Morgunblaðið - 07.07.1983, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.07.1983, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983 Þ«r slepptu ekki hrffunum á meðan spjallað var við blm. F.v. Guðrún Dís Magnúsdóttir, Svana Skúladóttir og Hanna Guðrún Styrmisdóttir. Grasið slegið af kappi. Hópurinn frá vinnuskólanum ásamt eiganda lóðarinnar, f.v. Andri örn Clausen, flokksstjóri, Guðrún Dís Magnúsdóttir, Aðalheiður Stefinsdóttir, Hanna Guðrún Styrmisdóttir og Svana Skúladóttir. Unglingar f Vinnuskóla Kópavogs: Bjóða eldri bæjarbú- um afslátt á garðvinnu Víða má nú sjá vinnuflokka að störfum við lóðahreinsun og garð- rækt og heimsótti Mbl. vinnuskól- ann í Kópavogi í gær, en þar starfa um 340 ungmenni á aldrinum 13 til 16 ára. Sá háttur hefur verið hafður á frá því 1977 að tveir til þrír flokkar frá vinnuskólanum hafa séð um hreinsun á lóðum eldri bæjarbúa gegn vægu gjaldi. Sagði Sigurður Þorsteinsson, annar yfirverkstjóra skólans, að þessi þjónusta hefði mælst vel fyrir meðal íbúa Kópavogs, en alls hafa um 30 manns notfært sér hana. Eldra fólk borgar hverjum starfsmanni vinnu- hópsins kr. 30 á klukkustund og er þá innifalið í verðinu flutn- ingur á sláttuvél og öðrum verk- færum, svo og blómabeða- og steinhleðsluhreinsun og auðvit- að sláttur. í garðinum að Skjólbraut 13 í Kópavogi hitti Mbl. fyrir þrjár harðduglegar stúlkur frá vinnu- skólanum, þær Guðrúnu Dís Magnúsdóttur, Hönnu Guðrúnu Styrmisdóttur og Svönu Skúla- dóttur. Eftir stutt spjall kom í ljós að tvær þeirra eru fjórða sumarið í vinnu hjá skólanum og voru þær spurðar hvað skemmti- legast væri við garðvinnu. Svar- ið lét ekki á sér standa: „að slá“. Annars voru þær sammála um að öll garðvinna gæti verið skemmtileg. Það færi mest eftir veðrinu og flokksstjórunum og var ekki annað að sjá en þær væru ánægðar með hvort tveggja. Skorað á ráðamenn að efla kynfræðslu „ÞAÐ ER óformlegur hópur kvenna úr öllum stjórnmálahreyflngum sem stendur að baki þessarar tillögu um upplýsingaherferð í kynferöismál- um,“ sagöi Hildur Jónsdóttir, skrifstofumaöur, sem ásamt Katrínu Fjeldsted, lækni, og Vilhelmínu Har- aldsdóttur, lækni, gekk á fund heil- brigðisráðherra, Matthíasar Bjarna- sonar, menntamálaráöherra, Ragn- hildar Helgadóttur og Guöjóns Magnússonar, aðstoöarlandlæknis í gærmorgun. Þar afhentu þær bréf meö tillögum samstarfshóps kvenna úr öllum stjórnmálahreyfíngum um upplýsingaherferö í kynferðismálum. 1 bréfinu sem afhent var ráð- herrum og landlæknisembættinu segir, að í lögum frá 9. maí 1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf, barneignir, fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir sé kveðið á um, að fólki skuli gefinn kostur á ráðgjöf og fræðslu um kynlíf, barneignir og ábyrgð foreldra- hlutverks. Samstarfshópurinn tel- ur að nú, átta árum eftir gildis- töku þessara laga, skorti enn veru- lega á að þau séu framkvæmd að því leyti sem lögin gera ráð fyrir. Fjöldi þungana mæðra í aldurs- hópnum 15 til 19 ára sé mikill og reynsla félagsráðgjafa, sem fjalli um umsóknir um fóstureyðingar, bendi einnig til þess að verulegur hluti ungs fólks í þessum aldurs- hópi hafi takmarkaða þekkingu á kynferðismálum og getnaðarvörn- um. Lögð er áhersla á, að við þetta átak verði leitast við að koma á náinni samvinnu milli þeirra sem 10 ára afmælis Sjálfs- bjargarhússins minnst I DAG eru 10 ár iíöin síðan vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12, tók til starfa. í dvalarheimilinu eru 45 ein- staklingsherbergi. Heimilið hefur frá byrjun verið fullskipað og töluerður biðlisti