusals þrátt fyrir
færri verkefni. Sagði Tage að eftir
sem áður yrðu tveir vakthópar að
störfum og yrði reynt að haga
sumarleyfum starfsmanna á þann
hátt sem hentugast væri. Var
Tage ánægður með þá breytingu
að loka ekki sjónvarpi í júlí en
sagði að vissulega hefði verið
æskilegt að vinna meira í upp-
tökusal í sumar. Sagði hann því
lítið um íslenskt efni allt fram til
Borgarráð:
Stefnt að
þátttöku í
vernduð-
um vinnu-
stað á
næsta ári
Á FUNDI borgarráðs Reykjavíkur
nýlega var samþykkt að stefna að
því að koma upp vernduðum vinnu-
stað fyrir fatlaða frí og með 1. janú-
ar 1984, í framhaldi af tillögu sem
félagsfræðingarnir Bjargey Krist-
jánsdóttir og Sigurrós Sigurðardóttir
hafa lagt fyrir borgarráð.
Að sögn Markúsar Arnar Ant-
onssonar, forseta borgarstjórnar
Reykjavíkur, sendi borgarráð til-
lögu félagsfræðinganna til um-
sagnar félagsmálaráðs, atvinnu-
málanefndar og félagsmálastjóra
og tóku allir þessir aðilar jákvætt
undir hana. Sagði Markús örn að
1. janúar á næsta ári tækju gildi
lög sem gerðu ráð fyrir 85% hlut-
deild ríkisins i stofnkostnaði
verndaðra vinnustaða á móti 15%
kostnaðarhlutdeild viðkomandi
sveitarfélags. Sagði hann að til-
lögunni hefði verið vísað til gerðar
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár,
en stefnt væri að því að borgin
tæki þátt í þessum tiltekna vernd-
aða vinnustað strax á næsta ári,
en tíminn þangað til yrði notaður
til undirbúnings.
ágústloka og myndi vinna ekki
hefjast af fullum krafti í upptöku-
sal fyrr en í september.
Ekki sitja þó tæknimenn sjón-
varps aðgerðalausir í ágúst því þá
hefjast upptökur á tveimur ís-
lenskum leikritum. Eru það verkin
„Þessi blessuð börn“ eftir Andrés
Indriðason í leikstjórn Þórhalls
Sigurðssonar og leikrit Kjartans
Ragnarssonar „Matreiðslunám-
skeiðið", sem höfundur leikstýrir.
í október verður leikrit Svein-
björns Baldvinssonar „Þetta verð-
ur allt í lagi“ tekið upp, en því
verður leikstýrt af Steindóri
Hjörleifssyni.
Aðspurður um breytinguna á
sumardagskránni sagði Tage að
lokum: „Þetta er auðvitað tilraun.
Heldur verður tómlegt um að litast f upptökusal sjónvarpsins f sumar.
Það hefur oft verið til umræðu í
útvarpsráði að sjónvarþa í júlí en
aldrei verið hrundið í framkvæmd
fyrr en nú. Ég held að þetta breyti
miklu fyrir þá sem dvelja á
sjúkrahúsum eða eiga á annan
hátt erfitt með dægrastyttingu
utan heimilisins, mikið af eldra
fólki er mjög háð sjónvarpi og
fyrir hönd þessa hóps fagna ég
mjög breytingunni. Ég hef ekki
trú á öðru en að þetta fyrirkomu-
lag haldist í framtíðinni. Fólk
sleppir ekki svo auðveldlega því
sem einu sinni er fengið."