Morgunblaðið - 07.07.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
27
Vinur 953. Knapi er Einar
Magnússon.
Stóðhesturinn Vinur 953
frá Kotlaugum seldur
— Kaupandi var hrossaræktarsamband Suðurlands
FYRIR skömmu keypti hrossa-
ræktarsamband Suöurlands I.
verðlauna stóöhestinn Vin 953 frá
Kotlaugum af Siguröi Krist-
mundssyni og er söluverð hundrað
og tuttugu þúsund krónur.
Vinur, sem er undan Sörla 653
frá Sauðárkróki og Pöndru frá
Unnarsholtskoti, var sýndur á
síðasta landsmóti þá fjögurra
vetra gamall. Hlaut hann í ein-
kunn 8.00 fyrir byggingu og 8.07
fyrir hæfileika eða 8.03 í meðal-
einkunn og varð hann annar i
röð fjögurra vetra hesta.
Það vekur athygli hversu lágt
verðið er á svo hátt dæmdum
stóðhesti en aö sögn Haraldar
Sveinssonar, formanns hrossa-
ræktarsambands Suðurlands, er
ástæðan fyrir því sú, að seljandi
vildi öðru fremur að hesturinn
færi ekki út úr héraðinu og hitt
að hrossaræktarsambandið væri
ekki fjársterkt um þessar mund-
ir.
Ekki er ósennilegt að hægt
hefði verið að fá allt að tvö
hundruð þúsund fyrir hest sem
þennan ef seljandi hefði látið
eigin hagsmuni sitja í fyrirrúmi.
Aðspurður kvað Haraldur að
hesturinn yrði notaður á vegum
sambandsins í sumar og væri
fullt hjá honum fyrri hlutann en
hinsvegar væru laus pláss seinna
tímabilið.
VK
Frá keppni í
hestaíþróttum.
Björn Sveins-
son og Hrímnir
frá Hrafnagili
íslandsmeist-
arar í tölti
1981.
Úrtaka fyrir EM:
Útlit fyrir æsi-
spennandi keppni
DAGANA 14. og 15. júlí verður
haldin úrtaka fyrir Evrópumótið
sem haldið verður í Þýskalandi í
byrjun september nk. I úrtökunni
verður keppt í sömu greinum og
keppt verður í á sjálfu Evrópu-
mótinu og eru þær alls sjö, tölt,
fjórgangur, fimmgangur, 250
metra skeið, gæðingaskeið,
hlýðniæfingar og víðavangs-
hlaup.
Mótssvæðið verður opnað kepp-
endum mánudaginn 11. júlí til
æfinga og búið er að útvega að-
stöðu í hesthúsum á Hellu fyrir
keppnishesta og hagabeit fyrir þá
sem þess óska. Þeir Gunnar Frið-
þjófsson og Höskuldur Hildi-
brandsson munu sjá um að koma
hestunum fyrir og verða þeir á
staðnum.
Verið er að byggja nýjan tvö-
hundruð metra völl á vallarsvæð-
inu auk þess sem stikuð hefur
verið út 2.300 metra löng og erfið
braut fyrir víðavangshlaupið, en
þess má geta að víðavangshlaupið
á undanförnum Evrópumótum
hefur verið mjög erfitt. Hlýðni-
æfingar eru með nokkuð nýstár-
legu sniði sem veitir keppendum
meiri möguleika, þannig að knap-
ar geta valið einfaldar B-hlýðni-
æfingar og allt upp í þungar æf-
ingar sem gefa fleiri stig ef vel
tekst til. Með öllum hlýðniæfing-
Hestar
Valdimar Kristinsson
um verður að fylgja tónlist sem
fellur vel að æfingunum. í víða-
vangshlaupinu verða hindranir
bæði tilbúnar og frá náttúrunnar
hendi, s.s. ár, lækir og moldar-
börð. Keppni í gæðingaskeiði og
250 metra skeiði verður með
sama sniði og verið hefur á hesta-
mótum hérlendis.
Eins og áður segir stendur úr-
takan yfir í tvo daga og verður
tvöföld umferð og mega keppend-
ur vera á ótakmörkuðum fjölda
hesta fyrri daginn. Seinni daginn
mætir hver keppandi með einn
hest. Ástæðan fyrir þessu fyrir-
komulagi er sú að þegar endan-
lega verður valið í keppnissveit-
ina má hver maður aðeins vera
með einn hest.