er eftir plássi. Dvalarheimilið er rekið á dag- gjöldum og þeir einstaklingar sem búa þar hafa einungis vasapen- inga frá Tryggingastofnun ríkis- ins. Auk dvalarheimilisins eru í hús- inu 36 íbúðir, endurhæfingarstöð, sundlaug, dagvistun o.fl. f tilefni afmælisins verður kaffisala í matsal hússins laug- ardaginn 9. júlí. Allt sem inn kem- ur fyrir selt kaffi rennur í ferða- sjóð íbúa hússins. Kaffisalan hefst kl. 14.00. Frá sama tíma verður húsið til sýnis. Klukkan 14.30 leik- ur skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts, undir stjórn ólafs L. Kristjánssonar, á svölunum á ann- arri hæð og klukkan 15.30 leikur dixieland-hljómsveit á sama stað. íbúar vonast til þess að sjá sem flesta á laugardaginn. beina reynslu hafa af kynfræðslu- starfi meðal unglinga annars veg- ar og fagfólks í upplýsingamiðlun hins vegar. í nánari tillögum samstarfs- hópsins um slíka herferð er bent á nokkur atriði. Lagt er til að gerð verði fræðsluþáttaröð fyrir sjón- varp í nokkrum hlutum sem fjalli um æxlun, getnaðarvarnir, kynlíf, kynsjúkdóma, rétt til fóstureyð- inga og foreldraábyrgð. Lagt til að landlæknir beiti sér fyrir samstarfi við útvarp og sjón- varp og hönnuð verði veggspjöld sem hafi það markmið að hvetja unglinga til að nota getnaðarvarn- ir. Þeim verði dreift í fram- haldsskóla, apótek, læknastofur, æskulýðsmiðstöðvar, íþróttahús og aðra samkomustaði unglinga. Jafnframt verði gerður upplýs- ingabæklingur, sem beinist að unglingum 15 til 19 ára og dreift á sömu stöðum. Landlæknir birti einnig auglýs- ingu á áberandi stað í símaskrá með símanúmeri kynfræðslu- deilda og hvatningu til almenn- ings um að leita til hennar. Einnig verði aðgangur unglinga að getn- aðarvörnum bættur, t.d. með sjálfsölum með smokkum á al- mannafæri. Undir þessar tillögur rita 57 konur úr öllum stjórnmálahreyf- ingum og starfstéttum, sem tengj- ast heilbirgðis-, félags- og skóla- málum, og skora þær á ráðamenn fræðslu- og heilbrigðismála að vinna að framkvæmd þeirrar fræðslu og ráðgjafar, sem lög gera ráð. fyrir, og að tryggja að fjár- magn renni til hennar. MorgunblaAið/GuÓjón. Hér sjást forstjórar Daihatsu-umboðsins ásamt forstjóra Evrópudeildar Dai- hatsu í hinum nýja sýningarsal. Talið f.v. Sigtryggur Helgason, Y. Shibaike og Jóhann Jóhannsson. Daihatsu-umboðið með nýjan sýningarsal Daihatsu-umboöiö hefur nú tekið í notkun nýjan 450 m2 sýningarsal í Ármúla 23 og er hann á bakvið verk- stæði umboðsins. Hagar svo til aö hægt er að nota þak sýningarsalar- ins sem bílastæði fyrir verkstæöiö. Fyrirhugað er að í salnum verði bæði til sýnis nýir bílar og notaðir og í sýningarsalnum verður leik- fangahorn fyrir börn viðskipta- vina og á næstunni verður komið upp myndsegulbandstækjum þar sem sýndar verða auglýsingar og fræðslumyndir frá Daihatsu- verksmiðjunum. í tilefni opnunar hins nýja salar kom hingað til lands forstjóri Evr- ópudeijdar, Daihatsu, Yoichi Shib- aike, en hann kemur frá Brússel þar sem hann hefur aðal aðsetur sitt. Sagði hann í samtali við Mbl. að hinn mikli vöxtur Daihatsu á íslandi hefði vakið verulega at- hygli stjórnenda í Japan og hefði mikla þýðingu fyrir tæknideildina í Japan að fá upplýsingar um hvernig Daihatsu-bílarnir stæðu sig við íslenskar aðstæður, því þær væru svo frábrugðnar því sem víð- ast hvar gerðist annars staðar. Einnig sagði hann að umboðið hefði að vissu leyti verið leiðandi í Evrópu og benti á í því sambandi að Island hefði verið fyrsta Evrópulandið þar sem rafmagns- bíllinn frá Daihatsu var kynntur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.