Nú þegar er farin að myndast
töluverð spenna fyrir úrtökuna,
enda mikið í húfi því telja má að
sæti í landsliði íslands í hesta-
íþróttum sé einhver mesti heiður
sem íslenskum reiðmanni getur
hlotnast. Skráningu lauk síðast-
liðinn þriðjudag og eru til leiks
skráðir þekktir hestar og kunnir
knapar og má því búast við
hörkuspennandi keppni.
423 luku námi á 79. skóla-
ári Iðnskólans í Reykjavík
IÐNSKÓLANUM í Reykjavík var
slitið 31. maí sl. og lauk þá 79.
starfsári hans.
í ræðu sinni við skólaslit minnt-
ist Ingvar Ásmundsson, skóla-
stjóri, á framtíðaráætlanir skól-
ans, en stefnt er á að tölvufræði-
braut verði sett á laggirnar sem
útskrifi stúdenta. Þá þakkaði
skólastjóri þeim Sigurði Krist-
jánssyni og Stefaníu ólafsson vel
unnin störf, en þau láta nú bæði af
kennslu við skólann. Einnig
minntist hann Vigfúsar Árnason-
ar, deildarstjóra í hárskurðardeild
en hann lést í vetur.
Að lokum hafði Snorri Jónsson
orð fyrir 50 ára nemendum skól-
ans og skýrði frá fyrirhugaðri gjöf
þeirra, málverki af Sigurði Skúia-
syni, magister.
Alls lögðu 1492 stund á nám við
skólann í vetur og iuku 286 prófi
að þessu sinni og voru veitt 18
verðlaun fyrir góða frammistöðu.
Er hér birtur fjöldi þeirra sem út-
skrifuðust úr hverri deild í vor, en
skólinn útskrifaði 137 nema um
áramót og hafa því 423 nemendur
lokið prófi á þessu skólaári.
Bakaraiðn 5
Bifreiðasmíði 10
Bifvélavirkjun 4
Blikksmíði 10
Bókband 4
Gull- og silfursmíði 3
Hárgreiðsla 23
Húsasmíði 67
Húsgagnasmíði 7
Kjötiðn 7
Ljósmyndun 1
Málaraiðn 4
Múraraiðn 5
Netagerð 1
Skeyting og plötugerð 1
Offsetprentun 2
Pípulögn 8
Prentsetning 4
Hæðarprent
Rafvélavirkjun 5
Rafvirkjun 27
Rennismíði 1
Tannsmíði 1
Veggfóðrun-dúkl. 2
Vélvirkjun 19
Rafeindavirkjun
(útvarps- og sjónv.v.) 31
Tækniteiknun 32
Patreksfjörður:
Landsbankinn opnar nýtt útibú
LANDSBANKINN opnaði 1. júlí sl.
nýtt bankaútibú að Aðalstræti 75,
Patreksfirði.
Húsið Aðalstræti 75 er upphaf-
lega byggt fyrir Apótek Patreks-
fjarðar. Bygging þess hófst mið-
sumars 1972. Það er steinsteypt,
tvær hæðir, 200 fermetrar að
grunnfleti. Á neðri hæð þess var
apótekið og vinnustofur því tengd-
ar, auk tvöfaldrar bílgeymslu. Á
efri hæð var íbúð lyfsalans, Sig-
urðar G. Jónssonar. Húsið er
teiknað af Jóni Haraldssyni, arki-
tekt.
Á árinu 1982 keypti Landsbank-
inn húsið til starfrækslu banka-
útibús, en apótekið hefur verið
flutt.
Á neðri hæð hússins er nú af-
greiðslusalur útibúsins, viðtals-
herbergi, tölvuherbergi, öryggis-
hvelfing með geymsluhófum fyrir
viðskiptamenn, skjalageymsla,
kaffistofa starfsfólks o.fl. Á efri
hæð er íbúð útibússtjóra.
Hið nýja útibú Landsbankans á
Patreksfirði annast öll venjuleg
bankaviðskipti, jafnt erlend sem
innlend.
Kynntu þér
vörumarkaðsverð
Hringborð
95 cm og 4 stólar
kr. 8.180.-
ef staögreitt.
Aflangt borð
120x80 og 4 stólar
kr. 8.180.-
ef staðgreitt.
Borðplötur hvítar, fótur natur, rauöur, brúnn eöa svartur.
Stólar 4 litir, natur, rauöir, brúnir og svartir.
Afborgunarskilmálar
Opið til
Sendum
land allt
kl. 8 í kvöld fimmtudag.
um
©
Vörumarkaðurinn hf.
Sími 86112.